Dagblaðið - 22.10.1981, Page 2

Dagblaðið - 22.10.1981, Page 2
2 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981 Trésmiðir óskast Fæði á staðnum. Uppl. í síma 36015 eða 34310 á skrifstofutíma og 23398 á kvöldin. RAFVIRKJAR Við óskum að ráða rafvirkja til starfa nú þegar. Af sér- stöðum ástæðum þarf hann að vera búsettur í Hafnarfirði. Umsóknum um starfið skal skilað á sérstökum eyðublöð- um til rafveitustjóra, sem veitir nánari upplýsingar um starfið. Rafveita Hafnarfjarðar. EIGNANAUST HF. SKIPHOLTI5 SÍMAR 29555 0G 29558 OPIÐ KL 1-5 LAUGARDAGA 0G SUNNUDAGA. Hjal/avegur 3— 4ra herb. íbúð á jarðhæð, 75 ferm. Sér inngangur. Verð 530 þús. Hæðargarður 3ja herb. jarðhæð, lítið niðurgrafin, ca 70 ferm. Verð 480 þús. Guðrúnargata 2ja herb. kjallaraíbúð, ósamþykkt. Verð 380 þús. Rauðálœkur 4— 5 herb. íbúð á 3. hæð, 115 ferm. Verð 880 þús. Lyngmóar 3ja herb. 80 ferm. ibúð á 2. hæð. Bílskúr. Verð 600 þús. Háalertísbraut 4ra herb. íbúð á 4. hæð, 117 ferm. Bílskúr. Verðtilboð. Fellsmúli 4—5 herb. íbúð á 1. hæð, fæst i skiptum fyrir góða 3ja herb. íbúð. Jörvabakki 4ra herb. 110 ferm íbúð á annarri hæð. Verð 680 þús. Bergþórugata 2ja herb. íbúð á jarðhæð. Verð tilboð. Laufásvegur 2ja herb. ca 60 ferm íbúð á fyrstu hæð í steinhúsi. Verð 480 þús. Lækjarkinn 5 herb. 120 ferm íbúð. Bílskúr. Verð 750 þús. Ásvattagata 3ja herb. kjallaraíbúð, 75 ferm. Verð 450 þús. Krummahóiar 2ja herb. ibúð á 2. hæð, 40 ferm. Bílskýli. Verð 420 þús. Hveragerði Raðhús tilbúið undir tréverk. 110 ferm. Bílskúr ca 50 ferm. Verð 480 þús. Sandgerði 140 ferm. einbýlishús á 1, hæð. Bílskúr 50 ferm. Verð 850 þús. Akranes Verzlunarhúsnæði á 3 hæðum sem stendur við aðal verzl- unargötu bæjarins. 60 ferm grunnflötur. Verð 600 þús. Óskum eftir 3ja herbergja íbúð í Árbæjarhverfi. Staðgreiðsla fyrir rétta eign. SKOÐUM OG METUM ÍBÚÐIR SAMDÆGURS. GÓÐ OG FLJÚT ÞJÖNUSTA ER KJÖR0RÐ 0KKAR. AUGLÝSUM ÁVALLT í DAGBLAÐINU Á ÞRIÐJUDÚGUM OG FIMMTUDÚGUM. EIGNANAUST, ÞORVALDUR LÚÐVlKSSON HRL. r Mlkill kurr er nú I menntaskólanemum vegna nýrra reglna um starfshætti áfangaskóla. Mynd þessi er frá einum af mörgum • fundum þeirra um málió. DB-mynd: Kristján örn. VIÐ BERJUMST FYRIR SJÁLFSÖGDUM RÉTTI —segja reiðir menntaskólanemar Karlaklósettsborð Menntaskólans i Hamrahiið skrifar: Ágætu lesendur, Svo hræðilegt er að koma fyrir skóla vorn að við getum vart mælt og tökum okkur því penna í hönd í von um að það beri einhvern árangur. Við, og flestir aðrir hér, völdum M. H. vegnaþess kerfis sem þar ríkir. 1 15 ár hefur áfangakerfi M.H. gengið prýöilega og fyrirrennarar okkar jafnvel fengiö hinum ýmsu bótum framgengt. M. H. er skóli sem fylgir þróun og nýjum kennslu- háttum. Hann er skóli framfara en ekki afturfara. Það er því óskiljanlegt með öllu aö nú, 1981, skuli gerð reglugerö, á vegum þeirra, er þykjast bera hag okkar fyrir brjósti, sem stuðlar að algjörum afturförum. Þeir, er standa að samningu þess- arar reglugerðar, eru 4 yfirmenn framhaldsskóla í landinu, í ráðum var enginn kennari og enginn fulltrúi frá nemendum. Hvar er lýðræðið? Hvers vegna eru „okkar hags- munamál” ekki borin undir okkur áður en þau eru gerð að lögum? Nei, ef reglugerð Ingvars og kó verður samþykkt er 15 ára starf unnið fyrir' gýg og barátta gamalla stúdenta og það sem meira er, er að M.H. verður þá ekki skólinn okkar, skólinn sem við völdum umfram aðra og sækj- umst eftir að bæta en ekki það gagn- stæöa. Við berjumst fyrir sjálfsögðum rétti og eigum heimtingu á að tekið sé tillit til okkar. Kapphlaupið íkringum gullkálfinn magnast —skrífar svartsýnn lesandi Halldór Vigfússon, Bústaðabletti 10, skrifar: Það eru ófagrar lýsingar, sem hafðar eru uppi, um stjórnarfarið í þessu landi,. Samanber hrossakaup þingmanna í kríngum kjötkatlana eða hvernig forsvarsmenn einstakra stofnana hamast ef einhver gagn- rýnir þeirra fjármálastjóm á opinber- um sjóðum almennings. Burtséð frá ferðastyrkjum, ýmissa opinberra starfsmanna, sem ekki eru skornir við trog (hálaunahópa í þjóðfélaginu). Þá magnast kapp- hlaupið í kringum gullkálfinn, sem þýðir að rotnunin eykst frá degi til dags, í stjórnkerfi þessa litla lands. Hvernær ætlar verkalýður landsins að átta sig? Það ætlar allt vitlaust að verða hjá sjálfstjórnar eigendum þessarar þjóðar, ef kaup á að hækka um fimm krónur, til ykkar sem haldið uppi þjóðarskútunni með vinnu sem fram- lögð er hörðum höndum. Skattpíning er orðin slik að helzt má líkja því við herveldi. Samanber fasteignaskatta, fyrst er greitt af launum og efni til ibúða. Þvi næst er fbúðin skattlögð á hverju ári, það er að ríkið hirðir húsnæöið á fimmtíu ára fresti og heldur betur með siauknum hraða skattiagningar. Einn ferlegasti verðbólgudraugur i þessu þjóðfélagi er Fasteignamat rikisins, þar eru bara búnar til þær tölur, sem henta þykir hverju sinni, án tillits til þess hver kostnaður var við viðkomandi húsnæöi. Hvenær verður þessi stofnun lögð niður? Er ekki tími til kominn að fólk geri sér grein fyrir hvert stefnir í þessu þjóðfélagi og afbiðji sér forustu slfkra manna? Manna sem vaða um Iandið og þjóðfélagið eins og gráðug- ir úlfar. Eða er þetta það þjóðfélag sem þið hafið hugsað ykkur að búa til í framtíðinni? Svari hver fyrir sig, og látið ekki máta ykkur á lyg- inni í þjóðmálum. Það er meir en nóg komið af slíkum óheilindum. Svo ætla ég að biðja menn að íhuga, að fátæku fólki hefur fjölgað svo hrikaiega nú siðastliðið ár, aö hver sem skoðar ætti að hræðast þá þjóðfélagsgerð sem við blasir í fram- tíðinni, ef ekki verða hækkuð laun sem endast ekki yfir helgina. íslend- ingar hafa ekki efni á að hér risi aftur eymd fyrri alda, þó að fram kæmi með öðrum hætti í dag. Klerkaráðið í íran er að skjóta Umferðarmenningin: Elisabet Heigadóttir hringdi: Ég var á leið heim i strætisvagnin- um, þegar inn í vagninn kom kunn- ingjakona mín á áttræðisaldri og benti ég henni að setjast hjá mér. Ég sá að hún var hrufluð í andliti og spurði hvort hún hefði meitt sig. „Já”, sagði hún. Það hefði ekki byrjaö vel hjá sér að mæta hjólunum á gangstéttunum. „Það skeði 1. október í vesturbæn- um að tveir unglingar hjóluðu utan í þjóð sinni aftur á steinöld. Það kraumar í kötlum Austurlanda. Þjóöir Evrópu standa ráðþrota gagn- vart nifteindasprengju Reagans Bandaríkjaforseta. Friðarhreyfingar kallar kanslari Vestur-Þjóðverja styrjöld við fiokkinn. Kannast einhver við líkinguna? Hér heima á litla íslandi telja sumir, að menn ættu að gleðjast vegna þess að ríkisstjórn íslands hefur samþykkt aukin hernaðarum- svif í Vestur-Evrópu. Hafi einhver verið að spyrja á hvaða vegi mann- kynið er statt, þá er rétt að upplýsa það. Lifsbrautin sú heitir Helvegur- inn; fimm hundruð milljónir svelta heilu eða hálfu hungri. Sér nokkur ástæðu til að þessu verði snúið við? mig og skelltu mér upp að grjót- vegg”, hélt hún áfram. Sagðist hún einnig vera öll marin á handlegg og síðu og taldi sig heppna að hafa ekki brotnað. Sagðist hún hafa sagt við drengina: „Gáið þið að ykkur”. Svarið var: „Haltu kjafti, við eigum réttinn”. Þar með hjóluðu þeir burt. Þeir eru bjartsýnir, sem leggja líf og heilsu fólks undir tillitssemi og kurteisi unglinganna í dag, þótt þetta eigiekkivið þáalla. „Haltu kjafti, við eigum réttinn” I r /.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.