Dagblaðið - 29.08.1981, Síða 1
I
I
)
7. ÁRG. — LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST1981. — 194. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI ÍI.-AÐALSÍMI 27022.
STAL SIMAUNUIFJOLBYLIS-
HÚSI í TVO SÓLARHRINGA
—gat hringt að vild á kostnað annars og möguleikar á símahlerunum voru miklir
Þeir sem búa í blokkum eða öðrum
fjölbýlishúsum geta varla kallast
öruggir með símatæki sín. Víða hagar
svo tQ að greinidósir fyrir síma-
leiðslur eru inni í íbúðum og þar er
unnt að ná til símavíra sem liggja um
efri hæðir. Engin reglugerðarákvæði
tryggja frágang símadósa og eru þær
lagðar að miklu leyti eftir hentisemi
þess sem teiknar rafmagnsleiðslur í
viðkomandi hús.
Fyrir nokkru kom það fyrir í
nýlega byggðu fjölbýlishúsi í Hafnar-
firði, sem hefur þrjá stigaganga og
7—8 íbúðir við hvern, að símalínur
eins símahafa „dóu” skyndilega og
vissi enginn hvað hafði skeð. Þetta
var í upphafi stórrar helgarhátíðar og
því ekki unnt að fá viðgerðarmann.
Handhafi símans mátti una því að
vera án síma alla helgina.
Á fyrsta virka degi eftir helgina
komu símamenn í húsið og þá stóðu
þeir að verki íbúa neðar í húsinu, sem
opnað hafði greinidós fyrir síma-
lagnir og tengt viðtæki við línur, sem
lágu til sambýlismannsins ofar í
húsinu. Þannig hafði verið hægt að
hringja að vild — til útlanda sem
annað — á kostnað hins rétta sím-
hafa.
Sá sem fyrir áfallinu varð bar sig
upp við Neytendasamtökin, en þau
gátu lítið að gert. Þegar mun hærri
símareikningar bárust fyrir umrætt
tímabil en símhafi hafði áður þekkt,
bar hann sig upp við símayfirvöld, en
fékk litla áheyrn. Siminn bauð að
lækka reikninginn í þá upphæð sem
rukkuð hafði verið fyrir næsta tíma-
bil á undan. Við það vildi símhafi
ekki una, en varð að láta í minni pok-
ann þegar loka átti síma hans vegna
vangreiðslu. Kerfið sigraði lítilmagn-
ann auðveldlega.
Þar sem svona hagar til í húsum,
að greinidósir eru inni í íbúðum
annarra, eru símahafar „galopnir”
fyrir hlerunum, svo ekki sé taiað um
línustuld og notkun símalínu án
greiðslu.
Það vakti athygli í þessu máli, að
síminn kærði ekki viðkomandi
„símalínuþjóf”. Þótti bæjarsímstjór-
anum í Reykjavík það furðulegt, en
ekki hefur náðst í viðkomandi
umdæmisstjóra, sem bæjarsímstjór-
inn vísaði á varðandi þetta mál.
-A.St.
Bærilegt
helgarveður
— segirTrausti
„Útlit er fyrir suðlæga átt um allt
land á morgun og bærilegt veður.
Minniháttar skúrir á Suður- og
Vesturlandi,” sagði Trausti Jónsson
veðurfræðingur í samtali við DB í
gærkvöldi. ,,Á sunnudag má hins
vegar búast við rigningu á Suður- og
Vesturlandi en þurrt fyrir norðan og
austan. Ætli hitastigið verði ekki
þetta 8—-12 stig,” sagði Trausti.
-ELA.
Mótherj-
inn þrá-
skákaði
— og Jón L þurfti að
sætta sig
við Jafntefli
Jón L. Ámason gerði jafntefli við
enska skákmeistarann Hebden i
fjórðu umferð alþjóðlega skákmóts-
ins í London í gær. Hebden kaus að
þráskáka og náði þannig jafntefli
gegn Jóni sem var peði yflr.
Skák Margeirs Péturssonar við
Englendinginn Cummings fór í bið.
Er staða Margeirs heldur lakari.
Jón L. hefur nú 3,5 vinninga af
fjórum mögulegum en Margeir hefur
1,5 og biðskákina.
Jón L. hefur farið mjög vel af stað
i þessu móti en teflt er eftir Monrad-
kerfi. Jón er með efstu mönnum á
mótinu og fær hann því væntanlega
sterkan mótherja í næstu umferð.
Keppendur á mótinu eru um
hundrað.
-KMU.
Utangarðs-
mennnú
söngvara-
lausir
— sjá baksíðu
Sumarstúlka Dagblaösins? Nei, sumarmynd
Hringaná í hringnum skammtfrá hringtorgi vestur við sjó... Þessi Höfundur þessarar myndar er Vigfús Sigurðsson, Hamraborg 14,
mynd er ein af ótölulegum fjölda mynda sem borizt hafa í Sumar- Kópavogi.
myndakeppni Dagblaðsins. Skilafrestur í keppnina rennur út á --m ' t\—m~'-- >----------
mánudagskvöld. Við birtum fleiri myndir í opnu blaðsins í dag. — sja fieiri sumarmyndir i opnu
54ra manna samninganefnd ASÍfundará mánudag:
Kröfumar mótaöar og vinnubrögð rædd
Stóra samninganefndin innan málin verða rædd. .kjaramálin. brögðin þegar til samninga kemur.
Alþýðusambands íslands, 54ra Björn Björnsson starfsmaður ASÍ Er talið líklegt að umræður á Gert er ráð fyrir að 54ra manna
manna nefndin, kemur saman til tjáði DB að á fundinum myndu þessum nefndarfundi muni að ein- nefndin ljúki þessum fundi sínum á
fundar á mánudaginn klukkan tvö. nefndarmenn gera grein fyrir umræð- hverju leyti móta kröfur ASÍ í kom- mánudaginn.
Ekki er tim sérstaka fundardagskrá um þeim sem fram hafa farið i félög- andi samningaviðræðum. Á fundin- -A.St.
aðræðaaðöðruleytienþvíaðkjara- unum vítt og breytt um landið um um verður einnig rætt um vinnu-