Dagblaðið - 07.09.1981, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1981.
„Nú sérOu mig. Eg beygði mig bara niður tíi að hvíla mig." Ein myndin úr
bókinni Krakkar krakkar.
Krákkar krakkar — nýstárleg kennslubók:
Samin til að þjálfa
mál- og lestrarþroskann
Varð œðislega glöð
að fá þetta starf
— hefur alltaf langaö að kynnast sjónvarpi,
segir Guðmunda sem var ein af sextíu
umsækjendum.
„Það er geigvænlegur skortur á
bókum handa krökkum, sem eru að
byrja að lesa sjálf. Ég hef kennt á
þessu aldursstigi og fundið mjög fyrir
þessum skorti,” sagði Guðbjörg
Þórisdóttir einn þriggja höfunda
bókarinnar Krakkar krakkar. Hinir
höfundarnir eru Jóhanna Einars-
dóttir og Kristján Ingi Einarsson ljós-
myndari. Jóhanna og Guðbjörg eru
báðar kennarar.
Krakkar krakkar er bók til að
lesa, skoða og ségja frá. „Við
miðuðum viö aö bókin hentaði
börnum allt niður í tveggja til þriggja
ára að aldri,” sagöi Jóhanna Einars-
dóttir. „Ljósmyndir Kristjáns Inga
eru vel til þess fallnar að börnin
skoði þær og segi síðan frá þvi hvað
er að gerast á þeim. Einnig bjóða þær
upp á umræður milli barnsins og
leiðbeinanda þess. Myndlestur sem
þessi er ágæt æfing áður en sjálft
lestrarnámiðhefst.”
í bókinni Krakkar krakkar er á
fjórða tug ljósmynda eftir Kristján
Inga Einarsson. Myndirnar voru
þannig valdar að höfundarnir fengu
nokkur börn á aldrinum sex til átta
ára til að velja þær. Krakkarnir
röbbuðu síðan fram og aftur um
myndirnar og er texti bókarinnar
byggður á þeim samtölum.
„Við lögðum áherzlu á að hafa
stuttan texta og stórt letur,” sagði
Guöbjörg Þórisdóttir. „Það er
mikilvægt að barn sem er nýbyrjað
að lesa geti lokið við bók. Þvi fylgir
viss ánægjutilfinning. Því vildum viö
ekki hafa textann of langan. Og
Jóhanna bætti við:
„Fram til þessa hafa lestrarbækur
alltaf verið mjög tæknilega upp
Ingvar Gíslason menntamála-
ráðherra skrapp norður til Akureyrar
á dögunum og tók fyrstu
skóflustungu að nýjum verkmennta-
skóla. Blfðskaparveöur var þennan
dag og kom fjöldi fólks til aö vera
viðstatt þennan merka áfanga i sögu
skólamála á Akureyri.
Ingvar flutti ávarp við þetta
tækifæri og rakti þróun 1 skóla-
málum á Akureyri. Verkmenntaskól-
inn mun gerbreyta aðstöðu
Akureyringa til framhaldsnáms.
Skólahúsið verður um sjö til átta
þúsund fermetrar en fyrsti áfangi 874
fermetrar. Mun 1 honum veröa
járnsmiöa- og vélsmiðadeild. öll
verkfræðiþjónusta er i höndum
Verkfræðistofu Norðurlands.
G.Sv. Akureyri/ELA.
4C
Ingvar Gísia-
sontekurhór
fyrstu skófíu-
stunguað
nýjum verk-
menntaskóla
á Akureyri.
DB-mynd
Guðmundur
Svansson Ak.
„Ég sótti um starfið þegar það var
auglýst núna í ágúst og var ein af
sextiu umsækjendum. Ég held að
prófaðir svo ég hafði ekki mikla trú
á að ég fengi það,” sagði ný
sjónvarpsþula, Guðmunda Jóns-
dóttir, 23ja ára. Guðmunda kemur 1
stað Birnu Hrólfsdóttur sem biður
þess að þriðja barn hennar fæðist.
Þulurnar eru alls fimm og skipta á
milli sin kvöldunum.
„Þegar ég kom í prufu var ég
sminkuð og fékk texta til að lesa.
Hann var vélritaður, svipaður og
notaður er við útsendingar. Ég
reundi auðvitað að gera þetta eins
vel og ég gat,” segir Guðmunda enn-
fremur og skellihlær, enda glaðlynd
aðeðlisfari.
„Þar sem ég átti eiginlega ekki
von á því að fá starfið varð ég
æðislega glöð þegar hringt var í mig
og mér tilkynnt þetta. Það kom mér
mest á óvart fyrsta kvöldið, hvað allir
voru almennilegir og hjálpsamir. Ég
fékk að fylgjast með útsendingu á
mánudagskvöÚ með Kristlnu Bjama-
dóttur og það hjálpaði mér mikið
fyrsta daginn. Katrín þula var einnig
með mér fyrsta kvöldið mitt og hún
var jafnindæl og allir aðrir þarna.”
— En hvað gerðirðu á milli þess
sem þú kynntir?
„Ég sat bara og prjónaði,” sagði
Guömunda og enn hlær hún. „Ég hef
að vísu 8—10 sjónvarpsskerma til að
velja úr svo ég missi ekki af neinu i
sjónvarpinu.”
— Hvað sagði fólk daginn eftir að
þú hafðir birzt á skerminum?
„Já, ég var nefnilega ekki búin
að segja neinum frá þessu, vildi koma
á óvart, svo það urðu allir mjög
hissa. Sumir trúðu þvi varla að þetta
hefði verið ég. Þetta venst þegar
nýjabrumið er farið af,” svaraði
Guömunda.
Hún starfar hjá Blaðaprenti sem
setjari og svo er einnig inn eiginmann
hennar Berg Garðarsson prentara. Af
hverju ég sótti um? Jú, mig hefur
alltaf mikið langað til að kynnast því
sem fram fer innan veggja
sjónvarpsins. Ég hafði komiö þarna.
inn einu sinn áöur. Þá var ég áhorf-
andi í tónlistarþætti með nemendum
Verzlunarskólans,” sagði Guð-
munda, nýjasta og jafnframt yngsta
þulan.
-ELA.
Akureyri:
Fyrsta skóflu-
stunga að
verkmenntaskóla
Guðmunda Jónsdóttir hóf störf
hjé sjónvarpínu sl. þriðjudags-
kvöld og hefur nú birzt ó skjónum
tvisvar. Hún kemur í stað Bimu
Hrólfsdóttur en alls eru þuiumar
fimm.
byggðar. Stuttu orðin koma fyrst og
svo smáþyngist lesturinn. Viö förum
ekki eftir þessari formúlu.
Sömuleiðis mun þetta vera í fyrsta
skipti hér á landi sem Ijósmyndir eru
notaöar til að byggja textann 1
kringum. Hingað til hafa teikningar
verið notaðar.”
Það er bókaútgáfan Bjallan sem
gefur bókina út.
„Það er eftirtektarvert að Bjallan
tima og Námsgagnastofnun getur
ekki gefið út bækur vegna peninga-
leysis,” sagði Krisján Ingi. „Þetta er
forlag sem hefur litið fjármagn og er
eiginlega rekið af hugsjón einni
saman án nokkurrar vonar um
gróða. Mér finnst að við verðum að
gefa Bjöllunni svolítið hrós hér í
endann vegna þess að hjá fyrir-
tækinu eru varla til peniqgar fyrir
auglýsingum.”
son og Jóhanna Einarsdóttir.
DB-mynd: Sig. Þorri.