Dagblaðið - 29.06.1981, Blaðsíða 14

Dagblaðið - 29.06.1981, Blaðsíða 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ1981. FÓLK Náttúra módel 1972 árM 1981. Talið frá vinstri: Shady Owens, skur i fangi Karls Sighvatssonar, Ólafur Garðars- son, Sigurður Árnason og Björgvin Gíslason. DB-myndir: Einar Ólason. talin: Ólöf Harðardóttir, Reykjavik Rythm Section, Grýlumar, Mezzo- forte, Náttúra, Björgunarsveitin, Combo Snorra Snorrasonar, Magnús Eiriksson Blús Band, Gunnar Þórð- arson, Karl Sighvatsson, Laufey Sig- urðardóttir, Sigurður Rúnar Jóns- son, Orghestarnir, Steinunn Ragnars- dóttir, Egill Ólafsson og svo kannski Pálmi Gunnarsson og Friðryk. Já, fyrir utan heiðursgestinn Shady Owens. En látum hana eiga loka- orðin: ,,Ég vona að allir mætí og skemmtið ykkur vel.” -SA. Rcett við heiðursgestinn á styrktarhljómleikunum í Þjóðleikhúsinu í kvöld: „Fólk heldur að ég sé að grínast þegar ég segi að lag með mér hafi komið út í S-Afiíku, ” segir Shady Owens söngkona , ,Kalli Sighvats hringdi í mig 1 lok mai og spurði hvort ég væri til 1 að koma og syngja með gömlu Náttúru á þessum hljómleikum. Ég sagðist vera þaö, framarlega sem allir kæmu. Sfðan heyrði ég ekkert aftur i Kalla fyrr en nú um miðjan mánuðinn að hann hringdi og sagði að allt væri klappað og klárt.” Það er söngkonan Shady Owens sem hefur orðið en hún er meðal þeirra tónlistarmanna sem fram koma á styrktarhljómleikum fyrir M.S. (Multiple Sclerosis) félag íslands i Þjóðleikhúsinu i kvöld og annað kvöld. Þeir hefjast kl. 20 bæði kvöldin og er dagskrá þeirra mjög fjölbreytt eða allt frá klassík upp i rokk. En það er Shady Owens sem ætlun- in er að ræða við en hún kom hingað gagngert frá London, þar sem hún er búsett, til að syngja á hljómleikun- um. Hvað er Shady að gera þessa dagana? Með breiðskffu f maganum „Slðastliðið vor og sumar söng ég með Suzi Quatro en í byrjun vetrar gerði ég lítíð þvi ég var að jafna mig eftír uppskurð. Núna er ég að vinna að stórri plðtu, sem kannski kemur út i sumarlok. Ég hef verið að vinna í henni í hjáverkum milli þess sem ég hef verið að syngja bakraddir sem session-söngkona. Lögin á plötunni eru eftir þá Steve Voice og Pete Yellowstone en þeir útsetja þau einnig og spila á gitara. Aðrir tónlist- armenn á plötunni verða stúdíó- menn. Það er engin eiginleg hljóm- sveit á bak við mig. Þetta er MOR- tónlist, popp, en einnig bregður fyrir diskói og rokki. Auðvitað er ég bjart- sýn á plötuna og ef vel gengur verður henni fylgt eftir með hljómleikum og sjónvarps- og útvarpskynningum.” Lftil plata f Frakklandi.... „Ég hef starfaö með þeim Steve og Pete i tvö ár og þeir sömdu m.a. fyrir mig lagið Don’t go breaking my heart now. Það var sett i samkeppnina um Eurovision lag Englands i Eurovis- ion-keppninni og komst 1 20 laga úr- slit. Mér fannst það góður árangur þvi um 500 lög voru með 1 upphafi. Fyrir nokkrum vikum kom út lltil plata meö þessu lagi meö okkur Steve Voice i Frukklandi, en við gáfum hana út sem dúett undir nafn- inu Private Line. Hún er gefrn út á Carriere merkinu, en stóra platan mín á Pye. Nei, ég er ekki samnings- bundin neinu útgáfufyrirtæki og hef ekki verið. 700 eintök af plötunni hafa verið send hingað og þangað um heim til kynningar. Og vel má vera að hún veröi einnig gefin út annars stað- ar.” ... og önnur í Suður-Afrfku „Milli jóla og nýárs 1 vetur söng ég síðan inn á plötu lag eftir hjón sem léku á öll hljóöfærin. Það er diskólag og heitir Shake your funky thing. Nýlega kom það út 1 Suður-Afríku en það land er stór markaður. Plötur Suzi Quatro hafa til að mynda selzt þar í milljóna upplögum. Fæstir vita hins vegar af þessum markaði, halda að ég sé að grínast þegar ég segi að plata með mér hafi komið þar út. Ef vel gengur þar verður lagið kannski gefið út í fleiri löndum, e.t.v. Frakk- landi og Spáni.” Erfitt að vinna sór sess „Hér áður fyrr, þegar ég var að byrja að syngja fannst mér svo lítið mál að gefa út plötu. Bara að fara inn í stúdlóið, syngja og gefa lagið síðan út. Nú fyrst skil ég um hvað málið snýst. Fyrst er að semja lagið og síðan taka það upp. Þá hefst tauga- stríðið hvort platan verði pressuð. Síðan hvort hún verði gefin út, og þegar hún er komin á markaðinn, hvort hún verði leikin í útvarpi. Útvarpsspilun er mikilvægt atriði i Bretlandi. í hverri viku kemur út ara- grúi af litlum plötum. Diskótekararn- ir á hverri stöð halda fund einu sinni i viku með forráðamönnum stöðvar- innar og hlusta þá á þær plötur sem út hafa komiö. Þeir hafa ekki tíma tíl aö hlusta á hvert lag tíl enda, heldur láta kannski fyrstu mlnútuna nægja. Ef þeim líkar lagið velja þeir það til spilunar þessa vikuna. Lögin sem eru valin eru síðan leikin allan daginn og þetta er góö auglýsing. Mest er um vert að komast inn hjá BBC. Seljist platan það vel aö hún nái inn á vin- sældalistana og sé síðan að stökkva upp listann viku eftir viku kemst lagið i sjónvarpsþáttinn Top of the Pops. Sá þáttur er einu sinni i viku og þar eru leikin vinsælustu lögin hverju sinni og þau lög sem taka mestu stökkin. Það er bezta auglýsing sem hægteraðfá.” Stefni á sóló-feril „Þótt ég hafi sungið mikið bak- raddir hjá öðrum söngvurum stefni ég ekki að þvi að verða session söng- kona. Stefnan hefur verið sett á sóló- feril. Ég hef þegar gefið út fjórar litl- ar plötur en þær hafa ekki gengið nógu vel. Kannski gengur dæmið upp núna, kannski ekki. Ég vinn mest í Red Bus stúdióinu i London, en Gunni Þórðar og Bjöggi Halldórs hafa unnið þar. Eiginmaður minn, Geoff Calvert, vinnur í Red Bus. Þeir Steve og Pete eru færir náung- ar, þeir sömdu m.a. lagið Feels Uke I’m in love fyrir Kelly Marre. Það komst i efsta sæti vinsældalista Bret- lands í fyrra. Sjálf hef ég sungið bakraddir með KeUy á hljómleikum f klúbbum.” Náttúra árgerð 1972 „Ég hugsa að það veröi gaman að syngja með Náttúru 1 Þjóðleikhús- inu, þótt ég myndi ekki gera það nema svona einu sinni. Þessi hug- mynd, að endurstofna Náttúru fyrir eina hljómleika, hefur áður skotið upp kolUnum en ekki orðið aö veru- leika fyrr en nú. Náttúra verður skipuð þeim sömu og voru í henni er platan Magic Key kom út 1972: KaUi á orgeUð, Bjöggi Gísla á gitar, Óli á trommur og Siggi á bassa. Við spilum nokkur lög sem við vorum þá með á prógramminu, þó ekki lög af plöt- Shady Owens: Með stóra plötu i vinnslu og tvser Htiar nýkomnar út unni, og svo einhver ný,” sagði Shady Owens. Sem fyrr getur hefjast hljómleik- arnir klukkan 20 og er forsala að- göngumiða í Karnabæ. Miðaverð er 100 krónur. Dagskráratriði eru eftir- fleira , F0LK Dr. Gunnar og bróður- betrungarnir Kommissarinn Sverrir Hermanns- son alþingismaður og Höskuldur Ólafsson bankastjóri Verzlunarbank- ans eru á öndverðum meiði við dr. Gunnar Thoroddsen forsætisráö- herra á mörgum sviðum og einkum eftir stjórnarmyndun dr. Gunnars. Aftur á móti eru þeir Halldór Her- mannsson útgerðarmaður á ísafirði, bróðir Sverris, og svo Jónas Ólafs- son á Þingeyri, bróðir Höskulds, mikhr stuðningsmenn dr. Gunnars i póUtíkinni. Þessi skipting bræðranna i tvö horn barst í tal á fundi með for- sætísráðherra fyrir skömmu. Dr. Gunnar brosti við og sagöi: Þeir HaUdór og Jónas eru miklir bróður- betrungar, blessaðir! Ávarp til Islendinga Ólafur Jóhann ífiríðum flokki „íslenzka þjóðin verður að snúast gegn áfengi svo sem öörum fikniefn- um. Bæði er þörf viðhorfsbreytingar einstakUnga og aðgerða af hálf u sam- félagsins. öllum ber að leggja sitt af mörkum. Við hvetjum fólk til að endurskoða áfengisvenjur sínar og viðhorf til vín- neyzlu, draga úr eða hafna henni al- gerlega.” Svo segir í Ávarpi tíl ís- lendinga sem birtist í Morgunblaðinu fyrir stuttu. Undir hana rituðu nöfn sín forseti íslands, Vigdís Finnboga- dóttír, biskup íslands, herra Sigur- bjöm Einarsson, 49 þingmenn og svo Ólafur Jóhann Sigurðsson, rit- höfundur. Það er ekki amalegt fyrir Ólaf Jóhann að vera jafnað saman við helztu fyrirmenn þjóðarinnar, forseta Iýðveldisins og biskupinn. Plat-Presley á þjóðhátíð Mikið verður um dýrðir á þjóð- hátíðinni í Vestmannaeyjum að þessu sinni og ekkert til sparað til að gera hátíðina sem glæsilegasta. Meðal þeirra, sem troða upp á hátíðinni að þessu sinni, er banda- ríski skemmtikrafturinn Jack Elton, en sá þykir ótrúlega líkur Elvis sáluga Presley og á það jafnt við um útlit, hreyfingar og söngrödd. Elton þessi hefur komið víða fram og hermt eftir rokkstjömunni og oftast við góðan orðstír. Á þjóðhátíðinni mun hann njóta aðstoðar Brimklóar en ekki er vitað hvort Elli prestsins verður honum innan handar. Fleira , F0LK

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.