Dagblaðið - 24.06.1981, Qupperneq 6
6.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ1981.
Brlent
Erlent
Erlent
Erlent
Ný ríkisstjórn mynduð í Frakklandi:
Kommar fengu fjóra af
nýju ráðherrastólunum
Kommúnistar fengu fjögur sæti I
hinni nýju rikisstjórn Francois Mitt-
errand Frakklandsforseta er endan-
lega var gengið frá skipan stjómar-
innar f gær. Þá höfðu sósialistar og
kommúnistar gert meö sér samkomu-
lag um innanrfkis- og utanrikismál.
Ráðherrarnir fjórir eru fyrstu
kommúnistarnir sem fá sæti f ríkis-
stjórn einhvers hinna stærri vestrænu
rfkja eftir lok sfðari heimsstyrjaldar-
innar.
Samtals verða ráðherrarnir 44 i
hinni nýju ríkisstjórn Frakklands og
auk sósialista og kommúnista eiga
vinstri radikalar aðild aö stjórninni.
Sósialistar, sem fengu hreinan
meirihluta á þingi í nýafstöðnum
þingkosningum, halda sjálfir öllum
helztu ráðherraembættunum svo sem
utanrikis- og innanríkismálum, fjár-
málum og varnarmálum.
Pierre Mauroy, forsætisráðherra f
stjóm Mitterrands, sagði i gær að
hann sæi enga ástæðu til þess að
skipan kommúnista 1 fjögur ráð-
herraembætti ætti eftir að valda
áhyggjum utan Frakklands.
Helmut Schmidt, kanslari V-
Þýzkalands, sagðist i gærkvöldi ekki
telja að skipan kommúnistanna
þyrfti að hafa erfiðleika í för með sér
George Marchals.
Plerre Mauroy.
fyrir Efnahagsbandalag Evrópu eða
samskipti Evrópulanda við Bandarik-
in.
Mauroy sagði að skipan kommún-
istanna i stjórnina væri eðlilegasta
leiðin til að heiðra þá sem átt hefðu
þátt i sigri Mitterrands og sósfalista.
Georges Marchais, leiðtogi komm-
únista, sagði í sjónvarpsviðtali í gær-
kvöldi að kommúnistar og sósfalistar
hefðu ólfkar forsendur I Afganistan-
málinu en franskir kommúnistar hafa
sem kunnugt er fylgt þar Moskvu-lín-
unni.
Varðandi Pólland, Miðausturlönd
og eldflaugabúnað Sovétmanna i
Evrópu var i samkomulagi flokkanna
notað orðalag sem túlka mátti á ýmsa
vegu og virtust kommúnistar ekki, í
samkomulaginu, hafa skuldbundið
sig til að láta af stuðningi sínum við
ráðamenn f Kreml.
Alcxandcr Haig, utanrfkisráðherra Bandarfkjanna, hefur verið mjög á faraldsfæti að I hvor öðrum hina mestu kurteisi enda fór ákaflega vel á með þeim að sögn og Banda-.
undanförnu. Myndin er tekin við heimsókn hans til Kfna fyrir skömmu er hann hitti rfkjamenn hafa nú aflýst vopnasölubanni á Kfnverja við afskaplega litinn fögnuð
Bo Yibo aðstoðarutanrfkisráðherra Kfnverja að máli. Ráðherrarnir áttu erfitt með' Sovétmanna.
að koma sér saman um hvor þeirra ætti að setjast á undan. Þannig viídu þeir sýna |
TÖKUM AÐ
OKKUR
AÐ SLÁ LÖÐIR
Uppl. í síma
45773 og
10348 eftir kl. 18.
VARAHUm
SMURSTÓP
bílagler
málun
NÝKOMIÐ:
Kílgúmmí,
verkstæðis-
tjakkar
ásamastaö Laugawegi 118-Sími 22240
ILL VILHJÁLMSSON HE
Nýja hjartað
gengur illa
—Átján ára gömul sænsk stúlka
berst við dauðann eftir að hafa
fengið nýtt hjarta íLondon
Átján ára gömul sænsk stúlka, Lotta
Wangström, berst nú við dauðann eftir að
hafa gengizt undir skurðaðgerð f London
þar sem skipt var um hjarta í henni.
Fyrst f stað voru læknarnir mjög bjart-
sýnir eftir aðgerðina sem þótti takast mjög
vel. Lotta fékk hjarta úr 28 ára gömlum
manni sem látizt hafði af völdum um-
ferðarslyss.
Þegar Lotta vaknaði nokkrum klukku-
stundum eftir aðgerðina var hún glöð í
bragði og hress: ,,Ég vildi helzt fara fram
úr og hlaupa. Mér líður prýðilega. Ég er
bara hungruð og gæti hugsað mér að fá
kjötbollur.”
Um það bU sem foreldrar Lottu áttu að
fá að heimsækja dóttur sína hætti hjarta
hennar að slá og stöðvaðist siðan hvað eftir
annað. Læknum tókst aðeins að halda þvf
gangandi með þvi að gefa Lottu rafstuð.
Aðgerðin fór fram á Harfield sjúkrahús-
inu og þar höfðu áður farið fram nitján
hliðstæðar skurðaðgerðir og læknarnir þar
hafa áður ráðið við vandamál svipuð
þessu. Talið er að það ráðist á aUra næstu
dögum hvort Lotta komi tU með að hafa
not af hinu nýja hjarta.
Lotta i lelð i Harfield-sjúkra-
húslð. Elnl Iffsmögulelkl hennar
var fólginn i þvt að fi nýtt
hjarta.
Sakharov
heiðurs-
doktorí
Noregi
Sovézki vísindamaðurinn og andófs-
maðurinn Andrej D. Sakharov verður
gerður að heiðursdoktor við háskólann
2. september næstkomandi í tengslum
við árshátið skólans. Sakharov hefur
ekki verið frjáls ferða sinna í Sovétríkj-
unum undanfarin ár vegna mannrétt-
indabaráttu sinnar. Hann verður
gerður að heiðursdoktor I eðlisfræði.
„Tarsan”
reynirað
yngja sig
Hinn 77 ára gamU bandaríski kvik-
myndaleikari Johnny WeissmilUer er
ekki of hrifrnn af því hvað hann er tek-
inn aö gamlast. WeismúUer öðlaðist á
sinum tfma heimsfrægð fyrir leik sinn í
Tarsan-kvikmyndunum en það hlut-
verk hlotnaðist honum ekki sízt fyrir
mikinn og glæsUegan vöxt sinn.
WeismúHer er nú í Mexíkó þar sem
hann gengst undir meðferð með Gero-
vital-töflum, sem bannaðar eru í
Bandarfkjunum. Því er haldiö fram að
töflur þessar eigi að halda mönnum
ungum.
Hann er nú þegar mikið betri, segir
Marfa, kona hans.
Sonja
prinsessa
fótbrotn-
aði
Sonja, krónprinsessa þeirra Norð-
manna, fótbrotnaði um daginn. Af
þeim sökum hefur hún orðið að aflýsa
opinberum móttökum og öðrum
skyldustörfum sinum að undanförnu.
Mál Williams
fyrirrann-
sóknarrétt
Dómari kvað f gær upp þann úr-
skurð að nægUegar ástæður lægju tU
þess að rannsóknarréttur kannaði
hvort ákæra bæri ljósmyndarann
Wayne WiUiams fyrir morðiö á einu
hinna 28 fórnarlamba Atlanta-morð-
anna svonefndu. WUUams var handtek-
inn sfðastUðinn sunnudag í sambandi
við morðið á síðasta fórnarlambinu,
Nathaniel Carter.
Bush
rœðir við
Mitterrand
Bush, varaforseti Bandarfkjanna, er
kominn tU Frakklands og mun 1 dag
eiga viðræður við hinn nýja Frakk-
landsforseta, Francois Mitterrand. Tal-
ið er að skipan fjögurra kommúnista f
stjóm Frakklands kunni að varpa
nokkrum skugga á viðræður þeirra.