Dagblaðið - 29.06.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 29. JÚNÍ1981.
11
d
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Ga/iant með ferkantaða maísstöngulinn, en á honum eru aðeins fjórar raðir
afkorni á móti átta á þeim sivölu.
Þekkti ekki
drottninguna
tilvonandi í sjón
Vart líður sá dagur í Bretlandi að
myndir af Karli Bretaprinsi og lafði
Díönu birtist ekki í dagblöðum eða
sjónvarpi. Því mætti ætla að allir
Bretar, ungir sem aldnir, þekktu brúð-
hjónin tilvonandi í sjón, en því er ekki
fyrir að fara. Meira að segja fólk, sem
óbeint er í þjónustu konungsfjölskyld-
unnar, þekkir ekki Díönu, eins og
dæmið hér á eftir sýnir.
Söguhetja vor er dyravörður við
innganginn á konungsstúkunni á
Ascot-veðhlaupabrautinni. Svo bar til
dag einn þá dyravörðurinn var við
vinnu sína að ung stúlka kom að dyrun-
um og hugðist ganga inn í stúkuna. En
dyravörðurinn hélt núekki. „Ertu með
skilríki sem leyfa þér það,” spurði
hann strangri röddu. En áður en
stúlkan gæti svarað var starfsfélagi
hans kominn dyraverðinum til
aðstoðar. „Slepptu því, þetta er lafði
Díana,” sagði vinurinn. „Lafði hver?”
spurði dyravörðurinn undrandi.
Lafðin komst þó auðveldlega í sæti
sitt í stúkunni en fréttamenn urðu yfir
sig hissa á fáfræði dyravarðarins. „Já,
en ég hafði aldrei séð hana fyrr,” var
það eina sem dyravörðurinn gat sagt.
Og sú afsökun verður að duga, þótt
ótrúleg sé.
Myndir af iafði Diönu eru hvarvetna i Engiandi en dyravörðurinn bar samt
ekki kenns/ á hana.
Japani rœktaði ferkantaða melónu:
Bandaríkjamaöurinn svar-
aði með ferköntuðum maís-
stöngli
Walton C. Galiant, sem er sérfræð-
ingur í erfðafræði plantna, tók það
ekki nærri sér þegar Japanir tóku að
keppa við Bandaríkjamenn í bíla- og
rafmagnstækjaiðnaðinum. En þegar
japönskum vísindamanni tókst að
rækta ferkantaða melónu var
prófessornum nóg boðið. „Stolt mitt
var sært,” segir Galiant, „ég varð að
geta ræktað eitthvað ferkantað líka. ”
Og nú hefur honum tekizt það.
Undanfarin fimm ár hefur Galiant
verið að gera tilraunir með erfðaeigin-
leika maískornsins og nýlega sýndi
hann fréttamönnum árangur erfiðis
síns, ferkantaðan maisstöngul.
Sá ferkantaði hefur marga kosti
umfram hinn venjulega sívala. Sá
stærsti er án efa sá að smjörið helzt
miklu betur á maísstönglinum ferkönt-
uðum. Það drýpur ekki niður og atar út
hendur og föt.
Skrifstofustarf
hjá Raunvísindastofnun Háskólans er laust til umsóknar.
Þekking á meðferð banka- og tollskjala æskileg ásamt
enskukunnáttu.
Upplýsingar í síma 21340 kl. 10—12 næstu daga.
Umsóknir sendist Raunvísindastofnun Háskólans sem
fyrstogeigisíðaren lO.júlí nk.
/hnefa Hollensk hnífapör úr 18/8 gæðastáli
— Gerið verðsamanburð.
„Múrsteinsmunstur ’ ’ m/24 karata gulli Ángull- húöunar
Gaffall, hnífur, skeið Kr. 160.- 105,-
6 manna sett og 6 tesk. Kr. 1.104,- 726,-
6 m. sett og 6 tesk. og gafflar Kr. 1.248,- 822.-
6 kökugafflar Kr. 156,- 102,-
6 teskeiðar Kr. 156,- 102.-
6 deserthnífar Kr. 270,- 180,-
6 desertskeiðar Kr. 270,- 180,-
ávaxtaskeið Kr. 100.- 80,-
sósuausa Kr. 88,- 70,-
súpuausa Kr. 175,- 155,-
salatsett (2 stk.) Kr. 135,- 98.-
grænmetisskeið Kr. 88,- 70,-
— og margir aðrir fylgihlutir.
ALLTÍ GJAFAKÖSSUM — ENNFREMUR
ALLT SELT ÍSTYKKJA TALI.
Gjafavörurfyrirþá sem metafagra muni.
JL JCJnLljL^
mnsTiii
Laugavegi 1S Reykjavfk Sími 14320