Dagblaðið - 22.10.1981, Page 7

Dagblaðið - 22.10.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981 Erlent Erlent Erfent Erlent I Enn átök milli verkamanna og lögregiu: Fundahöld bönn- uð í Wroclaw hér aði í Póllandi Allir opinberir fundir hafa verið bannaðir í héraðinu Wroclaw í suð- vesturhluta Póllands, eftir róstur sem urðu þar i gaer milli lögreglu og með- lima Einingar, sambands óháðu verkalýðsfélaganna í Póllandi. Bannið er hið fyrsta sinnar tegund- ar síðan Eining hóf starfsemi sina fyrir rúmu ári og virðist vera upphaf- ið að harðari lögregluaðgerðum gagnvart hreyfingunni. Lögreglan stöðvaði félaga Einingar sem voru að dreifa flugritum á götum úti þar sem pólskir hermenn voru hvattir til að beita ekki vopnum gegn verka- mönnum í landinu. Einn þeirra var handtekinn og fjórir aðrir sem köll- uðu til mannfjöldans á götunni í gegnum gjallarhorn. Eftir að þeir voru handteknir safnaðist 1500 manna hópur fyrir framan lögreglu- stöðina í Wroclaw og voru ellefu þeirra handteknir fyrir að hindra lög- regluna í starfi. Lögreglan handtók einnig nokkra félaga Einingar í fyrra- dag í bænum Katowice og gerði upptækt útgáfuefni samtakanna sem hún sagði vera andsósíalísk og and- sovézkt. Ríkisstjórnin hefur sagt að að- gerðir verkamanna í Wroclaw séu í andstöðu við hagsmuni ríkisins, með tilvísun til hvatningar þeirra til pólskra hermanna. Verkamennirnir segja hins vegar að þeir hafi einungis verið að dreifa venjulegu fréttabréfi samtakanna og að að- gerðir lögreglunnar væru tilefnislaus ögrun. Málgagn Einingar í Varsjá sagði frá því í fyrradag að hermenn í Lublin í Austur-Póllandi hefðu gefið þá yfirlýsingu að þeir myndu ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum sem beint væri gegn póskum verka- mönnum. Stjórn Einingar mun koma saman í dag til að ræða ástandið í landinu eftir kjör Jaruzelskis i embætti flokksformanns. Eining hefur neitað að taka til greina ályktun miðstjórnar kommúnistaflokksins um að banna verkföll. í borginni Zyradow í grennd við Varsjá hafa 12 þúsund iðnverka- menn verið i verkfalli á aðra viku, til að mótmæla matvælaskortinum i landinu. í héraðinu Zielona í vestur- hluta Póllands hafa 180 þúsund Ein- ingarfélagar hótað verkfalli, til að fylgja fram þeirri kröfu sinni að af- greiðslustúlka sem rekin var úr starfi verði endurráðin en yfirmaður hennar settur af. Verkföll og mótmæli gegn matarskortinum halda enn áfram í Póllandi, þrátt fyrir ályktun mióstjórnar kommúnistaflokksins um að banna eigi vcrkföll. M00N MÆTIR FYRIR RÉTTI Trúboðinn Sun Myung Moon, sem ákærður hefur verið fyrir skattsvik í Bandaríkjunum, er nú kominn til landsins frá Kóreu og mun mæta fyrir rétti næstkomandi sunnudag. Talsmenn Einingarkirkjunnar, eða „moonista” eins og þeir eru oftast nefndir, hafa sagt að Moon væri sak- laus af þeim ákærum sem á hann hafa verið bornar. Moon var sakaður um að hafa átt bankareikning á eigin nafni sem hann notaði til eigin þarfa, en hafi ekki gefið upp til skatts. Bankareikn- ingarnir hljóðuðu upp á 1,6 milljónir dollara. Talsmenn trúarhreyfingarinn- ar segja að þeir hafi þurft að skrifa ein- hvern fyrir reikningunum, en þeir hafi verið í eigu hreyfingarinnar. Þeir segja ákærumar vera alvarlegt brot á trú- frelsi í Bandaríkjunum og að þær væru settar fram til að eyðileggja söfnuðinn, sem væri í örum vexti. Þeir neituðu einnig ásökunum um að heilaþvo með- limi sína. / Aðspurðir um hvers vegna Moon væri ákærður sögðu talsmenn trúarhreyfingarinnar að það væri vegna þess að aðrar trúarhreyfingar, geðlæknar og foreldrar safnaðarfólks væru hrædd við hinn öra vöxt hreyf- ingarinnar, sem nú telur um 30 þúsund manns i Bandaríkjunum. Ö/l BOSCH verkfæri eru a/einangruð ~em ermikið öryggisatriði og eingöngu á kú/u/egum. Fjö/breytt úrval afBOSCH w iðnaðarverkfærum, Kaupið verkfæri sem endast Það borgar sig BOSCH heimifísborvólar og fjöidi fylgihluta pjónustan erísérflokki Umboðsmenn um landal/t Gunnar Ásgeirsson hf. Suóurlandsbraut 16 Sími 9135200 BOSCH verkfærin eru ótrúlega sterk og fjöihæf BOSCH betri Um það hafa hinir fjöimörgu eigendur sannfært okkur. Og um það getið þér einnig sannfærzt Mótmæli gegn Nató-aðild 1 Madríd. NÝTEGUND AF VISKÍI Eins og fram hefur komið í fréttum eru Spánverjar nú alvarlega að hugsa um aðild að Nató, eða Otan, eins og það heitir á spænsku. Heilmikið hefur borið á mótmælum og var því ákveðið að gera nánari könnun á málinu á meðal þjóðarinnar. Kom þá í ljós að 47% höfðu alls enga hugmynd um hvað Otan þýddi og tal- aði söngkonan Annabel fyrir munn margra er hún sagði: „Ég hélt að þetta væri einhver ný tegund af viskíi.” Þau 53% sem vissu hvað orðið þýddi mynduðu þó varla önnur tengsl við það en kjarnorkustyrjöld, nifteinda- sprengja og aukið fjárframlag til víg- búnaðar. Eða eins og hermaður nokkur skrifaði yfirvöldum: Ég hafði hugsað mér að kvænast unnustu minni bráð- lega, en er það ekki alveg þýðingarlaust ef við göngum í Otan ? Verð ég þá ekki bara sendur í stríð? Spánverjar vænta sér yfirleitt mikils af inngöngu í EFTA og hefur það þess vegna hlaupið fyrir brjóstið á mörgum að stjórnvöld virðast leggja meiri áherzlu á aðild Iandsins að hernaðar- bandalagi. VERZLIÐ ÓDÝRT Reykt rúllupylsa..............kg verð 26,00 kr. Söltuð rúllupylsa.............kg verð 23,00 kr. Hvalkjöt......................kg verð 26,00 kr. Hrefnukjöt....................kg verð 27,00 kr. Dilkalifur....................kg verð 40,30 kr. Dilka hjörtu..................kg verð 26,70 kr. Dilka nýru....................kg verð 26,70 kr. Dilka mör.. ..................kg verð 6,40 kr. Slagvefja með beikoni................ 21,00 kr. Kjúklingar, 4 stk. í poka,....kg verð 54,00 kr. Kjúklingar....................kg verð 61,00 kr. Skankasteik...................kg veið 48,90 kr. Slög..........................kg verð 10,50 kr. Niðursagaðir lamba frampartar kg verð 31,80 kr. Saltkjöt......................kgverð 38,95 kr. Hangikjöt allt á gamla verðinu. 5 slátur í kassa úr Borgarnesi. Verð á kassa 235,00 0PIÐ I ÖLLUM DEILDUM: Mánud. — miðvikudag. kl. 9- Fimmtudaga kl. 9—20. Föstudaga kl. 9—22 laugardaga kl. 9—12. 18. JÓN LOFTSSON H/F HRINGBRAUT 121 sirvn 10600 0P/0 TILKL. bíkvöld

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.