Dagblaðið - 29.06.1981, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ1981.
Kjallarinn
Nokkrar spurningar
í framhaldi af þessu langar mig til
þess aö varpa fram nokkrum
spurningum til viðeigandi aðila, sem
geta, ef þeir vilja, svarað.
1. Hvernig er að mjólkursöfnun
staðið.
2. Hversu oft er safnað frá hverjum
framleiðanda.
3. Hversu oft eru tekin sýni af
framleiðslu (mjólk) hvers
framleiðanda.
4. Eru. tekin sýni, og hversu oft af
hverjum tankbíl.
5. Er mjólk úr tankbílum blandað
saman án niðurstöðu rannsókna.
6. Er geymsluþol mjólkur rannsakað
fyrir átöppun.
7. Eru dagsetningarstimplanir eftir
lögum eða af niðurstöðum rann-
sókna.
8. Hversu lengi á mjólk að vera
neysluhæf umfram síðasta dag-
stimpil, miðað við eðlilega með-
ferö neytenda.
9. Skila mjólkurbúin mjólkinni til
kaupmanna á, eða undir því hita-
stigi sem æskilegt gæti talist?
10. Halda kæligeymslur kaupmanna,
mjólk, undir þvi hitastigi sem
æskilegt er talið.
11. Hvað kom út úr rannsókn rann-
sóknarstofu Mjólkursamsölunnar
i Reykjavík þegar mjólkin
skemmdist um páskana þann 20.
aprO eins og alkunnugt er.
Hvar eru Neyt-
endasamtökin?
/"'■.....
Hvar erum við neytendur? Hvernig
er farið með okkur? Loksins kom að
því að okkur (neytendum) er kennt
um það sem illa fer. Fyrir þó nokkru
fengu mjólkursamlögin heimild til að
dagstimpla mjólk fram í tímann,
lengur en áður tíðkaðist, en þó sér-
staklega um hátíðar.
Nú er því þannig farið að neytend-
ur mjólkurafurða eru börn og
unglingar, í meirihluta, sem ekki hafa
neina talsmenn. Oft á tíðum þarf
þetta smáfólk að liða fyrir gjörðir
mjólkurbúanna þar sem að foreldrar
þeirra hafa allt of mikiö andvaraleysi
gagnvart mjólkurbúunum, og kaupa
mjólk fram i tímann sem er þó
stimpluð dagsetningu síðasta sölu-
dags. En allt of oft er hún orðin súr
áður en hún er opnuð, jafnvel sama
dag og hún er dagsett, og jafnvel
fyrr. Hver kannast ekki við aö þurfa
að hella niður lítra eða litrum af súrri
mjólk, (eða baka pönnukökur sem
fyrst).
Hver ber sök?
Þá vaknar sú spurning hverjum er
það að kenna að mjólkin er súr á
síðasta söludegi eða jafnvel fyrr.
1. Eru það lélegir bithagar?
2. Eru það slæmar kýr?
3. Er það slæm umhirða kúa?
4. Er það slæm umhirða
mjaltatækja?
5. Er það slæmur rekstur
mjólkurbúa?
6. Er það slæm meðferð
neytenda?
Við getum gefið okkur það að bit-
hagar séu góðir og kýrnar ágætar. Þá
kemur að þessum mannlega þætti
sem fjarlægir mjólkina úr kúnum og
kemur henni yflr á borð neytandans.
Augljóst er að það er þessi mannlegi
þáttur á framleiðslunni sem er valdur
að öllum þeim göllum sem i mjólkur-
afurðum finnast og koma á borð
neytandans. Nú undanfarnar vikur
virðist það koma fram í áróðri frá
ákveðinni nefnd að neytendur séu
sjálfir valdir að því að mjólkin þeirra
súmi.
Hvemig eru þeir valdir að því?
1. Hver hefur ekki séð nýju
umbúðirnar sem benda neytend-
unum á að þeirra mjólk er yfirleitt
skiUn eftir í þrjár klukkustundir
við stofuhita áður en henni er
stungið i kæliskápinn? Þaö
minnkar geymsluþol mjólkur-
innar verulega.
2. Nú virðist sama nefnd álíta að
fsskápar íslendinga gangi of
heitir, og viU þvi selja þeim hita-
„Hver kannast ekki við að þurfa að hella
niður lítra eða lítrum af súrri mjólk?”
Er mjólkin góó? „Oft súr áöur en hún er opnuð, jafnvcl sama dag og hún er dagsett,” segir greinarhöfundur.
Með ósk um að fólk almennt láti
heyra í sér um þessi mál og greinar-
góð svör frá viðeigandi aðilum.
Sigmundur Valgeirsson
tölvufræflingur.
Sigmundur Valgeirsson
mæla, (kuldamæla) til þess að
fylgjast með því að mjólkin þeirra
súmi ekki.
Það er ekki laust við að þegar við
heymm og lesum svona áróður þá
læðist að okkur sá grunur að sökinni
sé verið að varpa yfir á neytendur.
Það sem er súrast í þessum áróðri
er að hitamæiarnir eru niðurgreiddir
af þvi opinbera.
aldrei hvikað frá þeim undirstöðu-
atriðum sem allar sósialiskar
byltingar hafa sett sér. Það hefur
aldrei verið ætlun byltingarmanna að
hefja einkaeignarformið til vegs á ný.
Það hefur aldrei verið ætlunin að
dreifa þjóðfélagslegu valdi í sam-
ræmi við auðmagnseign einstaklinga.
Það hefur aldrei verið ætlunin að
takmarka lýðræði við borgaralegt
þingræðisform.
Sósíalismi a la Kreml
Óvinur óvinar míns hlýtur að vera
vinur minn. Þannig virðast sumir
pennariddarar til hægri hugsa þegar
þeir þrýsta pólsku andófsöflunum að
brjósti sér og kvaka um samúð og
stuðning.
Nýlega ritaði Pétur Guðjónsson
kjallara í DB um málefni Póllands.
Ekki hélt ég að Pétur og hans nótar
væru svona miklir fylgjendur alþýðu
i uppreisnarhug og aUra síst þegar
þessi uppreisnaralþýða er að berjast
fyrir þjóðfélagskerfi sem stangast á
við allt sem er borgaralega þenkjandi
mönnum heUagt.
Það eina sem er Pétri og pólskri al-
þýðu sameiginlegt er að vera á móti
Rússum. En Pétur er á móti Rússum
af því að hann trúir Brésnef og Co
þegar þeir segja sósíalisma vera i
Sovétríkjunum og austantjalds, en
pólsk alþýða er á móti Rússum af þvi
að hún veit að það er ekki sósíaUsmi i
Sovétríkjunum og annarstaðar
austantjalds, en hún vill sósialisma i
Kjallarinn
Albert Ðnarsson
Póllandi. Það væri athugandi fyrir
Pétur og fleiri að fara að dæmi Pól-
verja og athuga hvað Brésnef kaUar
sósíaUsma, áður en honum er trúað.
Lech Walesa talar um að hreyfing
þeirra, Samstaða, sé sósíalísk og
lætur gjarnan fylgja með að þeirra
sósíalismi sé ekkert skyldur þeim sem
herrarnir skreyta sig með.
Við gætum, fyrst þeir báðir,
Walesa og Brésnef, nota orðið sósial-
ismi getið okkur tU um það hvor sé
að biekkja. Ég haUast að því að
Brésnef sé að blekkja og aö Walesa
meini sósíaUsma þegar hann notar
orðið sósíaUsmi. Ég fæ ekki betur seð
en að „sósíaUsmi” að hætti Kremlar
sé það sem áður var kallað fasismi af
verstu tegund. Ég fagna því, þess
vegna, að Pétur og hans vinir til
hægri vilji styðja baráttu gegn
sovéska fasismanum -í Póllandi og
annars staðar. Ég harma það á hinn
bóginn ef þeir skorast undan
merkjum þegar um er að ræða
fasisma og yfirgang þeirra sem
skreyta sig með öðrum flöggum en
„sósiaUsma" að hætti Kremlar.
Pólland er
púðurtunna
Kjallaragrein sína kallar Pétur
„Pólland er púðurtunnan i Evrópu”.
Hvenær sem er getur blossað upp bál
og hvað gerist þá. Um þetta erum við
mjög sammála. Við erum líka sam-
mála um að Sovétríkin séu hinn mesti
fjandi núna, enda þótt við séum
ósammála um söguna að þessari
stöðu.
Pólska byltingin er ákaflega merki-
leg fyrir margra hluta sakir. Hún er
fyrsta kjaftshöggið á sovét-fas-
ismann. Hún er mjög merkileg
byltingartilraun þar sem milljónir
manna eru virkjaðar í friðsamlegri
byltingu. Hún er, vegna þess að hún
er sósíalisk, staðföst ábending um að
kerfi það sem Kreml og Co kallar
sósíalisma er alls enginn sósíalismi.
Hún er virkUega þörf ábending tU
alþýðu alls heimsins um að láta ekki
deigan síga þótt naprir vindar blási á
móti og fjandinn sé öflugur.
Það er e.t.v. ekki síst vegnaþess að
pólska byltingin hefur þetta alþýð-
lega, sósialíska, innihald að PóUand
er púðurtunnan í Evrópu þessa
stundina. Það er nefnilega ekki bara
hrammur rússneska bjarnarins sem
ógnar. Pólsk alþýða litur það ekki
síður hornauga að risaveldið í vestri
og NATO skerpa vígtennurnar.
Byltinginer pólsk
Pétur minntist á það i kjallaragrein
^ „Þaö hefur aldrei veriö ætlun byltingar-
manna aö hefja einkaeignaformið til vegs
á ný.”
sinni að um aldir hafi Pólland verið
klemmt á miUi tveggja óvina, Rússa í
austri og Þjóðverja í vestri. í sög-
unni hefur þetta verið kallað „pan-
slavismi” og „pan-germanismi” og
bitnað á Pólverjum ásamt Tékkum
og Slóvökum, sem hafa orðið að þola
yfirgang þessara ásælnisstefna til
skiptis. Það ætti því ekki að koma á
óvart að Pólverjar séu vakandi fyrir
ásælni að vestan, sem og þeir eru nú
vakandi fyrir hverjum leik þeirra
Kremlverja í stríðinu um völdin og
framtíð Póllands. Það hefur lfka þrá-
faldlega komið fram að forystuafl
byltingarinnar í Póllandi, Samstaða,
lætur ekki stýra sér frá útlandinu.
Samstaða hefur samt hvatt erlenda til
að styðja með ráðum og dáð baráttu
hreyfmgarinnar, en hafnar öllum
stuðningi sem bundinn er skilyrðum.
Byltingin er pólsk og stjórnað og gerð
af Pólverjum. Það er því ekki að
vænta mikils stuðnings frá Pentagon
eða Brussel, þar sem slíkra aðila
hugur er ekki hjá stríðandi alþýðu,
heldur við skákborö risaveldanna.
Fyrir þeim er pólsk alþýða ekkert
annað en peð, sem þeir reyna að nota
til að skáka kónginum í Kreml. Eða
er það hugsanlegt Pétur, aö vænta
megi stuðnings frá NATO við baráttu
Samstöðu og pólskrar alþýðu? Eru
Pétur og hans sinnar tilbúnir til
aðstyðja baráttu Samstöðu á enda,
án þess að setja skilyrði?
Albert Einarsson
kennari.