Dagblaðið - 11.09.1981, Síða 5
5
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1981.
Símtöl inná sjónvarpinu
- í miðri bíómynd hlusta Snæfellingar á símtöl milli Stykkishólms og Reykjavíkur
Ástand í sjónvarpsmálum á utan-
verðu Snæfellsnesi hefur verið það
slæmt síðan sjónvarp hófst á ný eftir
frí að íbúarnir hugleiða nú að vera
ekkert að flýta sér að greiða afnota-
gjöldin.
Ástandið var búið að vera slæmt í
áraraðir. Mikið var um það að heilar
erlendar dagskrár kæmu á skjá
manna. í fyrra var komið á örbylgju-
kerfi í sjónvarpsdreifingunni og lag-
aðist ástandið þá mikið. En í sumar
fór það aftur að versna og eftir sjón-
varpsfríið er algengt að sjónvarpi slái
út. Hefur það til dæmis gerzt tvo
undanfarna laugardaga einmitt þegar
bíómyndin var sem mest spennandi.
Hljóðtruflanir hafa einnig verið
miklar, stundum svo að ekki hefur
verið hægt að hafa hljóðið á. Algengt
er að símtöl komi inn á hljóðkerfið
og geta menn þá setið, horft á frétt-
irnar og hlustað á meðan á samtöl
manna í Stykkishólmi við Reykjavík.
Ástæðan fyrir þessu er að sögn
starfsmanna við mælaborð Lands-
símans sú að nýja örbylgjan er biluð.
Landssíminn tekur sem kunnugt er
að sér að dreifa sjónvarpsefninu og er
mönnum á Nesinu vísað á mæla-
borðið með kvartanir. Sjónvarps-
menn segjast hreinlega ekki fá upp-
lýsingar um það hvað er að og hvað
er við því gert. Finnst mönnum á
Nesinu að með öllum þeim mikla
mannafla sem Landssíminn hefur í
sinni þjónustu og öllu því fé sem sagt
er að sjónvarpið borgi fyrir dreifing-
una sé engin goðgá aðætlast til að
gert sé við þessa bilun á nokkrum
dögum í stað þess að liði á annan
mánuð áður en byrjað er.
-DS/Hafstcinn, Hellissandi.
Ibúamir skipta
sjálfir um hita-
lögn i götunni
------------\
Reykjahlíð
við
Mývatn:
-
íbúar við Lynghraun í Reykjahlíðar-
hverfi við Mývatn Iáta ekki bíða eftir
sér þegar ákveðið er að gera eitthvað.
Undarfarin misseri hefur hitaveituæðin
í götunni hjá þeim verið stöðugt að
þrengjast og versna og því tóku þeir sig
til í gærmorgun og byrjuðu að skipta
um æð. Verkstjórar frá hreppnum
fylgdust með verkinu og stjórnuðu því.
Um kaffileytið siðdegis í gær voru
íbúarnir í húsunum tíu um það bil
hálfnaðir með gröftinn og var hver með
sína skóflu. Enn voru nokkrir íbúa við
götuna í vinnu þannig að von var á að
verkið gengi enn betur þegar tóm gæf-
ist fyrir fleiri. Gera menn sér vonir um
að verkinu verði lokið um helgina.
En fleira er að gera í Mývatnsssveit.
Göngur standa sem hæst og verður
réttað á laugardag. Áætlað er að slátr-
un hefjist á þriðjudaginn, 15. septem-
ber, sem er nokkuð fyrr en annars
staðar á landinu.
Þá eru garðeigendur í Bjarnarflagi
önnum kafnir við að taka upp kart-
öflur sínar, rófur og kálmeti.
Uppskera hefur verið góð, svipuð og í
fyrra, en ein kartöflutegund — b'nté —
hefur verið áberandi góð, skilað allt að
17-faldri uppskeru.
-ÓV/FB, Reykjahlíð.
Vængjasláttur
fiðrildisins
vakti íbúana
Þegar Erna Björk Markúsdóttir,
Eyrarvegi 3 Grundarfirði, vaknaði
morgun einn fyrir stuttu heyrði hún
mikinn hávaða frammi í forstofu húss-
ins. Þar sem annað heimafólk heyrði
líka lætin gat ekki verið um ímyndun
hjá Ernu Björk að ræða og hún trítlaði
þvi fram í forstofu til að athuga hver
hávaðavaldurinn væri. í ljós kom að
fiðrildi eitt litfagurt bar ábyrgð á
þessum látum, en fiðrildið hafði lokazt
inni i húsinu og fann ekki útgöngu-
leiðina þrátt fyrir mikla leit. Erna
Björk náði að veiða fiðrildið stóra og
reyndist það vera af árníals-tegund, en
þau fiðrildi verða allt að þrír cm að
stærð. Vænghaf þessa fiðrildis reyndist
vera 5 cm. -SA/BC, Grundarfirði.
'Hraustasta önd á tslandl? Dúi
Björnsson ásamt öndlnni sem mink-
urinn réðst á i húsagarði á Akureyri.
, Ljósm.: GK, Degi.
Ovæntur end-
irá ójöfnum
bardaga
Akureyrskar endur eru hraust-
leikaskepnur ef mið má taka af önd
sem á heima i garðinum að Eyrar-
landsvegi 29 þar í bæ. Hún lifði af
árás illskeytts minks og er óðum að
ná sér, nokkuð skelkuð að visu.
Húseigandinn, Dúi Björnsson,
vaknaði viö það eina nóttina fyrir
skemmstu að mikill gauragangur
barst úr húsagarðinum, þar sem Dúi
og kona hans hafa verið með tvær
endur sér til skemmtunar. Þegar hús-
bóndinn fór að athuga málið sá hann
sér til hrellingar að minkur hafði náð
annarri öndinni i kjaftinn og var
nokkuð augljóst hvað fyrir varginum
vakti. Dúi hljóp út og að minknum,
sem hélt bráö sinni sem fastast, en
sneri svo við og náði sér í hrifu. önd-
in gargaði og skrækti og þá lét Dúi
hrifuna vaða af öllu afli í minkinn,
sem sleppti og forðaði sér inn í
runna. Síðan hefur ekki til hans
spurzt, að sögn Akureyrarblaösins
Dags. Talsvert sá á öndinni en nú er
hún á batavegi. -ÓV.
Samvinna kommúnista
ogkrata?
Opinn fundur
á mánudag
Geta kommúnistar og kratar unnið
saman á íslandi? Kommúnistasam-
tökin leita svara við þeirri spurningu
á opnum umræðufundi sem veröur á
mánudagskvöld á Hótel Borg. Þetta
er i framhaldi viðræðna nokkurra
alþýðuflokksmanna, undir forystu
Vilmundar Gyifasonar alþingis-
manns, við þennan smáflokk.
Kommúnistasamtökin hafa boðið til
fundarins ræðumönnum frá Alþýðu-
flokki og Nýju landi, málgagni Vil-
mundar, auk Alþýðubandalags og
Fylkingarinnar. -HH.
Áskriftarsími
Eldhúsbókarinnar
24666
ELDHUSBOKIN
L’rfv jiiuotu 14
FjÖlritum|
sam-
dsegurs
Opið
ALLAN
4
É m
HREVF/LL
5
S I FJOLRITUN
rJP I LJÓSRITUN
VÉLRITUN
STENSILL
ÓÐINSGÖTU 4 • REYKJAVÍK - SIMI24250
STÆRSTA BIFREIÐASTÖÐ BORGA^
cc
/