Dagblaðið - 15.10.1981, Side 16
16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 15. OKTÓBER 1981.
I
Iþróftir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
ATTA MARKA SIGUR
FH VAR ALLT OF STÓR
— eftir f yrri hálfleik týndi HK áttunum um tíma og missti leikinn úr höndum sér
D
Þóll FH-ingar hafi unnið átta
marka sigur á HK aö Varmá í gær-
kvöld, 30—22, geta þeir á engan hátt
verið ánægðir með frammistöðu sína
því það var miklu nær að mistök á mis-
tök ofan hjá HK, samfara fádæma
óheppni, færðu Hafnarfjarðarliðinu
svo stóran sigur. F.ftir jafnan fyrri hálf-
leik, 13—13, áttu menn von á svipuðu
framhaldi í þeim síðari og sú varð
reyndar raunin framan af, en siðan
sprakk HK-blaðran. Leikmenn gerðu
sig seka um alls kyns vitlcysur og lánið
lék heldur ekki við þá. FH gerði út um
leikinn á skömmum tima og komst 10
mörkum yfir þegar bezt lét. HK náði
HM íknattspyrnu:
Danir gerðu
Grikkjum
grikk
Danir gerðu Grikkjum grikk með
því að vinna þá 3—2 í Saloniki í
undankeppni HM. Þar með eru Grikkir
úr leik og Júgóslavía og ítalia fara í úr-
slitin nema einhver undur og stórmerki
gerist.
Danir voru mjög ógnandi í byrjun
og strax á 8. mín. óð Sören Lerby í
gegnum grísku vörnina og skoraði.
Frank Arnesen bætti öðru tnarki við
beint úr aukaspyrnu á 28. mín., 0—2.
Grikkir minnkuðu muninn á 60. mín.
er Anastopoulos skoraði með skalla
eftir aukaspyrnu. Preben Elkjær kom
Dönum í 1—3 aðeins fimm minútum
síðar en Kostikos náði að minnka
muninn á 85. mín. með skoti af stuttu
færi.
Lið Dana var þannig skipað: Quist,
Rasmussen, Nielsen, Röntved, Lerby,
Bertelsen, Olsen, Arnesen, (Ziegler),
Simonsen, Bastrup, Elkjær.
Staðan í 5. riðli:
Júgóslavia 5 4 0 1 14—5 8
ítalia 5 4 0 1 9—3 8
DSnmörk 8 4 0 4 14—11 8
Grikkland 6 3 0 3 8—10 6
Luxemburg 6 0 0 6 1 —17 0
Leikir sem eftir eru: 17. október:
Júgóslavía-Ítalía. 14. nóvember: ítalia-
Grikkland. 21. nóvember: Júgóslavía-
Luxemburg. 29. nóvember: Grikkland-
Júgóslavia. 12. desember: Ítalía-
Luxemburg.
-VS.
aöeins að laga stöðuna undir lokin.
Strax í upphafi virtist svo sem FH
myndi vinna auðveldan sigur þvi þeir
komust í 4—1 og síðan 7—3. Með
harðfylgi tókst HK að jafna metin á
stuttum tíma, jafnvel þótt liðið
brenndi af vítakasti. Á þessum tima og
reyndar alveg þar til undir lok leiksins
var alvcg nóg að hitta markrammann
hjá FH — allt hafnaði í netinu. Eftir að
HK hafði tekizt að jafna, 7—7,
skiptust liðin á um að skora út hálf-
leikinn — FH þóalltaf á undan.
í upphaft síðari hálfleiksins náði
Magnús Guðfinnsson, bezti maður
HK, að færa liði sínu forystu í fyrsta og
eina skiptið. FH svaraði með þremur
mörkum í röð en í sundur skildi þó ekki
almennilega fyrr en 6 mín. voru til
leiksloka. Staðan var þá 24—19, er
Einar Þorvarðarson varði vítakast
Sveins Bragasonar. FH náði hins vegar
knettinum strax aftur eftir slæm mistök
og Þorgils Óttas Mathiesen skoraði 25.
markið. í kjölfarið fylgdu svo 5 mörk
FH í röð og burst var orðið ljóst. Þrátt
fyrir að HK ætti tvö síðustu mörkin
varð skellurinn ekki umflúinn.
Það er hægt að tína til ótal atvik þar
sem klaufaskapur og óheppni í biand
fór illa með HK. Dómgæzlan var þeim
heldur ekki hagstæð án þess að hér sé
verið að saka dómarana, þá Árna
Tómasson og Óla Olsen — sem dæmdu
reyndar ágætlega — um hlutdrægni.
Mistök þeirra bitnuðu einfaldlega
meira á Kópavogsliðinu.
FH-liðið var afar slakt í þessum leik
Körfubolti:
Stórsigur
Laugdæla
Tveir leikir fóru fram á íslands-
mótinu í körfuknattleik í gærkvöldi.
Úrslit urðu þessi:
1. deild kvenna
Laugdælir—Njarðvík 90—21
2. dcild karla
Breiðablik—Bræður
51—48
Alli Arason, fyrrutn leikmaður Ár-
manns, skoraöi 29 stig fyrir Breiðablik
en var samt ekki stigahæsti maður
vallarins. Árni skoraði 30 stig fyrir
Bræðurna. í hálfleik var staðan 24—22
Breiöablik í vil.
-VS.
HM í knattspyrnu:
Vestur-Þjóðverjar
komnir í úrslitin
—Austurríki og Búlgaría berjast um
annaðsætið
Tveir leikir voru í 1. riðli
undankeppni HM í gærkvöldi. Vestur-
Þjóðverjar tryggðu sér sæti í
lokakeppninni með því að sigra
Auslurríki í Vín 1—3. í Tirana í
Albaniu léku Albanir og Búlgarir og
sigruðu Búlgarir 2—0. Baráttan um
annað sætið stendur því á milli Austur-
ríkis og Búlgariu.
Austurríki náði forystunni í Vín,
70.000 áhorfendum til mikillar ánægju,
á 15. mín. Walter Schachner fékk
knötinn við miðju, stakk varnarmenn'
Vestur-Þjóðverja af og sendi knöttinn
fram hjá Toni Schumacher. Ánægjan
stóð ekki lengi. Tveimur mínútum síðar
jafnaði Pierre Littbarski eftir sendingu
frá Karl-Heinz Rummenigge. Og
aðeins þrjár mínútur i viðbót liðu þar
til Vestur-Þjóðverjar höfðu náð
forystunni, Felix Magath skoraði með
þrumuskalla. Austurríkismenn sóttu
linnulítið í siðari hálfleik en Vestur-
Þjóðverjar skoruðu, Littbarski sitt
annað á 77. mín. Lið Vestur-Þjóðverja
var þannig skipað: Tony Schumacher,
Manfred Kaltz, Uli Stielike, Karl-Heinz
Förster, Hans-Peter Briegel, Wolfgang
Dremmler, Paul Breitner, Felix
Magath, Pierre Littbarski, Klaus
Fischer, Karl-Heinz Rummenigge.
Albanía var sterkari aðilinn í fyrri
hálfleiknum gegn Búlgaríu, en tókst
ekki að skora. Slavkov náði forystunni
yrir Búlgari á 49. mín. og eftir það réðu
þeir gangi leiksins. Mladenov skoraði
síðara markið á 84. min.
Staðan í 1. riðli:
Vestur-Þýzkaland 6 6 0 0 21—3 12
Austurríki 7 5 0 2 16—6 10
Búlgaría 6 4 0 2 11—6 8
Albanía 7 10 6 4—14 2
Finnland 8 10 7 4—27 2;
Leikir sem eftir eru: 11. nóvember:
Búlgaría-Austurríki. 18. nóvember:
Vestur-Þýzkaland-Albanía. 22.
nóvember: Vestur-Þýzkaland-Búlgaría.
,-VS.
og sannast sagna skaraði enginn
leikmanna fram úr. Ungu mennirnir
Kristján Arason, Sveinn Bragason,
Pálmi Jónsson og Óttar Mathiesen allir
sterkir og Sæmundur góður framan af.
Hjá HK var Magnús . G^ðfinnsson
sterkastur, Bergsveinn hættulegur í
hægra horninu, Ragnar og Kristinn
sterkir í vörninni og Þór Ásgeirsson,
nýliði ógnandi. Að baki vörninni varði
Einar Þorvarðarson prýðilega, m.a.
tvö víti. Gunnar Eiriksson var sprækur
í fyrri hálfleik en var lítt áberandi í
þeim síðari.
Mörkin. FH: Kristján Arason 6/2,
Sveinn Bragason 5/3, Pálmi Jónsson 5,
Þorgils Óttar Mathisen 5, Sæmundur
Stefánsson 5, Guðmundur Magnússon
3 og Hans Guðmundsson 1. HK:
Gunnar Eiríksson 5, Magnús
Guðfinnsson 5, Bergsveinn Þórarins-
son 4, Kristinn Ólafsson 3, Þór
Ásgeirsson 2, Ragnar Ólafsson 2 og
Einar Þorvarðarson (yfir endilangan
völl) 1.
FH fékk 7 víti — nýtti 5. Einar varði
einu sinni frá Kristjáni og einu sinni frá
Sveini. HK fékk 2 víti — nýtti hvorugt.
Ragnar skaut í stöng og Hafliði
Halldórsson, sem kom aðeins inn á til
að taka þetta eina víti, brenndi sinu af.
Þremur úr HK var vísað af leikvelli,
Þór tvívegis, og Einari einu sinni. Einar
fékk reisupassann fyrir að mótmæla
dómi og Þór einnig í annað sinnið. FH
missti tvo menn út af, Hans og
Valgarð.
-SSv.
Johan Neeskens lék á
lendmgumog átti stóran
gegn Belgum.
ný með Hol-
þátt isigrinum
HM íknattspyrnu:
Þrjú lönd eiga ennþá
möguleika í 2. riðli
— írland, Holland og Frakkland berjast um Spánarförina
Spennan er nú komin í hámark i 2.
riðli undankeppni HM. Þrjú lönd eiga
möguleika á að fylgja Belgíu í úrslita-
keppnina, írland, Holland og
Frakkland. írar unnu góðan sigur yfir
Frökkum í Dublin i gærkvöld, 3—2, en
verða að treysta á jafntefli Frakka og
Hollendinga til að ná öðru sætinu.
Holland vann Belgíu 3—0 í Rotterdam
og lagaði stöðu sína nokkuð.
Frakkar færðu Irum forystuna á
silfurfati eftir 5 mínútur þegar Mahut
skoraði sjálfsmark. Þremur mínútum
síðar skoraði nýliðinn Bruno Bellone
jöfnunarmark Frakka en miðherjarnir
verðmætu, Frank Stapleton og Mike
Robinson.komu írum í 3—1 fyrir hálf-
leik. Mjög dofnaði yfir írum í siðari
hálfleik en Frakkár náðu ekki að skora
fyrr en á 83. mín., Michel Platini, og
eftir það sóttu þeir látlaust að marki
íranna án árangurs.
Lið írlands: Jim McDonagh; David
Langan, David O’Leary, Kevin Moran,
Chris Hughton, Ron Whelan, Mick
Martin, Mark Lawrenson, - Liam
Brady; Frank Stapleton, Mike
Robinson.
Lið Frakklands: Jean Castemeda,
Gerard Janvion, Maxime Bossis,
Philippe Mahut, Didier Christophe,
Christian Lopez, Rene Girard, Jean
Francois Larios, Michel Platini, Alain
Couriol, Bruno Bellone.
Johan Neeskens lék nú að nýju með
hollenzka landsliðinu og átti stórleik
gegn Belgum. Hollendingar sóttu nær
látlaust frá fyrstu mínútu og hefðu get-
að unnið stærri sigur. Johnny Metgod
skoraði strax á 6. mín. og Kees van
Kooten jók forystuna á 26. mín.
Frank Stapleton skoraði fyrir íra gegn
Frökkum.
Skömmu fyrir hálfleik var Belganum
Walter Meeuws vikið af leikvelli fyrir
brot á Metgod og Belgar áttu enga
möguleika eftir það. Ruud Geels bætti
Reykjavíkurmótið íblaki:
Þróttur
meistari
Þróttur varð í gærkvöldi Reykja-
víkurmeistari í blaki karla er liðið vann
Stúdenta 3—1. ÍS tókst aðeins að vinna
fyrstu hrinu leiksins 15—13, en næstu
þrjár unnu Þróttarar 15—6, 15—8 og
15—13.
í kvennaflokki varð það hins vegar
ÍS sem bar sigur af hólmi í mótinu.
Liðið vann Þrótt 3—1.
Um þriðja sætið hjá körlunum
börðust Víkingur og Þróttur II og varð
fyrrnefnda liðið ofan á, vann 3—0.
-KMU.
þriðja markinu við á 54. mín. Holland
þarf nú að sigra Frakkland á útivelli til
að komast í úrslitin.
Lið Hollands; Van Breukelen, Van
de Korput, Krol, Metgod,
Hovenkamp, Thijssen, Neeskens,
Muhren, La Ling, Van Kooten,
(Geels), Rep.
Lið Belgíu: Pfaff, Gerets, Luc
Millecamps, Meeuws, Renquin, Marc
Millecamps, Vandereycken, Ver-
cauteren, Voordeckers, (Cluytens),
Snelders, (Plessers), Czerniatinsky.
Staðan í 2. riðli:
Belgía 8 5 12 12—9
Irland
Holland
Frakkland
Kýpur
8 4 2 2 17—11
7 4 12 11—5
6 3 0 3 14—8
7 0 0 7 4—25
11
10
9
6
0
Leikir sem eftir eru: 18. nóvember:
Frakkland-Holland. 5. desember:
Frakkland-Kýpur.
-VS.
Víkingurfékk
Atl. Madrid
— en ÞrótturogFH
létta mótherja
1 gær var dregið til 2. umferðar í
Evrópumótunum í handknattleik.
íslandsmeistarar Víkings mæta
Atletico Madrid, Spáni, í keppni meist-
araliða. Víkingur á fyrri leikinn heima.
Spánska liðið er talið mjög sterkt nú,
nánast með landsliðsmenn spænska í
öllum stöðum. í keppninni 1979 lék
Valur við Atletico og sló spænska liðið
út sem frægt er.
í Evrópukeppni bikarkeppa drógst
Þróttur gegn hollenzka liðinu
Cittardia. Þróttur á heimaleikinn á
undan og ætti að hafa alla möguleika á
að komast í 3. umferð, það er átta-liða
úrslit. Í IHF-keppninni hinni nýju,
leika FH-ingar við ítalska liðið Forest
Brixen og það getur ekki verið erfiður
mótherji fyrir hafnfirzka liðið.
HM íknattspyrnu:
Ungverjar nánast öruggir
Ungverjar hafa nú nánast tryggt sér
sæti í úrslitum HM á Spáni. Þeir
sigruðu Sviss í Búdapest i gærkvöldi
3—0 og þurfa nú aðeins að sigra
Norðmenn á heimavelli til að tryggja
sæti sitt.
Nilyasi náði forystunni fyrir Ung-
verja á 17. mín. og bætti síðan öðru
marki við á 49. mín. Tíu mínútum síðar
skoraði Fazekas þriðja mark Ungverja
og sigurinn var í höfn.
Staðan í 4. riðli:
Ungverjaland 6 3 2 1 9—6 8
England 7 3 13 12—"8 7
Rúmenía 7 2 3 2 5—5 7
Sviss
Noregur
7 2 2 3 9—12 6
7 2 2 3 7—11 6
Leikir sem eftir eru: 31. október:
Ungverjaland-Noregur. 11. nóvember:
Sviss-Rúmenía. 18. nóvember:
England-Ungverjaland.
-VS.