Dagblaðið - 22.10.1981, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
Erlent
Erlent
Erient
Erlent
r
Fadh príns. VIII kaupa radarflugvélar
og önnur bandarísk hergögn frá
Bandarfkjunum fyrir 8,5 milljarða
dollara á sama tíma og Bandarikja-
menn eru að byggja fyrir hann fjórar
herstöðvar. Olfuauðurínn er greinilega
drjúgur.
Fátt hefur valdið meiri deilum í
bandaríska þinginu síðastliðna
mánuði og sú ákvörðun Reagans
forseta að selja Saudi-Aröbum hinar
margumtöluðu AWACS radarflug-
vélar. Eru jafnvel taldar líkur á að
þingið komi í veg fyrir að af sölunni
verði, en til þess þurfa báðar þing-
deildirnar að greiða atkvæði á móti.
Nú þegar hefur Fulltrúadeildin greitt
atkvæði gegn sölunni og öldunga-
deildin mun greiða atkvæði innan
skamms. Leggur Reagan nú mikla
áherzlu á að telja þingmenn á sitt
Umdeildasta mál bandaríska þingsins:
Hvaö liggur að
baki sölu AWACS-
véla tr/ Arabíu?
—yrði áfall fyrir utanríkisstefnu Reagans ef þingið neitaði
að samþykkja söluna
þinginu, né heldur hvers konar vélar
um er að ræða. Radarflugvélarnar
eru ýmist taldar hin mestu tækni-
undur og þróaðasti herbúnaður sem
Bandaríkin hafa yfir að ráða, eða
einfaldlega úreltar flugvélar með
utanáliggjandi radarskermi. Stuðn-
ingsmenn þess að vélarnar verði
seldar til Sauði-Arabíu segja að þær
þjóni því hlutverki að gera aröbum
viðvart ef árás verður gerð á olíulind-
irnar, en þeir sem andstæðir eru söl-
unni, segja að vélarnar megi nota til
árása á fsraelsríki. Sumir hers-
höfðingjar segja jafnvel að AWACS
geti ekki greint á milli fágfleygrar
flugvélar og bíls á mikilli ferð. Hvort
sem er réttara er auðsætt að Saudi-
Arabar leggja mikla áherzlu á að þeir
fái vélarnar keyptar og ísraelsmenn
leggja ekki minni áherzlu á aö Banda-
ríkjaþing komi í veg fyrir söluna.
Hefur Begin forsætisráðherra ísraels
stjórnkerfi. Þetta eru Boeing 707
flugvélar með sveppalaga radardisk á
bakinu, sem er um 9 metrar í þver-
mál. Hver vél er fljúgandi stjórnstöð,
sem getur flogið f yfir 9 þúsund metra
hæð. Radarinn dregur um 320 kíló-
metra. Slík vél gæti því séð óvina-
flugvél sem kæmi yfir Arabaíuflóann
til árása á olíulindirnar og gert
Saudi-Aröbum kleift að bregðast við
í tæka tíð. En vegna þess að vélarnar
eru tengdar fjarskiptakerfi banda-
ríska hersins, gætu þær samtímis gert
viðvart bandarískum herstöðvum og
flugvélamóðurskipum f grenndinni.
En flugvélarnar geta ekki greint á
áreiðanlegan hátt hluti i litilli hæö.
Að sögn hershöfðingja greindi ein
vélin eitt sinn bíl á hraðbraut í
Vestur-Þýzkalandi sem flugvél. En
þeir bæta því við, að koma megi i veg
fyrir þetta með þvi að hreyfing innan
við 200 km hraða veröi þurrkuð út af
radarnum. En ef um flugvélar í mik-
illi hæð er að ræða eru radarflugvél-
arnar nákvæmari. Þær geta greint
litlar flugvélar í 280 km fjarlægð og
ef radarnum er beint yfir sjóndeildar-
hringinn getur hann greint stærri
flugvélar í 570 km fjarlægð.
Menachem Begin hefur lagzt hart gegn þvf að AWACS vélar verði seldar tíl Saudi-Arabfu og fullyrt að þær megi nota til
árása á tsrael. Skopmynd úr Internatioanl Herald Tribune.
ISÉPJ
Mtm
Þeir sem styðja sölu vélanna til
Sauði-Arabíu segja, að þær komi að
engu gagni til árása á ísrael. Ef vél-
arnar ættu að fylgjast með flugum-
ferð yfir ísrael, þyrftu þær að fljúga
að landamærunum við Jórdaníu og
þar með væru þær komnar í skotmál
fyrir ísraelskar orrustuþotur. Af
sömu ástæðu gætu þær eingöngu
þjónað hlutverki radarstöðva en
aldrei samhæft loftárásir arabaríkj-
anna á ísrael. Þótt það sé tilgangur
AWACS vélanna að samhæfa slíkar
árásir. Og að venjan sé að þær hafi
ávallt innanborðs yfirmann úr
hernum sem stjórnað geti slíkum
samhæfðum árásum, þá verði sá út-
búnaður ekki i vélunum sem til þess
þarf. Þeir segja að vélarnar sem fyrir-
hugað er að selja verði ekki útbúnar
senditækjum til að koma skUaboðum
til annarra arabaríkja á öruggan hátt
og ísraelsmenn gætu auðveldlega
truflað sendingar vélanna. Þær vélar
gætu ekki truflað sendingar annarra
radarstöðva og gætu ekki komið í veg
fyrir utanaðkomandi truflanir á
eigin sendingum. Þá hafa þeir sem
Reagan Bandaríkjaforseti. Það yrði
áfall fyrír hann ef honum tækist ekki
að tengja saman herstyrk Bandarfkj-
anna og Saudi-Arabfu til varnar
olfulindunum.
hlynntir eru sölunni sagt, að hættan á
að vélarnar Iendi í höndum óvina
Bandaríkjanna sé ekki svo mikil, þar
sem vélarnar verði orðnar 20 ára
gamlar þegar afhending þeirra fer
fram árið 1985. Þeir sem haldið hafa
uppi gagnrýni, hafa þá spurt á móti,
hvers vegna svo mikil áherzla sé lögð
á að selja vélar með úreltri tækni.
Hver einstök AWACS radarflug-
vél mun kosta rúman milljarð dollara
auk þess sem arabar verða að leggja
út kostnað fyrir flugskýli, viðgerðar-
verkstæði og þjálfun flug- og tækni-
manna. En auk fimm radarflugvéla
hafa Saudi-Arabar farið fram á
önnur hergögn, að samanlagðri upp-
hæð 8.5 milljarða dollara. Frá
sjónarmiði bandariska hergagna-
iðnaðarins ætti þessi upphæð ein að
nægja sem röksemd fyrir sölu vél-
anna. En aðalástæðan fyrir því hve
Bandaríkjastjórn leggur hart að þing-
mönnum að veita sölunni brautar-
gengi, er mikilvægi þeirra fyrir
varnir olíulindanna i landinu, en án
þeirra gætu Bandaríkin ekki verið án
ef til stríðs kæmi. Vélarnar myndu
tengja saman herstyrk Bandarfkj-
anna og Saudi-Arabíu og gætu
komið i veg fyrir að bandarískar her-
sveitir þyrftu að vera í landinu. Á
þessu ári hafa 615 bandarískir hern-
aðarráðgjafar dvalizt í Saudi-Arabíu
og hafa umsjón með byggingu fjög-
urra herstöðva þar. Hins vegar er
talið að bandarískar hersveitir myndu
verða vatn á myllu islamskra strang-
trúarmanna, marxista, herskárra
palestínumanna og annarra and-
stæðinga Bandarikjanna. Með því að
selja Saudi-Aröbum AWACS radar-
flugvélar ætlar Bandaríkjastjórn þvi
að tryggja sér yfirráöin yfir olíulind-
unum, án þess þó að þurfa að taka
beinan þátt í vörnum þeirra.
band. Er talið að neitun þingsins
muni veikja mjög stöðu Reagan
innanlands og ekki síður minnka
áhrif Bandarfkjamanna í Saudi-
Arabíu.
Ekki ber öllum saman um hvers
vegna sala radarflugvélanna mætir
svo mikilli mótspyrnu á bandaríska
lagt sig svo fram íþví máli, að Reagan
hefur séö sig tilneyddan til að benda
honum á, aö það sé ekki hlutverk
annarra rikja að móta utanríkis-
stefnu Bandaríkjanna.
AWACS er skammstöfun fyrir
Airborn Warning and Control
System, eða fljúgandi viðvörunar- og
Fiskmatsmaður óskast
nú þegar. Upplýsingar hjá
Fiskohf.
Smiöjuvagi 56
Kópavogi — Simi44630 og 77100
Iðnverkafólk!
Handlagnir iðnverkamenn óskast í glerhúðunardeild vora.
Upplýsingar hjá verkstjóra í síma 50022.
H.F. Raftækjaverksmiðjan.
Hafnarfíröi.
AWACS radarflugvél i flugi yfir Riyadh i Saudi-Arabfu. Arabar vilja eignast sfnar eigin radarflugvélar og hafa neitað þvf
tílboði Bandarfkjastjórnar að vélarnar sem þeim yrðu seldar, væru mannaðar bandarfskum áhöfnum.