Dagblaðið - 29.08.1981, Qupperneq 10
10
fijálst, úháð dagblað
Útgefandi: Dagblaöið hf. ^
Framkvœmdastjóri: Sveinn R. Eyjótfsson. Ritstjórí: Jónas Krístjánsson.
Aöstoðanitstjórí: Haukur Helgason. Fréttastjórí: Ómar Valdimarsson.
Skrífstofustjórí ritstjómar. Jóhannes Reykdal.
Iþróttir Hallur Simonarson. Menning: Aðalstoinn Ingóifsson. Aöstoöarfróttastjóri: Jónas Haraldsson.
Handrit: Ásgrímur Pálsson. Hönnun: Hilmar Karísson.
Blaöamenn: Anna Bjamason, Atli Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Ðragi Sig-
urðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gunnlaugur A. Jónsson, Inga Hu«d rlákonardóttir,
Krístján Már Unnarsson, Siguröur Sverrisson.
Ljósmyndir: Bjornloifur Bjamleifsson, Einar Ólason, Ragnar Th. Sigurðsson, Sig,jröur Porrí Sigurösson
og Sveinn Þormóösson.
Skrifstofustjórí: Ólafur Eyjólfsson. Gjaldkerí: Þráinn ÞorleHsson. Auglýsingastjórí: Már E.M. Hal^
dórsson. DreHingarstjórí: Valgoröur H. Sveinsdóttir.
Ritstjóm: Síöumúla 12. Afgreiðsla, áskríftadeild, auglýsingar og skrífsÞifur: Þverholti 11.
Aöalsimi blaðsins er 27022 (10 linur).
Sotning og umbrot: Dagblaöið hf., Siðumúla 12.
Mynda- og plötugorö: Hilmir hf., Siöumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 10.
Áskríftarverö á mánuöi kr. 80,00. Verð flausasöiu kr. BJ)0.
Hressir gosmenn
Heilmikið fjör hefur færzt í leik ís- /S
lenzkra gosdrykkjaframleiðenda. Fyrir-
tæki, sem áður var í skugga hinna
tveggja stóru, hefur olnbogað sig fram í
sviðsljósið og vakið þá hastarlega af
værum svefni hins stöðuga markaðar.
Með ýmissi þjónustu hefur Sanitas tekizt að ná á sitt
band ýmsum mikilvægum smásölum, svo sem Valhöll
á Þingvöllum og þjóðhátíð Vestmannaeyja. Hefur
fyrirtækið nú verið kært fyrir einokun á gosdrykkjum
þjóðhátíðarinnar.
Slík einokun er að vísu ekki ný af nálinni. Hún tíðk-
ast líka hjá hinum, sem kærðu. Þeir hafa einokun í
bíóum, Húsafelli, kennaraháskólanum og meira að
segja á hinu háa alþingi, sem þar með er orðið
skemmtilegur málsaðili.
Ljóst virðist, að þessi slagsmál hafi bætt hag ýmissa
smásala, sem hafa séð sér hag í að gera einkasamninga
við eitt af hinum þremur stóru fyrirtækjum. Og
kannski lekur eitthvað af ávinningnum til sjálfra neyt-
endanna.
Um einokun er mjög erfítt að tala í þessum fjöruga
leik. Neytendur, sem eru algerlega háðir einni tegund,
geta til dæmis valið um verzlunarmannahelgi á Galta-
læk, í Húsafelli og í Vestmannaeyjum.
Hins vegar er gaman að sjá atvinnugrein, þar sem
ekki ríkja samráð bak við tjöldin um sameiginlega ein-
okun markaðsins, þar sem hins vegar ríkir fjörug sam-
keppni með alls konar uppátækjum hins frjóa hug-
myndaflugs.
Þeir Sanitasmenn hafa gefíð gott fordæmi íslenzkum
iðnaði, sem því aðeins mun ná góðum þroska, að ráða-
menn fyrirtækjanna séu sívakandi, sívinnandi, síbreyt-
andi og sífellt komandi á óvart. Þeir séu semsagt
hressir eins og gosmenn.
Óhress kerfismaöur
Vararannsóknarlögreglustjóri ríkisins hefur reynzt
afar óánægður með, að Dagblaðið skuli hafa tekið
undir gagnrýni séra Jóns Bjarman fangaprests á því,
hvernig efnt var til rannsóknar á kæru út af meintu
harðræði í Síðumúlafangelsi.
Embættismaðurinn segir hvatir Dagblaðsins vera
auðsæjar. En þetta eru hin sjálfvirku viðbrögð kerfís-
manna, þegar amazt er við röngum vinnubrögðum í
kerfinu. Slíku er alltaf haldið fram, ef einhver þorir að
opna munninn.
Embættismaðurinn segir, að blaðið og presturinn
séu að reyna að vekja tortryggni á réttarfari i landinu.
Þetta eru líka hin sjálfvirku viðbrögð kerfismanna,
þegar amazt er við röngum vinnubrögðum í kerfinu.
Hið háa kerfí hefur alltaf rétt fyrir sér. Þeir, sem
eitthvað hafa við þennan stóra sannleika að athuga,
eru alltaf stimplaðir sem illgjarnir æsingamenn, er séu
að reyna að grafa undan þjóðfélaginu.
Embættismaðurinn hefur í löngu máli reynt að út-
skýra, að hann hafi gert sitt bezta í rannsókn málsins.
En hann virðist ekki átta sig á vissum leikreglum um
meðferð dómsmála í lýðræðisríki, að rannsóknarmenn
skuli ekki vera tengdir þeim, sem rannsakaðir eru.
Embættismaðurinn gerði auðvitað enga tilraun til að
útskýra, hvers vegna hann tók að sér að athuga sakar-
efni bæði yfirmanns síns og undirmanna. Og dóms-
málaráðuneytið hefur ekki útskýrt, hvers vegna svona
var staðið að málinu.
Það er sorglegt, þegar kerfismenn skilja ekki sjálfar
forsendur réttarríkis.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 29. ÁGÚST 1981.
Friðarhreyfingarnar á meginlandi Evrópu hafa látíð mjög tíl sin taka i sumar og friðargöngur þeirra og samkomur hafa vakið
mikla athygli.
Miklar umræður um hermál íVestur-Þýzkalandi:
STEFNA V-ÞÝZKU STJÓRN-
ARINNAR MÆTIR ANDSTÖÐU
Helmut Schmidt kanslari á í vök að verjast innan f lokks
síns vegna afstöðunnar til nifteindasprengjunnar
Miklar umræður um hermál hafa
átt sér stað í Vestur-Þýzkalandi að
undanförnu. Sú ákvörðun Ronalds
Reagan Bandaríkjaforseta, að láta
hefja framleiðslu nifteindasprengju,
hefur að sjálfsögðu ekki orðið til að
draga úr þeim umræðum.
Samsteypustjómin í Bonn heldur
fast við þá skoðun sína að meðal-
drægar eldflaugar af geröinni
Pershing II, langdrægar flaugar og
nifteindavopn séu nauðsynleg til að
viðhalda valdajafnvæginu á milli
austurs og vesturs. Andstaðan gegn
þessari stefnu stjómarinnar hefur
farið vaxandi að undanförnu.
Meginsjónarmið ríkisstjórnarinnar
er að semja verði við Sovétríkin um
gagnkvæma afvopnun og að einhliða
stöðvun vígbúnaðarkapphlaupsins sé
„fráleit” og „andstæð rökrænni
hugsun” eins og Lothar Rilhl, tals-
maður ríkisstjórnarinnar, sagði.
Riihl telur að nifteindasprengjunni
megi á margan hátt líkja við sýkla-
vopn þau sem ráðamenn Atlantshafs-
bandalagsins eru næstum vissir um að
Varsjárbandalagið myndi nota i
hugsanlegri árás á Vestur-Evrópu.
„Nifteindasprengjunni er eins og
sýklavopnunum beint gegn hermönn-
um og óbreyttum borgurum. Bæði
vopnin eru við þaö miðuð að hægl
verði að koma inn á viðkomand:
svæði fljótlega á eftir,” sagði Rilhl
Þess vegna verður að semja um nift-
eindavopnin um leið og sýklavopnin.
í flokki sóslaldemókrata er and-
staðan gegn nifteindasprengjunni svc
sterk aö Helmut Schmidt kanslari
hefur ekki mikla möguleika á að fá
stefnu sína i málinu samþykkta á
þingi flokksins næsta vor.
Þar óttast menn að nifteinda-
sprengjan muni gera mögulegt tak-
markað kjamorkustrið sem kynni að
verða bundið við Evrópu, þannig að
Vestur-Þýzkaland yrði til dæmis lagt
í eyði en Bandaríkin, sem ákveða
hvar sprengjan verður notuð, myndu
sleppa ósköðuð.
Andstaðan er því sterk gegn vlg-
búnaðinum í V-Þýzkalandi núna.
Næstum milljón undirskriftum hefur
verið safnað gegn hinum nýju meðal-
drægu vopnum. Innan þýzku mót-
mælendakirkjunnar hefur einnig
verið háð mjög öflug barátta gegn
vígbúnaðinum og kirkjan á að sjálf-
sögðu talsvert sterk itök innan SPD
(Sósialdemókrataflokksins).
Þá hefur hafizt borgaraleg barátta
undir kjörorðunum „friöur í frelsi”.
Þeir er að baki þessari baráttu standa
vilja fyrst og fremst stuðla að því að
viðræðum stórveldanna um tak-
mörkun vígbúnaðar verði fram
haldið.
Loks er þess að geta að margir
þekktir og mikils metnir menn úr
flokki sósíaldemókrata hafa hafiö
baráttu gegn nifteindasprengjunni.
Meðal þeirra er til dæmis Hans
Koschnitk, borgarstjóri í Bremen.
Eftir helgina mun vestur-þýzka
verkamannasambandið hefja baráttu
gegn vígbúnaði i austri og vestri. Þeir
er standa fyrir þeirri baráttu gera sér
vonir um að hafa safnað tveimur
milljónum undirskrifta fyrir jól.
Aðeins hinir íhaldssömu vestur-
þýzku flokkar, CDU og CSU, veita
Reagan Bandaríkjaforseta stuðning í
þeirri stefnu hans að í samningavið-
ræðum um takmörkun vígbúnaðar
þýði ekki að eiga við Sovétmenn
nema út frá sterkri hernaðarlegri
stöðu.
Lothar Ruhl, blaöafulitrúi vcstur-
þýzku ríkisstjórnarinnar: Semja á um
nifteindasprengjuna og sýkiavopn um
leið.
Hvað sem öðru líður er ljóst að
Helmut Schmidt á nú í miklum erfið-
ieikum innan flokks síns og mætir
vaxandi andstöðu vegna afstöðu
sinnar til vígbúnaðarspumingarinn-
ar. Einn þeirra sem beitt hefur sér
gegn nifteindasprengjunni er Egon
Bahr, fyrrum framkvæmdastjóri
SPD. Hann er mjög andsnúinn
sprengjunni og heldur því fram að
hún sé ekki lengur nauðsynleg til að
hefta hugsanlega skriðdrekainnrás
Sovétmanna i Evrópu. (Poiitiken).
r
LAXVEIBAR í SIÓ
góðar endurheimtur hefðu fengist úr
þessum tilraunum væri hægt að
fallast á tilgátu Árna, en raunin sýn-
ir, að á báðum þessum stöðum hafa
endurheimtur orðið miklu lélegri en
búist var við.
Fyrir norðan og norðaustan má
búast við, að laxagengd verði víða
40—60% lélegri en eðlilegt má telj-
ast.
Rannsöknir íra
Mjög ítarlegar rannsóknir, sem
írar hafa gert á áhrifum laxveiða í sjó
við V-Grænland, sýna, að írskur lax
er um 18% af laxi veiddum við
Grænland og að þetta veldur því, að
fyrir hver 100 tonn, sem veidd eru við
Grænland, tapa þeir 43 tonnum í
heimaveiðum á írlandi. Sömuleiðis
sýna kanadískar rannsóknir að um
50% af veiddum laxi við Grænland er
V ■ ■
Veiðimenn og veiðiréttareigendur á
Norður- og Norðausturlandi höfðu
gert sér vonr um, að lítil laxveiði og
léleg laxagengd í fyrra væri að kenna
slæmu árferði og uppbót fengist á
það í sumar með meiri laxagengd.
Kalt vor og sumar fyrir norðan hélt
við þessari von fram eftir sumri, en
það er nú að verða flestum ljóst, að
orsakanna er að leita annars staðar
eníslæmu árferði.
Tilgáta Árna ísakssonar um
mikinn seiðadauða 1979 fær heldur
ekki staðist. Á síðustu árum hafa
farið fram hafbeitartilraunir á tveim
stöðum norðaustanlands, í Lóni í
Kelduhverfi og Eiðisvatni á Langa-
nesi. Mjög vandvirknislega hefur
verið staðið að seiðasleppingum á
báðum stöðunum, svo að fullyrða
má, að sleppingar í báðum stöðvun-
um hafa verið árangursríkar. Ef
Kjallarinn
Eyjótfur Fríðgeirsson