Dagblaðið - 07.09.1981, Page 5
5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1981
Þrir björgunarsveitamannanna eru hér á slöngubát — þeirri tegund björgunar-
báta, sem valdið hafa hvað mestum straumhvörfum i björgunaraðgerðum á
sjó. DB-mynd Sig. Þorri.
ÆFDU BJÖRGUN
FÓLKS ÚR SJÁVAR-
HÁSKA VIÐ VIÐEY
— 70 björgunarsveitarmenn héldu mikla
samæfingu um helgina
Um miðjan dag í gær lauk heljarmik-
illi björgunaræfingu slysavarna-
félaga, allt frá Grundarfirði og suður
til Stokkseyrar, í Viðey. Um 70 manns
tóku þátt i æfingunni, sem hófst á
föstudagskvöld og stóð með hléum
fram á miðjan dag í gær. Þama vom á
ferðinni björgunarsveitarmenn, sem
hlotið hafa sérstaka þjálfun á slöngu-
bátum og með í förinni voru einnig
kafarar.
Að sögn Ásgríms Björnssonar hjá
Slysavarnafélagi fslands hefur notkun
slöngubáta færzt mjög í vöxt undan-
farin ár við hin fjölbreytilegustu verk-
efni á sjó. Fæstar hafnir landsins hafa
yfir slíkum bátum að ráða og hafa
bátar björgunarsveitanna víðs vegar
um landið iðulega komið til hjálpar við
björgun úr sjávarháska og eins þegar
leita hefur þurft að fólki á sjó.
Æfingar, sem þessi, hafa verið
haidnar árlega undanfarin ár og hafa
Björgunarsveitimar skipzt á um að
standa að undirbúningi æfínganna.
Að þessu sinni var það Slysavarna-
deildin Ingólfur, sem bar hitann og
þungann af æftngunni.
Auk fræðsluerindi úti í Viðey voru
æfð hin ýmsu atriði björgunar á sjó,
og meðferð slöngubáta. Kafarar æfðu
leit i sjó á mismunandi dýpi og við
mismunandi aðstæður. Var æfingin f
alla staði mjög vel heppnuð.
Björgunarsveitamennimir voru allan
tímann úti i Viðey, reistu þar tjaldbúðir
á föstudagskvöld og fóm ekki í land
fyrr en upp úr hádegi í gær. Kveðjuhóf
var siöan haldið i gær og m.a. flutti
forseti Islands, Vigdis Finnbogadóttir,
stutt ávarp þar sem hún þakkaði
björgunarsveitum um land allt fyrir
frábært starf á undanfömum árum.
-SSv.
Þeyr hélt hita á áhorfendum með kröftugri tónlist á Lækjartorgi á föstudag.
DB-mynd: Sig. Þorri.
Sannkallað „kulda-
rokk’’ hjá Þey
á föstudaginn
„Rekið í stuttu máli áhrif og inni-
hald Kaupmannahafnartúlkunarinn-
ar. Skrifiö þó ekki meira en 5 línur”.
Þessi verkefni var eitt þeirra, sem
hljómsveitin Þeyr lagði fyrir áhorf-
endur sina á útitónleikum, sem
flokkurinn gekkst fyrir á Lækjar-
torgi á föstudag.
Þeir em kaldir kailar, strákarnir í
Þey, a.m.k. var þeim hrollkalt á
Lækjartorginu þar sem kuldi og rok
gerði þeim lifið leitt. Útgáfu nýju
plötunnar frá Þey, Iður til fóta, var
frestað j>ar til í þessari viku vegna
óhagstæðrar afstöðu stjarnanna, en
ekki voru þær þeim hagstæðar á
föstudag — i þaö minnsta ekki þær,
sem hafa áhrif á veðurfarið.
Þrátt fyrir kuldann létu margir sig
hafa það að norpa í kuldanum og
hiýöa á leik hljómsveitarinnar, sem
var afar sannfærandi. 1 fyrsta sinn í
langan tíma, sem boðið var upp á
góðan hljómburð á útitónleikum.
-SSv.
Reykkafarar björguðu
tveimur konum úr húsbruna
— þríðji íbúinn var kominn út af sjálfsdáðun
Reykkafarar slökkviliðsins sóttu
tvær konur inn i brennandi hús á
laugardagsmorguninn. Var þá mikill
eldur og reykur í húsinu, sem Breið-
holt heitir, og er við gamla Laufás-
veginn, skammt frá Alaska.
Það var kl. 5.49 um morguninn
sem kallið barst til Slökkviliðsins.
Reyndist eldurinn á jarðhæð hússins,
sem er úr steini en þó með viðar-
klæddum veggjum.
Á hæðinni eru tvö herbergi auk
eldhúss og var mikill eldur kominn í
herbergin. Karlmaður sem býr í
húsinu var kominn út er slökkviliðið
kom á vettvang, en konumar þurfti
að sækja inn og bera út.
Þær voru báðar fluttar í slysadeild
og önnur þaðan og lögð inn í Land-
spftalann.
Sem fyrr segir er húsið, svo og
húsgögn, mikið brunnið og því
eignatjón mikið. Um eldsupptök lá
engin vissa fyrir i gær, en málið var í
rannsókn hjá rannsóknarlögreglu
rikisins. -A.St.
URVftbll
JMJHAhusið
LAUGAVEG 178. SÍMl 86780.
(NÆSTA HÚS VfD SJÓNVARP/Ð)
kerfííeinu!
Loksins
getum við boðið
ÞRIGGJA KERFA TÆKI MEÐ
1) PAL EVRÓPSKA KERFIÐ
2) SECAM FRANSKA KERFIÐ
3) NTSC AMERÍSKA KERFIÐ
NÚ ER AUÐVELT AÐ AFLA SÉR EFNIS FRÁ HINUM
ÝMSU LÖNDUM.
Verð: 19.000
Greiðsluk/ör.
VERZLIÐ I
SÉRVERZLUN MEÐ
LITASJÓNVÖRP
OG HUÓMTÆKI
SKIPHOLT119. SIMI29800