Dagblaðið - 22.10.1981, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 22.10.1981, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981 | Þrífíð upp eftir hundana ykkar —það er lágmarkskurteisi Vogabúl hringdi: Eg hringi vegna lesandabréfs um stóran, svartan hund í Vogahverfi. Einhvem timann í síðustu viku voru tvær unglingsstúlkur á sprangi í Hlunnavogi með stóran svartan hund, líklega Labrador, sem þær kölluðu Cesar. Ég sá Cesar tylla sér niður á skraut- vegg og skilja þar eftir þó nokkurn dröngul, siðan færði hann sig spöl- korn og endurtók athöfnina. Ég stoppaði því þessar stúlkur og sagði þeim að þrífa þetta upp, sem þær sögðust ætla að gera, en tóku þá til fótanna og sinntu þessu alls ekki. Hvernig væri aö eigendur Cesars færu að taka sig eitthvað á áður en verra hlýzt af? Þeir ættu þó að sýna samborgurum sinum þá lúgmarks- ekki sizt með hliðsjón af þvi, að kurteisi að hreinsa upp eftir hundinn, hundahald er bannað i Reyk javik. TRU MIN A LÍFIÐ HEFUR MARGFAIDAZT . , mitt við fjölskylduna hefur aldrei — segir ffélagl | Samhygð venð betra og trú mín á lífið hefur margfaldazt. Augu mín hafa opnazt fyrir því, að það er fleira til en mitt nánasta um- hverfi og að hin raunverulegu vanda- mál fólks, alls staðar í heiminum, verða aldrei leyst nema við skiljum að allir einstaklingar, hvar sem þeir eru, af hvaða kynþætti sem er og hverjar sem trúar- og stjórnmálaskoðanir þeirra kunna að vera, verða að vinna skipulega að því að kalla fram sína beztu eiginleika. Þjóðirnar, sem byggja þennan heim, eru svo nátengdar í dag að hin miklu vandamál ofbeldis og ein- angrunar verða ekki leyst nema við sameinumst um hugsjón, sem nær út fyrir okkur sjálf og þann þrönga heim, er við höfum tamið okkur að lifaí. Vogabúa finnst að eigendur hunda ættu að þrífa upp eftir þá. 1 þvl sambandi má minna á að vfða erlendis hafa hundaeigendur smáskóflu og plastpoka meðferðis, þegar þeir viðra þessa ferfættu vini sfna. Ólafur Guðmundsson skrifar: Ég get ekki orða bundizt eftír að hafa lesið bréf Jóhanns Guðmunds- sonar um Samhygð (DB 12. okt. sl.). Ég hef starfað í Samhygð í tæpt ár og er þvf vel kunnugt um það starf sem þar er unnið. Reynsla min af þessu starfi er sú, að það hefur bætt mitt daglega líf og samskiptí min við fjölskyldu mína og umhverfí yfirleitt. Það, sem kemur fram i skrifum Jóhanns Guðmundssonar, er algjör- Iega út i bláinn. Hann reynir að láta líta svo út, að við, sem störfum í Samhygð, séum andstæð þjóð okkar, fjölskyldu og trú. Mér þykir enn vænna um að vera íslendingur eftír að ég byrjaði að starfa í þessum félagsskap, samband / Vinylhúðuðu lyftingasettin HANDLÓÐ J ÍÖLLUM +IÁ STÆRÐUM [y OG ÞYNGDUM FYRIR L KONUR j OG KARLA w /Kr. 1.180,- Með hverju setti fylglr afingakerfi Joe Weiders í fsl. þýðingu, á- samt 6 veggspjöldum, sem skapa þór möguleika á að eafa rétt frá byrjun og þyngja aafingamar rátt þegar getan eykst. Reiri hundmð íslendingar, bæði karlar og konur, æfa nú reglulega með WEIDER lyftingasettum heima hjá sér og fylgja æfingakerfi WEIDERS með góðum árapgri. Fjölskyldur, vinahópar, vinnu- félagar og hjón safa saman lyftingar eftir WEIDER kerfinu. Gerðu Ifka Ifkamsrækt að frístundaiðju þinni og allrar fjölskyldunnar. Aðeins þú getur sýnt Ifkama þínum ræktarsemi. Ekki bregðast sjálfum þór — hringdu strax (dag ogfáðu nánari upplýsingar um WEIDER lyftinga- tækin. svafnherberginu, baðherberginu, á Kr. 780,- * Áhugi fólks á likamsrœkt eykst meðhverjumdegi. Þú ættir að byrja sem fyrst að eyða bumbunni eða safna haldgóðu holdi á beinagrindina. Mittisbekkurinn og pressubekkurinn auka að mun möguleika þina til að ná góðum árangri. Margvfsleg önnur Ifkamsrœktartœki og prótein frá Weider ávallt fyririiggjandi. SENDU MÉR: NAFN: I ' , Póstverziunln 5 UPPLÝSINGAR OG PÖNTUNARSÍMI AAAAíí Heimawal it1f1fBfU Box 39,202 Kópavogi í.-J Spurning dagsins Hvaða starff heldur þú að sé skemmtilegast? Ingibjörg Gfsladóttir: Það veit ég ekki. Ég er enn í skóla og hef ekkert ákveðið mig hvað ég vil gera i framtíðinni. Kolbrún Anna Jónsdóttir: Ég er i Verzlunarskólanum og ég held aö það sé skemmtilegast að vera bara i skóla. Brynhildur Pétursdóttir nemi: Ég held að skemmtilegasta starfíð sé starf leið- sögumanna og þá bæði i útlöndum og hér heima. Þeir eru frjálsir og ferðast mikið. Kári Haraldsson nemi: Ætli þaö sé ekki starf öskukarlsins. Ég er í Menntaskól- anum í Reykjavík og hef ekki ákveðið mig hvað ég geri. öskukarl? Nei, ætli það. EgUl Bragason nemi: Verkfræðingur. Það held ég að sé skemmtilegast. Ég er i Háskólanum og stúdera sálfræði en ég efast um að starf sálfræðings sé skemmtilegt. Sigurgelr Jónsson stöðumælavörflur: Helzt viidi ég vera Jackie Onassis. Ég held aö það sé mikill munur að vera frægur og geta vaðið í peningum. Annars er mitt starf ágætt ef maður er kurteis og tekur tillit til þarfa fólks, þá erþetta allt ílagi.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.