Dagblaðið - 03.06.1981, Blaðsíða 15
14
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ1981.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 3. JÚNÍ 1981.
15
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I)
Nýr Jesse Owens í f rjáls-
íþróttum í Bandaríkjunum
- Carl Lewis hljóp 100 m á 10.00 sek. -200 m á20.73 sek. og stökk 8,25 metra í langstökki á tveimur klst.
Bandaríkjamenn haf eignazt nýjan
Jesse Owens i frjálsum iþróttum.
HÍnum 19 ára Carl Lewls frá Houston í
Texas er nú meira og meira likt við
meistarann mikla sem á árunum 1933—
1936 var skærasta nafnlð i frjálsum
iþróttum. Jesse Owens, svarti stúdent-
Inn frá Ohio, var þá nær óslgrandl i
spretthiaupum og iangstökkl. Há-
markið hjá honum voru ólympiuleik-
arnir I Berlin þegar hann sigraði i 100
m, 200 m, langstökki og var auk þess i
sigursveit Bandarikjanna i 4x100 m
boðhiaupi. En látum þetta nægja um
Björgólfur
formaður Blak-
sambandsins?
Aðaifundur Blaksambands íslands
verður haidinn á Hótel Esju næsta
laugardag. Hefst hann kl. 14.
Guðmundur Arnaldsson, sem verið
hefur formaður undanfarin ár, gefur
ekki kost á sér tii endurkjörs. i stað
hans þykir BJörgólfur Jóhannsson, sem
mikið hefur starfað að blakmálum, Ifk-
legaslur eftlrmaður en hann hefur
ákveðið að gefa kost á sér. • KMU
Jesse Owens, iþróttaunnendur þekkja
sögu hans svo vel.
Snúum okkur að Carl Lewis. Fyrir
nokkrum dögum hijóp hann 100 m á
10,00 sek. Stökk 8,25 metra í lang-
stökki og hijóp 200 metra á 20,73 sek.
Rafmagnstimataka auðvitað og Lewls
náði þessum frábæra árangri á tæpum
tveimur Idukkustundum á móti i Dall-
as.
Þriðji bezti tfminn
Árangur Carl Lewis á láglandsbraut-
inni i Texas í 100 metra hlaupinu er af
flestum sérfræðingum talinn bezti ár-
angur sem náðst hefur í 100 m hlaupi.
Að visu hafa tveir hlauparar náð betri
tíma. Jim Hines, Bandarikjunum,
hljóp á 9,95 sek. á ólympiuleikunum i
Mexikó-borg 1968. Þunna loftið
spilaði þar mikið inn í — Mexikó-borg
er rúmlega 2.200 m yfír sjávarmáli. Þá
hljóp Silvio Leonard frá Kúbu 100 m á
9,98 sek. á sömu braut 1 Mexikó 1977.
Timi Carl Lewis, 10,00 sek., er bezti
timi sem náðst hefur á láglandsbraut,
raunverulega heimsmet á slikum braut-
um. Bezta timann áður á slikri braut,
það er rétt um eða yfir sjávarmál, átti
James Sanford, Bandarikjunum. Hann
hljóp á 10,02 sek. á móti f fyrra. Þessi
Tveir leikir í 1.
deild í kvöld
Paul Breitner er tvfmælalaust maðurinn á bak við árangur Bayern f vetur. Stórbrotinn leikmaður.
Tveir leikir verða i 1. deild tslands-
mótsins i knattspymu i kvöld. Hefjast
báðir Id. 20.00. A Akranesi leika ÍA og
Fram en Valur og KA á Laugardals-
velli, Fögruvöilum. Báðir leiklralr ættu
að geta orðið skemmtilegir. Akurnes-
ingar eru sigurstranglegri gegn bikar-
melsturum Fram á Skipaskaga en þó
kæml ekki á óvart þó Fram næði jafn-
tefli. KA hefur unnið tvo siðustu leiki
sina og ætti að geta geflð Valsmönnum
góða keppni.
MEISTARARNIR HEITA EKKI
BAYERN - HELDUR BREITNER!
sagði stórblaðið BILD eftir glæsilegan 7-2 sigur Bayem á Frankfurt í Bundesligunni um helgina
Frá Hllmari Oddssyni, fréttamanni DB i
Miinchen:
Aldrel, held ég megi segja, hef ég séð
aðra eins knattspyrnu og þá sem Bayern
Munchen sýndi hér á ólympiuleikvanginum
á laugardag gegn Eintracht Frankfurt.
Eftir markalausan fyrri hálfleik fór allt i
gang með marki Kraus á 54. minútu og
hinir 55.000 áhorfendur, sem saman voru
komnir á velllnum, upplifðu nokkuð sem
vist er að ekki gerist aftur i bráð.
Það var fyrirliðinn Paul Breitner,
sem bókstaflega var alls staðar á vellinum.
Auk þess að skora þrjú mörk lagði hann
tvö önnur upp og sendi svo snilldarbolta út
frá sér íallar áttir.
Skriða
Sem fyrr sagði var það Kraus, sem kom
skriðinu af stað á 54. mlnútu. Ekki liðu
nema 7 min. þar til Breitner bætti öðru
markinu við úr vitaspymu eftir að honum
hafði sjálfum verið brugðið. Á 65. minútu
skoraði hann aftur og svo fékk Bayern
vítaspyrnu á nýjan leik. Að þessu sinni var
það Karl Heinz Rummenigge, sem „fékk”
að taka spyrnuna og skoraði örugglega,
4—0. Á 79. mfn. kom svo fimmta markið.
Rummenigge var þá aftur á ferðinni með
glæsilegt mark.
Frankfurt svarar
Loks á 81. minútu tókst Frankfurt aö
svara fyrir sig með marki Borchers en það
tók Bayern ekki nema þrjár minútur að
svara þvi. Og hvílíkt og annað eins mark!
Breitner fékk þá knöttinn á eigin vitateig
og tók á rás. Lék upp allan völl og á a.m.k.
fjóra leikmenn Frankfurt og spyrnti síðan
að marki. Áhorfendur héldu andanum
niðri í sér á meðan boltinn sveif 1 loftinu.
Hann small í markvinklinum og þeyttist
þaðan i netið, 6—1, og allt varð bókstaf-
lega brjálað á ólympíuleikvanginum. Rétt á
eftir iagaöi Cha Bum stöðuna fyrir Frank-
furt en lokaorðið átti Dieter Hoeness á 90.
minútu er hann skoraði með léttum skalla
af markteig. Sýningunni var lokið.
Eftir þennan leik er aðeins kraftaverk,
sem getur komiö í veg fyrir sigur Bayern i
deildinni, annað árið í röð, þvi Hamborg
tapaði dýrmætu stigi á útivelli gegn Karls-
ruhe.Heimaliðið, dyggilega stutt af 46.000
áhorfendum — uppselt — náði forystunni
á 54. mín. með marki Dittus. Það var svo
ekki fyrr en 12 mín. fyrir leikslok að Ham-
borg jafnaði er von Heesen sendi knöttinn i
netið en hann hafði komið inn á sem vara-
maður fyrir Hartwig á 64. mfnútu. Meö
þessu glataða stigi má eiginlega segja að
veikum vonum Hamborgaranna sé endan-
lega öllum lokið.
7 hjá Gladbach
Það voru fleiri en Bayem, sem skoruðu 7
mörk. Borussia Mönchengladbach fór á
kostum gegn botnliði Uerdingen og áður en
yftr lauk hafði tuðran faríð sjö sinnum f
netþeirrasiðarnefndu. Eftir aðeins 19min.
var staðan oröin 4—0. Þeir Bruns,
Mathaus, Nickel og Hannes skoruðu.
Nickel skoraði svo fimmta markið á 54.
min. og slðan bætti Hannes sínu öðru við á
67. min. Eggeling svaraði fyrir Uerdingen
áöur en Lienen tryggði sigur Gladbach end-
anlega.
Úrslit annarra leikja urðu þessi:
Stuttgart— 1860Mttnchen 2—1
Dortmund — Köln 2—2
Schalke 04 — Núrnberg 1—1
Bielefeld — Duisburg 2—1
Leverkusen — Bochum 2—0
Dtisseldorf — Kaiserslautern 0—2
Bielefeld er á góðri leið með að bjarga
sér frá falli eftir að hafa verið 1 botnsætinu
lengst af 1 vetur. Það var snillingurinn
Schock, sem skoraði bæði mörk Bielefeld
úr vitaspyrnu en Gorers hafði komið gest-
unum yfif.
1860 MUnchen tapaði fyrir Stuttgart eftir
að Nastase hafði náð forystunni. Hatten-
berger og Kelsch tryggðu Stuttgart sigurinn
með tveimur mörkum i siðari hálfleiknum.
Botnbaráttan er grímm og Schalke04 og
NUrnberg, sem bæði eiga í vök að verjast,
deildu stigunum. Heidenreich skoraði fyrst
fyrir NUrnberg en Szymanek jafnaði metin.
BurgsmUller mefl 27
DUsseldorf átti aldrei möguleika gegn
Kaiserslautern. Bongartz skoraði fyrst og
siðan Hofedietz og þar með var björninn
unninn. Leverkusen fjarlægðist hins vegar
botnsvæðið með góðum sigri á Bochum.
Klinke og Norðmaðurinn Lars Anre
ökland skoruðu mörkin. Ökland hefur nú
gert 15 mörk í Bundsligunni. Næstur á eftir
Breitner sem er með 16. Rummenigge hefur
gert 24 en efstur er Manfred BurgsmUller
hjá Dortmund með 27.
Honum tókst þó ekki að skora i 2—2
jafnteflinu gegn Köln. Knöppel skoraði
fyrir Bayern áður en Geyer jafnaði. Aftur
komst Köln yfir með marki WiUmer og rétt
á eftir var Átli Eðvaldsson tekinn út af.
Það var svo Miroslav Votava sem jafnaöi á
87. min. Dortmund á nú aðeins fjarlæga
möguleika á að ná UEFA-sætinu. Er
tveimur stigum á eftir Gladbach og aðeins
tvær umferðir eftir.
Bayem
Hamborg
Stuttgart
Kaiserslautern
Frankfurt
Gladbach
Dortmund
Bochum
Köln
Duisburg
Karslruhe
Leverkusen
Bielefeld
DUsseldorf
NUrnberg
1860MUnchen
Schalke 04
Uerdingen
Staðan
32 20 9
32 20 6
32 18 7
32 15 10
32 13 11
32 14
32 12
32 9
32 11
32 10
32
32
32 10
32 9
32 10
32 9
32
32
3 81—40 49
6 71—42 46
7 67—43 43
7 57—37 40
8 59—51 37
11 64—60 35
11 65—56 33'
9 51—42 32
11 51—52 32
13 43—52 29
11 46—61 28
14 47—50 27
16 46—62 26
16 53-61 25
17 44—56 25
17 47—60 24
17 42—84 23
18 47—72 22
Carl Lewls kemur i mark á 10,00 sek. á
mótinu i Dallas, Texas, fyrlr nokkrum
dögum.
sami Sanford hljóp þá lika á 9,88 sek.
en i of miklum meðvindi, svo sá
árangur var ekki viðurkenndur sem
heimsmet.
Langstökksafrek Lewis
Fyrir nokkru skýrðum við frá frá-
bærum árangri Carl Lewis í langstðkki
hér i opnunni. Hinn 10. mai siðast-
liðinn stökk hann 8,63 metra og enginn
i heiminum hefur stokkið lengra nema
Bob Beamon, USA, 8,90 metra á
ólympiuleikunum i Mexíkó-borg 1968.
Vindhraði var 2 sekúndumetrar þegar
Beamon vann afrek sitt. Carl Lewis
fékk hins vegar sinn árangur ekki
viðurkenndan þvl meðvindur var
aðeins of mikill eða 2,02 sekúndu-
metrar. Þessi munur á vindhraðanum
er ekki merkjanlegur nema á nákvæm-
ustu vindmælum. Segja má þvi aö
árangur Bob Beamons og Carl Lewis sé
unninn næstum við nákvæmlega sömu
skilyrði. Einnig hafa alltaf verið uppi
háværar raddir um þaö, að vind-
St. Etienne
meistari
St. Etienne varð i gær franskur
meistari i knattspyrau, þegar liðið
sigraði Bordeaux 2—1 á heimavelll.
Nantes varð i öðru sæti, gerði jafntefli
1—1 við Nlmes á helmavelli. Bordeaux
varð i þriðja sæti og Monaco fjórða.
Þessi þrjú llð leika i UEFA-keppninni
næsta leiktimabil, St. Etienne i
Evrópubikamum.
hraðinn hafi verið meiri en hinir leyfi-
legu tveir sekúndumetrar þegar Beam-
on náði risastökki sínu 1968.
En Carl Lewis, sem verður tvítugur
1. júli næstkomandi, á lítið lakari ár-
angur við lögleg skilyrði. Hann hefur
stokkið bezt innanhúss 8,49 metra og
8,48 metra en bezt, löglegt, utanhúss
hjá honum er 8,46 metrar. Þarna er
greinilega frábær iþróttamaður á ferð,
sem gaman verður að fylgjast með í
framtíðinni. -hsím.
Pólverjar
ísjöundasæti
Vestur-Þýzkaland sigraði England
68—58 á Evrópumeistaramótinu i
körfuknattleik i Prag i gær. Það er f
keppninni um sjöunda tii tólfta sæti.
Litið skorað i fyrrl hálfleik. ÞJóðverjar
25 stlg en Englendingar 29. Mendel var
stlgahæstur Þjóðverja með 23 stig en
Tatham hjá Englandi með 16 stig.
Þá sigraði Pólland Frakkland 102—
93 (54—39) og má segja að Pólverjar
haft tryggt sér sjöunda sætið með þeim
sigri. Mlynarski var stigahæstur Pól-
verja með 33 stig en Dacoury og
Beugnot hjá Frökkum með 17 stig
hvor. Staðan I keppninni um 7.—12.
sæti er þannig:
Pólland 4 4 0 361—317 8
Frakkland 4 3 1 324—309 7
V-Þýzkaland 3 2 1 202—190 5
England 3 1 2 1 88—205 4
Grikkland 3 0 3 221—239 3
Tyrkland 3 0 3 186—222 3
EIGNAST SVÍAR STANGAR-
STÖKKVARA í HEMSKLASSA?
—Miro Zalar stökk 5,50 m í Bandaríkjunum ívetur
Þegar Sigurður T. Slgurðsson, KR,
fyrrum tslandsmeistari i fimleikum,
stökk yflr fimm metra i stangarstökki f
siðustu viku, vann hann merkt afrek i
islenzkri frjáisfþróttasögu. Rauf fimm-
metra múrinn og það þarf ekki að efa
að eftlrleikurinn verður léttari hjá
honum. Stór afrek framundan hjá
þessum geðfellda fþróttamanni.
Árangur Sigurðar verður til þess að við
förum að fylgjast betur með erlendum
stangarstökkvurum. Fimm metrar eru
að visu ekld mikill árangur á alþjóð-
legan mælikvarða, lika aðeins áfangi
hjá Sigurðl. Hann hefur nú bætt
íslandsmet Valbjarnar Þorlákssonar
frá 1961 um hálfan metra. Valbjöra
stökk 4,50 metra á stáistöng — afrek,
sem likja má að minnsta kosti við 5,50
metra á trefjastöng.
Sviar eiga stangarstökkvara, Miro
Zalar að nafni, sem hefur stokkið 5,50
metra og þeir reikna með að i sumar
komist Zalar i hóp fárra útvaldra af-
reksmanna i stangarstökki. Búast við
5,70 metrum hjá honum i sumar, jafn-
vel enn meiri hæðum. Bezti heimsár-
angurinn i ár er 5,71 metri.
Bjartsýni Svia á frábæran árangur
hins 24ra ára Miro Zalar er skiljan-
leg. Síðustu þrjú árin hefur hann
bætt árangur sinn frá innanhússmótum
um 20 sentimetra þegar komið hefur að
útimótunum. Og i vetur stökk Zalai
5,50 metra innanhúss á móti i Los
Angeles i Bandarikjunum. Hann var
þar við nám í vetur en er fyrir nokkru
kominn heim á ný. Bezti árangur hans
utanhúss er 5,50metrar, sem hann náði
i fyrra. Hann keppti á einu móti utan-
húss i Bandarikjunum 1 vor. Stökk þá
5,30 m. Sigurvegarinn, Anthony
Curran, USA, stökk 5,50 m. Eftir
keppnina bað Zalar um að fá að reyna
aukastökk. Ráin var sett á 5,45 metra
og Sviinn stökk þá hæð mjög léttilega.
„Ég er viss um að stóru hæðirnar koma
i sumar,” sagði Zalar nýlega i viðtali i
Dagens Nyheder. Hann er fjölhæfur
íþróttamaður. Hefur hlaupið 100 m á
11,2 sek.
Eftir rúman mánuð verður stórmót í
Sviþjóð, 7.—8. júli,- og þar verður
stangarstökkið ein af aðalgreinunum.
Sviar hafa fengið ýmsa af beztu
stangarstökkvurum heims til að keppa
við sinn mann. Þar veröur heimsmet-
hafinn Kozakiewicz — heimsmet hans
er 5,78 metrar, sett á ólympíuleikunum
í Moskvu i fyrra — og einnig Frakk-
arnir Vignenon, Houvion, Bellon og
Abada, allt stangarstökkvarar, sem
hafa sveiflað sér yfir 5,70 metra eða
hærra.
-hsim.
Miro Zalar, Svíþjóö, — stefnlr á 5,70 metra i stangarstökidnu i sumar.
Uppskeruhátíð Keflvíkinga
Iþróttafélag Keflavikur heldur eins
konar uppskeruhátið á hverju árl, þar
sem leikmönnum eru veittar viðurkenn-
ingar fyrir framfarir i körfuknattleiks-
iþróttinni og fyrir bezta vitahittni. t ár
fór afhendingin fram i Tjamarlundi
um helgina þar sem Skúli Skúlason,
formaður, afhenti verðlaunin, fagra
bikara, ásamt þvf að leikmenn og gestir
fengju gosdrykkl, kaffi og kökur. Að
lokum ávarpaði Garðar Oddgeirsson,
form. ÍBK, fundarmenn og rómaði
mjög starf ÍK, sem hefur verið til mik-
iilar fyrirmyndar f alla staði. Framfara-
verðlaunin hlutu: mfl. Jón Kr. Gisla-
son, 2. fl. Öskar Nlkulásson, 3. fl.
Freyr Sverrisson, 4. fl. Már Hermanns-
son, minni bolti Egill Viðarsson og
Gunnar Grétarsson, 3. fl. kvenna Krist-
rún Ásgeirsdóttir, 1. fl. Jón Ó. Hauks-
son, bezta vftaskyttan Björn V. Skúla-
son — og eru þau á myndinni að ofan.
- emm.
Islandsmeistarar FH
á sterkt mót á Spáni
—FH-stúlkumar héldu utan í morgun
„Við munum lelka þrjá leikl f ferð-
inni og það hefur verið talað um, að við
leikum vlð meistara Spánar, Júgóslaviu
og Póllands f mótinu,” sagði Kristjana
Aradóttlr, fyrlrliði Íslandsmeistara FH
i kvenna-handknattleiknum. FH-stúik-
uraar héldu til Spánar f morgun og taka
þátt i móti, sem hefst f Valencla á
föstudag.
FH sigraði með yfírburðum á
islandsmótinu i vetur en keppnin á
Spáni verður erfið fyrir stúlkurnar ef
það verða meistaralið Júgóslavlu, Pól-
lands og Spánar, sem leika þar ásamt
FH. Það var ekki komið á hreint í gær.
Sigur Dana
Danmörk sigraði Ítaliu 2—0 i gær I
kaupmannahöfn i landsleik i knatt-
spyrau, leikmenn 21 árs og yngri.
Mlchael Jensen skoraði bæði mörk
Dana úr vftaspymum.
Bjöm Borg
íundanúrslitin
„Þetta er jafnasti leikur minn hingað
til á mótinu, mlldl barátta um stigin og
oft munaði lltlu. Ég er ánægður með
leiklnn,” sagðl Björn Borg eftlr að
hann hafðl sigrað Ungverjann Baiazs 6-
3, 6-3 og 6-2 á franska meistaramótinu
i tennls i Paris i gær.
Victor Pecci, Paraguay, sigraði unga
Frakkann Yannick Noah 3-6, 6-4, 6-4
og 6-4 i gær. 1 undanúrslitum á
fimmtudag leika þeir Björn Borg og
Pecci. Bandarikjamennirnir Jimmy
Connors og John McEnroe leika við
Jose Luis Clerc, Argentinu, og Ivan
Lendl, Tékkóslóvakiu, i dag. Meiri
likur eru á að þeir bandarisku sigri i
leikjum sinum. Ef svo fer leika þeir i
hinum leiknum i undanúrslitum.
Tékkar unnu
Tékkar sigruðu ttali 100—83 (53—
35) á Evrópumótlnu i körfuknattleik i
Prag i gær. Það var f keppnlnnl um
1.—6. sæti. Brabenec var stigahæstur
Tékka með 38 stlg en Vlllalta hjá
itölum með 20 stig.
Mótinu á Spáni lýkur á þriðjudag, 9.
júní. Eftir það halda FH-stúlkumar til
Ibiza í 2ja vikna sumarfri. Nær allar
heztu handknattleiksstúlkur FH taka
þátt i förinni, tólf að tölu. FH-
hópurinn telur 15 manns og verður
Kristján Arason fararstjóri.
-hsim.
Frá meistaramótinu i gær. Guðrún fremst, þá Laufey.
DB-mynd S.
GUÐRUN 0G SVEIT
FH MEISTARAR
Guðrún Karlsdóttir, UBK, varð
íslandsmelstari i 3000 m hlaupl á MÍ,
sem hófst á Laugardaisvelli i gær.
Hljóp á 10:46.3 min. Laufey Kristjáns-
dóttlr, HSÞ, varð önnur á 10:57:5.
Linda B. Loftsdóttir, FH, þriðja á
11:38.3, Kristin Lelfsdóttir, ÍR, fjórða,
'á 11:40.3 og Rakel Gylfadóttir, FH,
flmmta á 12:24.4 min.
i 4 x 800 m boðhlaupi varð sveit FH
íslandsmelstari á 8:25.2 min. i sveltinni
hlupu bræðurnir Slgurður og Magnús
Haraldssynlr, Viggó Þórisson og
Róbert McKee. Svelt ÍR varð önnur á
8:37.9 min. en nokkrir þekktir
hiauparar ÍR gátu ekki keppt. Svelt
UBK varð þriðja á 8:40.3 mfn. og sveit
HSKfjórðaá 8:53.6 mín. -hsim.