Dagblaðið - 07.09.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1981.
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
D
ísrael:
DEILTUM
UPPGRÖFT
Fremstu fornleifafræðingar ísraels
hafa leitað til dómstóla til að fá ógilda
ráðuneytisskipun sem stöðvað hefur
fornleifauppgröft í Jerúsalem. Mál
þetta hefur valdið miklum deilum 1
hinni nýju samsteypustjórn Menachem
Begins.
Þaö var menntamálaráðherrann,
Zevulun Hammer, sem gaf úr skipun
um að stöðva skyldi frekar gröft eftir
að klerkar höfðu lýst þvi yfir að svæðið
sem uppgröfturinn fer fram á væri forn
kirkjugarður. En samkvæmt gyðinga-
trú eru kirkjugarðar heilög og friöhelg
svæði.
Deilur þessar hafa valdið miklu
sundurlyndi í samsteypustjóminni og
talsmenn frjálslyndra hafa varað við
að það geti orðið stjórninni að falli ef
ekki næst samkomulag um uppgröft
þennan.
Fornleifafræðingar segja að svæöið,
sem er i borg Davíös, hafi aldrei verið
kirkjugarður en klerkar sitja við sinn
keip og eru alls ekki til viðtals um mála-
miðlun.
Hæstiréttur hefur í bili ógilt skipun-
ina og fornleifafræðingarnir halda
uppgreftri áfram undir lögregluvernd
vegna hótana ofstækismanna um að
stöðva vinnu þeirra.
Susan St. James: Er hún tilvonandi
eiginkona Teds Kennedys?
NÝÁSTÍ
LÍFITEDS
„í þetta skipti er það raunveruleg
ást,” segja vinir Ted Kennedys, eftir að
þingmaöurinn haföi sézt á siglingu meö
splunkunýrri kærustu.
Konan reyndist vera kvikmyndaleik-
konan og ljósmyndafyrirstæan Susan
St. James. Og víst er hér alvara á
ferðum því Ted er þegar búinn að
kynna hana fyrir móður sinni, Rose,
sem nú er orðin níræö.
Susan St. James á aö baki sér tvö
hjónabönd og ótal stormasöm ástar-
ævintýri. Þegar Ted kom i spilið var
hún trúlofuð kvikmyndaleikaranum
Bruce Lewis og hafði brúðkaups-
dagurinn þegar verið ákveðinn.
Metverö
fyrirbók
um Elvis
Brezkt bókaforlag hefur greitt
metverð fyrir útgáfuréttinn á ævisögu
söngvarans Elvis Presleys. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Penguin Books.
Forlagið fullyrðir að aldrei hafi veriö
greitt svo hátt verð á brezkum
markaði fyrir nokkurn útgáfurétt, eöa
á milli 2 og 3 milljónir kr.
Höfundurinn er bandaríski rit-
höfundurinn Albert Goldman. Hann
segir bókina gagnrýnandi en réttláta og
gefur hann bitra mynd af sföustu
mánuðunum i lifi Presleys. Á þessu
tímabili átti söngvarinn í stöðugri
baráttu við offitu og var háður
eiturlyfjum.
Gagnasöfnun til bókar þessarar tók
rithöfundinn þrjú ár.
Móðir krýpur hjá Uki sonar sfns, en hann er aðeins einn af fjölda fórnarlamba hryðjuverkanna í E1 Saivador.
El Salvador:
PÓUTÍSK HRYDJUVERK
H» DAGLEGA BRAUÐ
Ekkert lát er á ofbeldisverkum í E1
Salvador. Saklausir borgarar eru
dregnir út af heimilum sínum og
finnast hálshöggnir á götum úti um
land allt. ÁUtið er að hægrisinnaðir
„dauðavarðflokkar” standi að baki
hryðjuverkunum.
Erkibiskup landsins, Arfturo
Rivera y Damnas, hefur sagt að
kirkjan geti ekki tekið slíkum
giæpum með hlutleysi. Hann hefur
og fordæmt það sem hann kallar
sadisma hægrisinnaðra og visaö á
bug þeirri fuUyrðingu hinnar rikjandi
herforingjakliku að nýjar kosningar
gætu bundið enda á borgarastríðið í
landinu.
Mannréttindasamtök kaþólsku
kirkjunnar hefur ákært herinn og
hægrisinna fyrir að standa aö baki
80% pólitískra morða í E1 Salvador,
en á síðustu mánuðum hafa 22000
látið lífið vegna pólitiskra
hryðjuverka.
Eftú tæplega tveggja ára stjórnar-
tið herforingjakiíkunnar er ástandið
nú þannig að landið einangrast
stöðugt meir og meú frá
umheúninum og stöðugar árású
uppreisnarmanna lama aUa efnahags-
þróun.
Kosningar eru áætlaðar i marz nk.
en útlitið verður stöðugi svartara.
Ekkert lát er á póUtískum ofbeldis-
verkum og vinstrisinnaðir skæruliðar
njóta vaxandi samúðar annarra rUcja.
Símon Spies sextugur:
Sælgæti í stað
Spánarferðar
Nýlega hélt danski ferðaskrifstofu-
kóngurinn, Súnon Spies, upp á sextugs-
afmæUð sitt i Kaupmannahöfn og var
mikið um dýrðir. Spies auglýsti i tilefni
dagsins hræódýrar Spánarferðú, eða á
sama verði og þær voru seldar fyrú 25
árum. Einnig hét hann viðskiptavinun-
um veitingum. Þetta varð tU þess að
hundruð manna þustu á söluskrifstofur
hans á afmælisdaginn en því miður
hafði láðst að skýra frá því að tala þess-
ara ódýru ferða var afar takmörkuð.
Flestú urðu því að láta sér nægja
súkkulaöimola i staðinn og þóttu það
U1 skipti.
Kaupmannahafnarbúar fagna Spies á
sextugsafmælinu.
Met i mjólk-
urframleiðslu
Frú Sonja Berg frá Malmö, sem
sést hér á myndinni, hefur slegið öll
met i framleiðslu á móðurmjólk. Á
siSustu 17 árum hefur hún selt
mæðrum, sem af einhverjum á-
stæðum geta ekki mjólkað börnum
sinum sjálfar, 6000 lítra af
móðurmjólk. Þessi framleiösla
samsvarar 240 kössum af mjólkur-
hyrnum eða sama magni og kemst í
tvo stóra mjólkurflutningabUa.Sonja
á sjálf 7 börn.Meðalverðiðsem Sonja
fær fyrú lítrann er 25 skr. Læknar
setja þessa óhemju framleiðslu í
samband við starfsemi
heiladingulsins.