Dagblaðið - 15.10.1981, Page 2

Dagblaðið - 15.10.1981, Page 2
2 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15.0KTÓBER 1981. Sö/uturn eða sjoppa óskast til kaups á Stór-Re.ykjavíkursvæöinu. Lysthafendur hringi til auglýsingaþjónustu DB í sima 27022 eftir kl. 12. H—1001. EIGNANAUST HF. SKIPHOLTI5 SÍMAR 29555 0G 29558 OPIÐ KL. 1-5 LAUGARDAGA 0G SUNNUDAGA. Hraunteigur 2— 3ja herb. kjallaraíbúð, 83 ferm. Lítið niðurgrafin. Mjög snyrtileg íbúð. Verð 480 þús. Krummahóiar 2ja herb. íbúð á 2. hæð, 40 ferm. Bílskýli. Verð 420 þús. Guðrúnargata 2ja herb. kjallaraíbúð, ósamþykkt. Verð 380 þús. Mosgerði Einstaklingsíbúð, ca 30 ferm. Ósamþykkt. Verð 220 þús. Lyngmóar 3ja herb. 80 ferm íbúð á 2. hæð. Bílskúr. Verð 580 þús. Hjallavegur 3— 4ra herb. íbúð á jarðhæð, 75 ferm. Sér inngangur. Verð 530 þús. Ásvaiiagata 3ja herb. kjallaraíbúð, 75 ferm. Verð 450 þús. Hæðargarður 3ja herb. jarðhæð, lítið niðurgrafin, ca 70 ferm. Verð 480 *. þús. Rauðaiækur 4— 5 herb. íbúð á 3. hæð, 115 ferm. Verð 880 þús. Háaleitisbraut 4ra herb. íbúð á 4. hæð, 117 ferm. Bílskúr. Verðtilboð. Lækjarkinn 5 herb. 120 ferm íbúð. Bílskúr. Verð 750 þús. Fellsmúli 4—5 herb. íbúð á 1. hæð, fæst í skiptum fyrir góða 3ja herb. íbúð. Vorsabær 150 ferm einbýli á 1 hæð, 35 ferm bílskúr. Upplýsingar aðeins gefnar á skrifstofunni. Akranes Verzlunarhúsnæði á 3 hæðum sem stendur við aðal verzl- unargötu bæjarins. 60 ferm grunnflötur. Verð 600 þús. Hveragerði Raðhús tilbúið undir tréverk. 110 ferm. Bílskúr ca 50 ferm. Verð480 þús. Sandgerði 140 ferm. einbýlishús á 1. hæð. Bilskúr 50 ferm. Verð 850 þús. Óskum eftir 3ja herbergja íbúð í Árbæjarhverfi. Staðgreiðsla fyrir rétta eign. SKOÐUM OG METUM ÍBÚÐIR SAMDÆGURS. GÓÐ 0G FUÓT ÞJÓNUSTA ER KJÖRORÐ OKKAR. AUGLÝSUM ÁVALLT í DAGBLAÐINU Á ÞRIÐJUDÖGUM 0G FIMMTUDÖGUM. EIGNANAUST, Þ0RVALDUR LÚÐVÍKSSON HRL. „Hvers vegna á aö byggja útvarpshús þegar talaö er um að það eigi að hverfa frá rikisrekstrí útvarps og sjðnvarps?” — spyr Siggi flug. DB-mynd: Kristján Örn. Þrjár nýjar byggingar —og aukin byrði skattborgarans Siggi flug, 7877—8083, skrifar: í fréttum sjónvarpsins í gærkvöldi þ. 11. þ.m. voru okkur sýndar þrjár byggingar, sem við, skattborgarar og það neyzluþjóðfélag sem við byggjum, verðum að borga næstu tvo til fjóra áratugina eða svo. Ég á við Hús verzlunarinnar, Borgarleikhúsið og svo Utvarpshöllina, sem þegar er farið að kalla nýja útvarps- og sjónvarpshúsið, tilvonandi. Hvað eiga nú þessi skrípalæti að þýða? Hús verzlunarinnar er máski þess megnugt að vera hús, sem stendur undir sér sjálft, en það eru hin húsin ekki. Hvers vegna á að byggja út- varpshús, þegar talað er um að það eigi að hverfa frá ríkisrekstri útvarps og sjónvarps? Frjálsræði í þeim efnum er á næsta leiti eins og svo margt annað. Útvarpshúsið verður ekki byggt fyrir neina aðra peninga en þá, sem útvarps- og sjónvarpsnotendur greiða með hækkuðum gjöldum. Þessi rekstur er að verða frjáls í öðrum löndum en við rjúkum upp til handa og fóta og ætlum okkur að byggja höll fyrir þessa starfsemi. Aður en lýkur verða sjónvarpstungl hvers manns „eign” og til þess að horfa á stóran hluta þess sem sjónvarpað verður þarf einfaldlega enga höll. Útvarp og sjónvarp á íslandi er lélegt en það getur svo sem vel verið að þetta sé enn lélegra á hinum Norðurlöndunum. Þeir um það. Sjónvarpið er afþreying, og því ber skylda til að sjónvarpa góðu efni, en sízt af öllu sænsku klámi og hrotta- fengnum myndum, sem búast má við að sjónvarpað verði á næstunni (Sbr. kaup á sænskum myndum fyrir milljónir). Sjónvarpið er ekkert einkafyrir- tæki og því ber að sýna fólki myndir sem einhver afþreying er í en ekki sænskt né norskt klám sem er sýnt í skjóli þess að um samnorræna menningu sé að ræða. Hvað er annars samnorræn menning? Ég vil a.m.k. vera laus við þá sænsku. íslendingar eiga einir og óstuddir að vera nokkurskonar útvörður í vestri, gegn áhrifum úr þeirri átt, en Norðurlöndin geta margt lært af vestrænum þjóðum, svo sem tækni og margt annað. Við eigum svo von á því að borga með útsvari okkar í kannski 50 ár eða svó nýtt Borgarleikhús. Til hvers? Eftir svo sem 2 ár á Leikfélag Reykjavíkur 90 ára afmæli/og gert er ráð fyrir því að hið nýja leikhús verði fokhelt þá. Hvað skyldu liða mörg ár þangað til það verður tilbúið? Gamla Iðnó er búið að duga i mörg ár og á fjölum gamla Iðnó hafa okkar færustu leikarar í Þjóðleik- húsinu stigið sín fyrstu spor. í gegnum árin hefur gamla Iðnó öðlazt sál eins og brezkur leikhús- maður sagði, er hann steig upp á sviðið í Iðnó. Hann sagði: „Þetta hús hefur sál.” Hann fann lyktina af gömlu sminki, hann fann myglulyktina og hann fann að allt andrúmsloftið var þrungið áratuga gömlum leiksýningum, sem þar höfðu farið fram. Nú á að hefja leiklist eftir kannski 50 ár á nýjum fjölum Borgar- leikhússins, í sálarlausu húsi, þar sem mun taka a.m.k. 100 ár að koma á því andrúmslofti sem gamla Iðnó hefur í dag. Það er hægt að breyta Iðnó gamla, munum það, og gerum það, og endurnýjum og framlengjum sálina þar. Mér datt þetta (svona) í hug. Útigallinn hækkaði um 100 krónur á 3 dögum — „Byggt á misskilningi” segir talsmaður Mæðrabúðarinnar Margrét Haraldsdóttir hringdi: Ég vildi gjarnan segja ykkur dálitla sögur»sem snýst um sérstaka verzlunarhætti. Þannig er mál með vexti að ég á tveggja mánaða gamalt barn og eins og gengur og gerist hef ég fengið talsvert af fatagjöfum og þ.á m. 4 útigalla. Mér fannst það nú e.t.v. einum of mikið að vera með þá alla í notkun í einu svo ég ákvað að skila einum þeirra, sem keyptur var i Mæðrabúðinni. Ég tók mér því ferð á hendur og vildi skila gallanum. Var það tiltölulega auðsótt en þegar af- greiðslukonan sagði mér að hann kostaði ekki nema 115 krónur varð ég hvumsa. Eftir nokkurt þjark féllst ég þó á að það gæti verið rétt en þarna var t.d. til innigalli úrvelúrefni á 147 krónur. Það sem gerist svo er að ég segi sem svo við sjálfa mig að ég geti alveg eins átt þennan útigalla og gerði mér því aðra ferð í verzlunina. Þetta var á laugardegi en ég skilaði gallanum á miðvikudegi. Þennan umrædda laugardag var önnur kona við afgreiðslu og þegar ég sagðist ætla að kaupa þenna útigalla (þann sem ég hafði skilað) tjáði hún mér að hann kostaði 215 krónur. Hann hafði sumsé hækkað um 100 krónur á 3 dögum. Ég benti henni þá á að ég hefði komið með hann nokkrum dögum áður og fengið greiddar 115 krónur fyrir hann. Það var eins og við manninn mælt — hún seldi mér hann á 115 krónur. Hefði hins vegar einhver annar orðið á und- an mér efast ég ekki um að 215 krónur hefðu verið endanlegt verð. Ég vil að þetta komi fram þvi þetta er ekki eina dæmið, sem ég veit um frá þessari verzlun. Árni hringdi: Ég hef undanfarið reynt-að ná til háls- nef- og eyrnalæknis, en ekkert gengið. Nú hef ég t.d.reynt að hringja i heilan klukkutíma, án þess svo mikið sem að ná sambandi við þennan lækni, sem að auki hefur ekki síma- tíma nema tvisvar í viku. Læknarnir eru nýbúnir að fá launahækkun svo hvernig væri að við Svar. Dagblaðið hafði samband við Mæðrabúðina og viðmælandi okkar þar kvað þetta allt á misskilningi byggt. Uppgefið verð hefði verið rangt í öndverðu. Það hefði allan tímann átt að vera kr. 215, en úr því svona hefði legið í málinu hefði verið talið eðlilegt að hún fengi flíkina fyrir sama verð og henni var borgað fyrir hann í fyrstunni. -SSv. almenningur fengjum aukna þjónustu í staðinn? Ég beini þeirri hugmynd til Svavars Gestssonar, heilbrigðis- og tryggingaráðherra, að hann hvetji unga lækna til þess að velja sér fá- mennar sérgreinar fram yfir aðar. Sérfræðingarnir eru of margir á sumum sviðum, en of fái'r á öðrum, og hjá þeim síðari er svo til ómögulegt að komast að. Erfittaðnáíháls- nef- og eyrnalækni — of margir í sumum sérgreinum, of fáir í öðrum * h

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.