Dagblaðið - 30.05.1981, Síða 24

Dagblaðið - 30.05.1981, Síða 24
Flugkeppni yf ir Atlantskaf ið hefst í næstu viku: 4 annaö hundrað smá- flugvéla til íslands — veldur Flugmálastjóm verulegu hugarangri Alþjóðleg flugkeppni, sem fram mun fara dagana 6.—13. júní næst- komandi, veldur nú flugmála- stjórnarmönnum verulegu hugar- angri. Þá daga munu á annað hundrað einkaflugvélar fljúga frá París til New York með viðkomu á íslandi og siðan sömu leið til baka. Það sem veldur mönnum áhyggj- um er að um helmingur þessara véla er einshreyfils flugvélar og flugmenn- irnir eru einkaflugmenn, flestir reynslulausir í Atlantshafsflugi. Flug- vélarnar eru flestar hægfleygar og flugþol þeirra eftir því. Einn viðmælenda Dagblaðsins sagði að slík keppni væri hið mesta glæfraspil. Væri ákaflega varasamt að einshreyfilsflugvélar flygju úthafs- flug, auk þess sem flug um Island og Grænland væri ekki á færi hvers sem er. Forráðamenn þessarar keppni voru nýlega staddir hér á landi og ræddu þá við starfsmenn Flugmálastjórnar um móttöku flugvélanna. Flugmála- stjórn mun hafa sett nokkur skilyrði áður en hún leyfði flug smáflugvél- anna um ísland, meðal annars um lágmarkskröfur um flugleiðsögutæki í vélunum. Auk þess hyggst Flugmálastjórn bæta við mannafla á vaktir við flug- umferðarstjórn meðan á þessari keppni stendur. Verður meðal annars fjölgað í flugturninum í Vestmanna- eyjum. -KMU ,Frá DB-mynd Sigurður Þorri, leitarmiðstöðinni í flugturninum i Reykjavfk. Leitað án árangurs í þrjá daga að TF-ROM: VEÐUR HAMLAÐILEIT ÚR FLUGVÉLUM í GÆR — athyglin bein- istað svæðinu f rá Öxnadals- heiði að Hofsjökli Umfangsmikil leit að týndu flugvél- inni með mönnunum fjórum bar engan árangur í gær. Um 300 manns leituðu þá á landi á svæðinu frá Austur-Húna- vatnssýslu til Skagafjarðar. Munu fleiri bætast í þann hóp í dag. Vonir um að þoku sem lá yfir svæðinu létti brugðust. Leitin í dag mun beinast fyrst og fremst að svæðinu frá öxnadalsheiði að Hofsjökli, sérstaklega syðsta hluta hins hrikalega Eyjafjarðarhálendis. Þar er Nýjabæjarfjall en frá því flug- vélin týndist hefur ekkert verið hægt að leita á þvf, hvorki úr lofti né af landi, vegna svartaþoku. Leitarsvæðið sem athyglin beinist að er erfitt yfirferðar vegna gilja og mis- hæða. Þar er göngufæri heldur ekki eins og bezt verður á kosið vegna snjó- skaflaogbleytu. -KMU Gengisbreyt- ingin auðveld aráætlana- gerðí fiskiðnaði: Líkara því að standa á þurru — en að vera í grænum sjó, segir Árni Benediktsson framkvæmdastjóri „Gagnvart okkur, sem erum að reyna að verðleggja hráefni, er þessi gerþreyting talsverð nýjung. Við vit- um nú fyrirfram hvað verður í stað þess að fá ekkert um það að vita fyrr en eftir á. Þetta er líkara því að standa á þurru landi en að vera í grænum sjó,” sagði Árni Benedikts- son, framkvæmdastjóri Framleiðni sf., í viðtali við DB. Fréttamaður spurði hann álits á gengisbreyting- unni, sem tilkynnt var formlega í gærmorgun, með tilliti til fisk- iðnaðarins. „Það skiptir afar miklu máli að vita hvernig þessi mál verða, að minnsta kosti um nokkurt skeið,” sagði Árni. „Það auðveldar mjög alla áætlanagerð. Við það opnast möguleikinn á allt öðrum og væn- legri vinnubrögðum. Ég hygg nú samt að svo varlega hafi verið farið f breytingar á genginu að ekki verði kannski allir ánægðir. Það er kannski bezt að enginn sé alveg ánægður með allt — menn verða þá ekki værukærir og andvara- lausir. Fátt er jafnvarhugavert.” „Það er þó, eins og ég sagði, allt annað að hafa einhverja viðmiðun fyrirfram en að byggja ákvarðanir á vafasömum eða jafnvel skökkum forsendum og reyna síðan að fá eitt- hvert vit í hlutina eftir á. Að vissu marki, að minnsta kosti, er nú hægt að byrja á byrjurúnni,” sagði Árni Benediktsson framkvæmdastjóri. -BS Norræn landskeppni fatlaðra: Lokatrimmið á morgun — með viðeigandi hátíðarstuði Norrænu trimmlandskeppni fatlaðra lýkur á morgun. í tilefni þess verður efnt til hópgöngu, sunds og hjólreiða kl. 17 á morgun við Hátún 12. Þá verður öllum boðið upp á pylsur og kók og annað kvöld verður dansað f diskóteki sem komið verður upp í Hátúni. Allir eru hvattir til að mæta I loka- sprettinn til að gera þennan dag sem eftirminnilegastan um leið og lokastig- in í keppninni eru unnin. Þátttaka í keppninni hefur verið ein- staklega góð á flestum stöðum á land- inu. Er því ekkert eftir nema að sigra. -ELA Óbreyttstaðaí læknadeilunni „Það hefur ekkert nýtt gerzt í lækna- deilunni, engir fundir hafa verið né heldur boðaðir. Læknaþjónustan sf. mun starfa áfram næstu daga eins og hún hefur gert eða þangað til einhverj- ar ákvarðanir verða tekíiar,” sagði Sigurður Hektorsson framkvæmda- stjóri Læknaþjónustunnar í samtali við DB í gærkvöldi. -ELA. FramogÞórleika ágrasi Fyrsti grasleikurinn í Reykjavik á ís- landsmótinu í knattspyrnu fer fram í dag. Þá mæíast Fram og Þór frá Akur- eyri og verður leikið á Valbjarnarvelli í Laugardal. Hefst viðureign liðanna kl. 14. Leikur Breiðabliks og Akraness í dag verður sömuleiðis leikinn ágrasi. Liðin mætast á grasvellinum í Kópavogi kl. 16. -KMU. Gr M Q NIN e m IVIKU HVERRI Vinningur vikunnarlOgíra reiðhjól Vinningur í þessari viku er tíu gíra rciöhjól af gerðinni DBS frú Fúlkanum, Suðurlandsbraut 8 i Reykjavlk. í vikunni verður birt ú þessum stað I blaðinu spurning, tengd smáauglýsingum blaðsins, og nafn heppins áskrifanda dregið út og birt I smáauglýsingadálkum. Fylgist vel með, áskrifendur, fyrir nœstu helgi verður einn ykkar glœsilegu reiðhjóli ríkari. c ískalt Seven up. hressir betur.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.