Dagblaðið - 29.06.1981, Blaðsíða 27

Dagblaðið - 29.06.1981, Blaðsíða 27
„Fatlað fólk, eða þeir sem vinna fyrir fatlaða, sér um allt efni í þættin- um,” sagði Sigurður Magnússon, framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, um útvarpsþátt í kvöld. Þátturinn nefnist íþróttir fatlaðraog hefst klukkan 22.35. „Þorbjörn Sigurðsson tækni- maður hjá útvarpinu er kynnir og stjórnandi upptöku. Að öðru leyti eru fatlaðir sjálfir flytjendur eingöngu. Þannig verður t.d. á milli atriða leikin tónlist eftir Gunnar Guðmundsson, af honum sjálfum. Gunnar er alblindur og einhentur. f þættinum kemur fram um tugur manns, bæði börn og fullorðnir. Við reyndum að byggja þáttinn þannig upp að sem mestrar fjölbreytni gætti og segja þeir mér hjá útvarpinu að það haft bara tekizt vel. Eins og nafnið bendir til eru íþróttirnar aðal- efnið. Þátturinn er unnin að tilstuðlan Alfa nefndarinnar svonefndu. Ég var beðinn að vera umsjónarmaður og skoraðist að sjálfsögðu ekki undan því,” sagði Sigurður. Ástæða er til þess að hvetja fóik til þess að hvíla sig um stund á sjón- varpsleikritinu og setjast heldur niður og hlusta á þáttinn. Fatlaðir hafa nefnilega fengið það orð á sig að sýna óvenju mikið af því sem kallaður er heilbrigður íþróttaandi. í þeirra augum er ekki aðalatriðið að vinna heldur hitt að vera með. -DS. Fatlaðir hafa náð ótrúlegum árangri I íþróttum. Hverjum hefði t.d. dottið í hug að blindir gætu stokkið hástökk. tlún svnir þó þessi stúlka svo ekki verður um villzt að allt er hægt þegar viljinn cr fyrir hendi. Innfellda m.vndin er af Sigurði Magnússyni. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JÚNf 1981. Sjónvarp ÍÞRÓTTIR - sjónvarp kl. 20,45: SÍDASTIÍÞRÓTTAÞÁTTUR SJÓNVARPS FYRIR SUMARFRÍ —sundmót fatlaðra og sitt lítið af hverju Sverrir Friðþjófsson sagðist ætla að sýna mynd frá íþróttamiðstöðinni áSelfossi. — „Þar fer fram íþróttanámskeið fyrir krakka úr nágrenninu” — sagði Sverrir — ,,og siðan geta hópar komið og dvalið þarna nokkurn tíma því aðstaðan er mjög fullkomin. Meðal annars er mötuneyti sem sér umallar máltiðir”. Sverrir átti eftir að fara austur, þegar blaðamaður DB spjallaði við hann, og átti því einnig eftir að kynna sér fyrirhugað rekstrarfyrirkomulag og starfsemi.fþróttamiðstöðvarinnar. Um annað liklegt efni þessa síðasta íþróttaþáttar sjónvarpsins fyrir sumarfrí sagði Sverrir: „Ef veður leyfir ætla ég að fara til Vestmannaeyja því að þar v.erður haldið Norðurlandasundmót fatlaðra og ég hef mikinn áhuga á að geta greint frá því. Að öðru leyti mun ég reyna að nýta þennan síðasta þátt til þess að greina frá fyrirhuguðum íþróttaviðburðum, m.a. verður haldið hestamannamót á Hellu fyrstu helgina í júlí og annað í Eyjaftrði síðar í mánuðinum. Fleira Z ég nú ekki með á döfinni sem ^^iiuor en mun reyna að grípa upp þaðhelzta”. -FG. Sverrir Friðþjófsson, umsjónar- maður iþróttaþáttar sjónvarpsins. VIDEO — Tæki — Fiimur Leiga — Saia — Skiptí Kvikmyndamarkaðurinn — í>imi 15480. Skólavörðustíg 19 (Klapparatigsmegin). KVIKMYNDIR /A JÉ\ Göngum ávallt vinstra megin á móti akandi: umferð.. ||U^FERÐAR Önnumst kaup og sölu allra almennra veðskuldabréfa og ennfremur vöruvíxla. Getum ávallt bœtt við kaupendum á við- skiptaskrá okkar. Góð þjónusta. — Reynið viðskiptin. Vcnlliréfci - tliarluiiliiriiiii Nýja húsinu JBBBk v/Lækjartorg. * “ “ “ “ IÞROTTIR FATLAÐRA — útvarpíkvöld kl. 22,35: FATLAÐIR SJA UM AÐ FLYTJA EFNIÐ GUÁI Lyngási 8 Garðabæ SÍMI 53822 Sorppokagrindur 1 Fástí ýmsum litum UPPLYSINGAR 0GAÐST0Ð 1

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.