Dagblaðið - 29.06.1981, Side 10

Dagblaðið - 29.06.1981, Side 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ 1981. d Erlent Erlent Erlent Erlent I / ' .............................. Sjónvarpstæki efst á vinsældalista neytenda í Kína: Kínverjar snúa sjónvarps- loftnetunum að ífong Kong —„Lélegur sósíalismi sem leyfir fólki ekki að ákveða hvað er gott og hvað er slæmf’ Reiðhjól, armbandsúr og sauma- vélar hafa lengi verið efst á óskalista almennings í Kína. Árið 1975 var manni t.d. alltaf sagt hve mörg reið- hjól og saumavélar væru til í þeim kommúnum sem ég heimsótti þá. Kommúna samsvarar nokkurn veginn til sýslu hér á landi. Flest heimili höfðu þá yfír einu eða fleiri reiðhjólum að ráða og saumavélar voru til á rnörgum heimilum. Það var merki þess að efnaleg staða kommún- unnar var góð. Og svo átti kommún- an ef til vill nokkur sjónvarpstæki sem komið var fyrir í samkomusölum víðs vegar um kommúnuna. Menn voru þá sælir og glaðir með sitt og kvörtuðu ekki þótt ganga yrði smá- spöl til þess að •’eta séð uppáhalds- þáttinn i sjónvarpinu. En nú er komiö annað hljóð í strokkinn. Sjónvarpstæki eru komin efst á vinsældalista neytenda næst á undan rafmagnsviftum, segulbands- tækjum, ísskápum og þvottavélum. Á síðustu fjórum árum hefur sjón- varpstækjaeign Kínverja aukizt úr 630 þúsund tækjum í rúmlega sjö milljónir, flest litfl svarthvít tæki. Af þessum sökum hefur mikil gróska hlaupið í sjónvarpstækjaiðn- aðinn í Kína og nú eru í landinu 53 verksmiðjur sem framleiða sjón- varpstæki. Nokkrar þeirra hafa verið reistar í samvinnu við Japani og eru Magnús K. Hannesson skrifar um Kfnaför tækin sem þar eru sett saman seld undir japönskum vörumerkjum. í stórverzlun við aðalverzlunargötuna í Beijing kannaði ég verð á sjónvarps- tækjum. Þar kostuðu 19 tommu svarthvit tæki 400 Yuan, sem jafn- gildir um 1600 ísl. kr. Japönsku tækin eru dýrari og í þessari verzlun \öur l>rr torti sauniatélar lielsta sloll kimerskra ljölsk\Idua, en uii eru þaö sjón- \arpslækin. Mao gainli er í lieiöri lialöur á þessu heimili og l\rir olan lianii hangir kimersk „reikniuT', ahakus, á legttnum. kostaði Sanyo litsjónvarpstækf 2500 Yuan (10 þúsund ísl. kr.) eða 40-föld mánaðarlaun verkamanns en meðal- laun verkamanna i Kína eru um 60 Yuan á mátluði. Vegna þessa háa verðs eru litlu, kínversku tækin vin- sælust og eflaust langt i það að á kín- verskum heimilum verði almennt Iit- sjónvarpstæki. Þessi sjónvarpsvæðing hefur svo leitt það af sér að kínverskar sjón- varpsstöðvar hafa orðið að gera miklar breytingar á dagskrá sinni og bætt hana verulega, eftir því sem heimildir herma. Um helmingur dag- skrártímans er hreint skemmtiefni en hinn helmingurinn er fréttir, fræðslu- myndir og efni fyrir börn. Vinsælasta efnið eru kvikmyndir sem bannað var að sýna meðan fjórmenningaklíkan réð ríkjum í Kína á tímum menn- ingarbyltingarinnar. Þá eru gaman- þættir margs konar mjög vinsælir og myndir sem teknar eru með falinni myndavél. M.a. var fyrir stuttu ljóstrað upp um háttsetta embættis- menn, sem notuðu bifreiðar ríkisins til innkaupaferða fyrir fjölskyldur sinar. í upphafi þessa árs voru svo sjónvarpsauglýsingar leyfðar og eru þær eins og hér á landi á milli dag- skrárliða. En auðvitað er erfitt að gera öllum jafn vel til hæfis í svo stóru landi sem Kína. í Guangzhou (Canton) sagði opinber starfsmaður okkur fimm- menningunum að íbúarnir þar gerðu mikið að þvi að snúa loftnetum sinum þannig að þeir næðu útsend- ingum sjónvarpsstöðvanna í Hong Kong. Yfirvöld hafa reynt að sporna við þessu og mönnum verið upp á lagt að snúa loftnetunum ekki þannig. Hefur lögreglan gengið í hús og látið menn snúa loftnetunum frá Hong Kong, en lögreglumennirnir hafa varla verið horfnir fyrir næsta horn þegar menn hafa læðzt upp á þök aftur og snúið loftnetunum einu sinni enn. Og þetta sagði hann kunn- ingi okkar að stafaði eingöngu af því að dagskrá kínverska sjónvarpsins væri ekki nógu góð og þessari áráttu fólks yrði ekki breytt fyrr en dagskrá- in yrði betri. En aftur á móti má svo segja að það er lélegur sósíalismi sem Sjónvarpstæki eru el'tirsóttustu heimilistækin i Kína i (lag. Ilér spá tveir Kínverjar i verð og gæöi. leyfir fólki ekki að ákveða sjálfu hvað er gott og hvað er slæmt. ” Fól k verður að fá að velja og hafna sjálft,” sagði þessi opinberi starfs- maður. Þetta hefði enginn Kínverji vogað sér að segja fyrir nokkrum árum. Segir þetta sína sögu um þær miklu breytingar sem eiga sér stað á kínversku þjóðlífi um þessar mundir. - MKH KAPPREIÐA veömái Landssamband hestamannafélaga Fjórðungsmót á Suðurlandi VERÐ MIÐA AÐEINS KR.20.- Aðalsteinn Aðalsteinsson, tamningamaður, Þannig veðja ég. Þetta er fuðvelt. Geymið spána og berið saman við aðrar spár. Allir geta verið með. Miðar seldir hjá umboðsmönn- um, og hestamannafélögum. 250 metra skeið, úrslit Roö Nafn hests 1 Skjóni 2 Villingur 3 Frami 350 metra stökk, úrslit Roö Nafn hests 1 Gjálp 2 Haukur 3 Stormur Getraun fyrir kappreiðar á fjórðungsmóti á Suðurlandi á Hellu dagana 2.-5. júlí 1981. Geta á um nöfn þriggja fyrstu hesta. A í 250 m skeiði. B. í 350 m stökki. Móttökustöðvar: Hlíðartún 22, Höfn, Hornafirði, Skaftárskáli, Kirkjubæjarklaustri, Víkurskáli, Vik. Kf. Skaftf., Vik. Útibú Kf. Þórs, Skarðshlíð, Söluskálinn, Steinum, Söluskáli K. R., Hvolsvelli, Verslunin Björk, Hvolsvelli, Benslnafgreiðsla Kf. Þórs, Hellu, Verslunin Grund, Flúðum, Félagsheimilið Árnes, Sundlaugin Brautarholti, Skeiðum, Fossnesti, Selfossi, Þrastarlundur, Grímsnesi, Útibú Kaupfélags Árnesinga, Laugarvatni. Tjaldmiðstöðin, Laugan/atni, Eden, Hverageröi, Allabúð, Hveragerði, Skálinn, Þorlákshöfn, Þverholt, Mosfellssveit, Húsgagnaverslun Á. Guðmundssonar, Skemmu- vegi 4, Kópavogi, Rakarastofan Fígaró, Hamraborg, Verslunin ösp, Hafnarfirði, Biðskýlið, Hvaleyrarholti. i Reykjavík: Flestirsöluturnar ÚTBOÐ Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir lil boðum í JARÐ VEGSSK/PT/ í húsgrunnum við Eiðsgranda. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu VB Suðurlandsbraut 30, þriðjud. 30. júní gegn 500 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 7. júlí kl. 14 á sama stað- „ .. ... Stjorn verkamannabustaða í Reykjavík. Verzlunin Sporid - Grímsbæ Hannyrðavörur í miklu úrvali, lopi og garn á gamla verðinu, ódýrar, gjafavörur, sœngutfatn- aður, handklæði, sólfatnaður fyrir börn, sumar- bolir fyrir fullorðna, gallar úr bómull, síðar peysur, verð„ótrúlegt”. Sparaðu þér sporin og fleira. Barna-, gjafa-, og hannyróaverzlunin SPORIÐ Grimsbæ v/Bústaóaveg. - Simi82360.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.