Dagblaðið - 24.06.1981, Page 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ1981.
DB á ne ytendamarkaðí
/5
Sl
Oóra
Stefánsdóttir*
Eggjaskortur til næsta vors
s
Nokkurs skorts á eggjum hefur
gaett viða á landinu í vor, mest fyrir
norðan. Jónas Haildórsson í Svein-
bjarnargerði á Svalbarðsströnd sagði* 1 2 3
nýlega i viðtali við Dag á Akureyri að
búast mætti við að þessi skortur yrði
viðloðandi fram undir næsta vor.
Ástæðurnar sagði hann vera lágt verð
á eggjum og fóðurbætisskatt. Vegna
þessara ástæðna endurnýjuðu
bændur ekki hænur sínar sem skyldi
og væru þær orðnar gamlar og hálf-
geldar. Þó menn bregði hart við núna
og endurnýi hænsnin tekur alltaf
nokkurn tima að koma öllu i gagn
aftur og á meðan skortir egg á
borð neytenda.
-DS.
„Könnun verð-
lagsstofnunar
alls ekki
marktæk”
segja umboðsmenn verðlista
Vegna verðkönnunar Verðlags-
stofnunar, sem birtist í blaðinu í gær,
hafa tveir umboðsmenn erlendra
verðlista sent okkur eftirfarandi
athugasemdir:
,,í verðkynningu Verðlagsstofn-
unar, serr send var fjölmiðlum nú um
helgina, ej leitazt við að svara
spurningunni: „Er hagkvæmt fyrir
neytendur að kaupa vörur gegnum
póstverzlun?” Athugað var sérstak-
lega hvernig fatnaður kæmi út i
þessari könnun enda væri hann
u.þ.b. 90 af sölu verðlistanna. í til-
efni af þvi viljum við undirritaöir,
forsvarsmenn tveggja verðlista i
könnuninni, taka fram eftirfarandi:
1. í verðsamanburðinum voru verð á
32 tegundum fatnaðar athuguð.
Þar af voru hvorki meira né
minna en 19 brjóstahöid, nær öll
sömu gerðar. Þ.e. brjóstahaldarar
vógu 60% í verðkönnuninni, þrátt
fyrir að þeir séu innan við 1 % af
vöruúrvali verðlistanna.
2. í flestum tilfellum má fá keyptar
sambærilegar vörur og eru teknar
f könnuninni á mun lægra verði í
verðlistunum.
3. Af hagkvæmnis- og hagræðingar-
ástæðum fyrir viðskiptavini
okkar hefur sú leið verið farin að
sama álagningarprósenta gildi
fyrir allan fatnað óháð þvi hve há
aðflutningsgjöld eru. Nær allur sá
fatnaður sem valinn var í könnun-
inni bar lægstu hugsanlegu
aðflutningsgjöld, sem kemur
óhagstæðar út fyrir verðlista-
verðið.
t. 1 könnuninni er enginn sá
fatnaður sem langmest er keyptur
og er í mestu úrvali i verðlistun-
um, svo sem kjólar, jakkar,
kápur, skyrtur, blússur o.fl. o.fl.
5. Ávallt er tekið hæsta verð úr verð-
lista, þótt sama vara sé til á mis-
munandi verði, en meðalverð i
verzlunum.
6. Verðið, sem gefið er upp sem
„verð i verðlistum”, er reiknaö út
frá gengi krónunnar þann 1. júni
sl. eða skömmu eftir gengis-
fellingu. Áhrif gengisbreytingar-
innar koma að fullu fram í
verðlistaverði en ekki í verzlunar-
veröi. Ef reiknað væri út frá sama
gengi væri t.d. hagkvæmara að
kaupa skófatnað úr verðlista.
Af framansögðu má ljóst vera að
könnunin er alls ekki marktæk sem
heildarkönnun á hagkvæmni verzl-
unar gegnum verðlista. f
verðkönnunum sem þessum kemur
oft fram mikill og illa útskýranlegur
verðmunur á einstökum vörutegund-
um og verður það sérstaklega kannað
í þessu tilfelli.
Að lokum viljum við hvetja
viðskiptavini okkar til að fara eftir
ráðleggingum Verðlagsstofnunar og
gera sjálfir verðsamanburð.
NEYTENDASAMTÖKIN
KOMIN í ÞJÓÐLEK)
—Opna skrifstofu í Austurstræti 6
Gamlar og hálfgeldar, ha? Hver segir þad?
DB-mynd R.Th.
Þessa dagana eru Neytendasamtök
in að flytja búferlum. Hafa þau
fengið húsnæði sem er í mun meiri
þjóðleið heldur en þau hafa verið i
hingað til. Samtökin hafa fengið inni
á annarri hæð i Austurstræti 6. Þau
hafa verið sl. 10 ár til húsa á Baldurs-
götunni. Síma- og afgreiðslutími er
daglega frá kl. 3—5.
„Þetta breytist kannski eitthvað
eftir að við erum fluttir,” sagði
Reynir Ármannsson, formaður sam-
takanna, er hann kom við hjá
neytendasíðunni.
Hann kynnti nýjan starfsmann
samtakanna fyrir umsjónarmönnum
neytendasfðunnar. Það er Guðsteinn
Guðmundsson, sem tekið hefur við
störfum Arnar Bjarnasonar sem
Reynlr Ármannsson, formaflur Neyt-
endasamtakanna, og nýl starfs-
maflurlnn, Guflsteinn Guðmundsson.
DB-mynd Gunnar örn.
starfað hefur fyrir Neytendasamtök-
in f nokkur ár.
„Það hefur orðið gjörbreyting í
öllum neytendamálum nú sfðastliðin
ár. Það gerist nú æ oftar að verzlanir
benda óánægðum viðskiptavinum á
samtökin og segjast munu beygja sig
undir úrskurð þeirra, ef upp kemur
vandamái milli viðskiptavina og
verzlana,” sagði Reynir.
Guðsteinn, sem nýlega er tekinn til
starfa, minntist á vandamál sém upp
kæmu eftir fermingarnar. Fólk vill
fá að skila aftur ýmsu því er barnið
fékk í fermingargjöf og fá það greitt (
peningum. Viðskiptavinirnir eiga
erfitt með að sætta sig við ef kaup-
maðurinn vill ekki umyrðalaust
greiða vöruna til baka út í hönd. —
Samkvæmt lögum eru kaupmenn alls
ekki skyldugir til þess að greiða
ógallaða vöru til baka með
peningum. Annað er hvað þeir gera
ef þeir eru sérlega liðlegir. Þá minnt-
ist Reynir á að fyrir nokkrum árum
kom Karnabær sér upp eigin
kvörtunarþjónustu og leysir þannig
öll vandamál sem upp koma milli
verzlunar og viðskiptamanna. Tðlu-
vert ber á því að kvartanir koma upp
vegna fatnaðar sem keyptur er hjá
tízkuverzlunum. Ofter mjög erfitt að
skera úr i slfkum málum.
-A.BJ.
til samanburöar á heimiliskostnaði
Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamiega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi i upplýsingamjölun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar
fjölskyldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nvtsamt heimilis-
tæki.
Nafn áskrifanda
i
i
i
I
.1
í
1
I
i
I
I Sími
I------------------------
I
I Fjöldi heimilisfólks.
Heimili
I
Kostnaður í maíroánuði 1981
'i
____________________________
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
W I ffíiV