Dagblaðið - 22.10.1981, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
I
Erlent
Erlent
Erlent
Erlent
Umfangsmikiö smygl á fólki og eiturlyfjum
D
til Svíþjóðar
— Bláfátœkir Indverjar fengu Ioforð um bjarta framtíö í sænskri velferð
— og máttu greiða ferðina með því að smygla inn eiturlyfjum
Í þossarí tösku, moð tvöföldwn botni, fénnst cannabis aö andviröi hundruð
þúsunda sænskra króna.
Nýlega hefur komizt upp um glæpa-
samtök í Svíþjóð sem stundað hafa
mannsmygl í stórum stíl. Hafa þau
m.a. smyglað inn 60 Indverjum til Sví-
þjóðar. Þeir sem ekki áttu fé til að
greiða fyrir ferðina fengu að vinna sér
inn peninga með því að smygla inn
miklu magni af cannabis.
Vel efnaður Indverji sem álitinn er
vera „heilinn” á bak við þetta smygl á
fólki og eiturlyfjum er nú horfinn til
Moskvu.
Glæpasamtökin hafa þénað milljónir
á þessum viðskiptum sínum. Blaðið
Dagens Nyheter, sem skrifað hefur um
málið, segir að þeim hafi tekizt að múta
bæði lögreglu og tollvörðum í Nýju
Delhi og Bombay.
Lögreglan i Svíþjóð leitar nú í sam-
vinnu við tollverði þeirra Indverja er
enn lifa í felum í landinu.
Ferðamenn
Snemma í sumar vöruðu brezkir toll-
verðir Interpol í París við dularfullri
aukningu á indverskum ferðamönnum
sem síðan héldu áfram frá London til
annarra V-Evrópulanda. Hjá mörgum
fundust auk þess eiturlyf. Eftir þessa
viðvörun hertu sænskir tollverðir eftir-
lit með ferðamönnum.
í september voru 20 indverskir
„ferðamenn”'handteknir á Arlanda
flugvellinum í Stokkhólmi með 30 kíló
af cannabis er þeir höfðu falið í töskum
með tvöföldum botni. Og brátt gat
lögreglan slegið því föstu að þetta var
liður í umfangsmiklu smygli á fólki og
eiturlyfjum til Svíþjóðar.
Nú þegar er búið að finna 60 Ind-
verja sem komið hafa til Svíþjóðar á
ólöglegan hátt. Rúmlega 30 sitja nú í
gæzluvarðhaldi, 11 hafa verið hand-
teknir vegna eiturlyfjasmygls, 10 hefur
strax verið vísað úr landi.
öruggast að
barna eina sænska
Samkvæmt fregnum frá sænska út-
lendingaeftirlitinu hefur ferðaskrif-
stofa nokkur í Nýju Delhi að undirlagi
eiturlyfjasala sent fulltrúa til ind-
verskra héraða, þar á meðal Punjap á
landamærum Pakistan. Þar hefur blá-
fátækum bændum og búendaliði verið
lofað bjartri framtíð í velferðarlandinu
Svíþjóð.
Margir hafa látið blekkjast og selt
allar eigur sínar til að kaupa flugmiða
og greiða þá 500 dali sem krafizt var til
tryggingar fyrir ferðalaginu til Sví-
þjóðar. Þeim sem ekki áttu passa voru
útvegaðir falsaðir passar og enskumæl-
andi túlkur veitti nákvæmar upplýs-
ingar um það hvernig fólkið ætti að
snúa á sænsk yfirvöld eftir komuna til
Svíþjóðar.
Mörgum karlmönnum var ráðlagt að
útvega sér sænska ástmey hið snarasta
og barna hana til að fá landvistarleyfi.
Löglegt hóruhús
Meðal hinna handteknu eru þrjár
konur sem greiddu rúmlega 15000 kr.
fyrir bjarta framtíð í Svíþjóð. Ein af
þeim hafði rekið hóruhús á Indlandi en
túlkurinn lokkaði hana með því að hún
gæti haft miklu meira upp úr slíku
fyrirtæki í Svíþjóð. Segir hún að
túlkurinn hafi fullyrt að slík starfsemi
væri fullkomlega lögleg í Svíþjóð.
28. september kom hópur 20 Ind-
verja til Arlanda og voru þeir allir frá
Punjap. Flestir virtust hafa lögleg skil-
riki en hjá tveimur fundust.eiturlyf í
tösku með tvöföldum botni. Voru þeir
því handteknir af fíkniefnalögreglunni.
Þessi hópur kom með pólskri flugvél
frá Varsjá.
Síðar sama dag komu tveir Indverjar
til Arlanda frá Kaupmannahöfn. Þeir
voru með löglega passa og um 500 dali í
ferðatékkum. Þeim var sleppt i gegnum
tollinn, en eltir er þeir komu út til að
sjá hvort einhver biði þeirra. Hjá
öðrum fundust næstum tvö kíló af
hassi.
Viku áður höfðu tollverðir hirt 20
kíló af eiturlyfjum af sex manna hópi
Indverja sem kom frá Varsjá.
Hinir handteknu vilja ekki játa sekt
sína. Flestir tala ekkert nema punjab-
mállýzku og eru mjög örvæntingar-
fullir þar sem þeim finnst að þeir hafi
verið sviknir.
Það hefur þó komið í ljós að með-
fylgjandik túlkur sá um að „ferða-
mennirnir” hefðu lögleg skilríki og
peninga við komuna til Svíþjóðar. Er
fólkið var komið út úr tollinum tók
hann af þeim töskur með eiturlyfja-
smygli, 500 dali sem ferðatryggingu og
flugmiðann til baka til Nýju Delhi.
Lögreglan veit einnig að einhverjir tóku
við smygltöskunum í nágrenni Arlanda
og að 10 af þeim Indverjum sem komu
ólöglega til Svíþjóðar gistu siðar á far-
fuglaheimilinu Columbus við Tjár-
hovsgatan í Stokkhólmi.
Er lögreglan kom þangað urðu Ind-
verjarnir skelfingu lostnir, enda gátu
þeir á engan hátt tjáð sig.
Mikið magn af
cannabis
Lögreglan kom þó á alveg rétta
augnablikinu og tókst að handtaka tvo
velklædda Indverja sem sögðust bara
vera þarna staddir af tilviljun. Eru þeir
álitnir standa í sambandi við eiturlyfja-
smygl.
Tollgæzlan i Stokkhólmi álítur að
um 100 Indverjum hafi tekizt að
komast ólöglega til Svfþjóðar áður en
brezkir tollverðir aðvöruðu Interpol
um máUð. Flestir þeirra voru með
mikið magn eiturly fja i farangri sinum.
Fttsskir Indvorjar Uta bktkkjast at
gyHiboöum gimpamanna og ieggja
ott I sölumar tii aö komast tii Svi-
þjööor.
Leyfist móður að
fórna dóttur sinni?
12 ára telpa í Oklahoma City í
Bandaríkjunum hefur nú leitað til
dómsyfirvalda til að bjarga lífi sínu.
Telpunni var fyrir þremur mánuðum
síðan nauðgað og misþyrmt af tveimur
ungum mönnum. Síðar kom í ljós að
telpan var þunguð og hafði auk þess
fengið kynsjúkdóm sem mun leiða
hana til dauða ef hún fær ekki fóstur-
eyðingu sem fyrst.
En móðir hennar er strangtrúuð og
hefur neitað að leyfa fóstureyðingu.
Telpan tók þá til ráðs að strjúka að
heiman. Er hún fannst reyndu læknar í
samráði við yfirvöid að svipta
móðurina forræði. Það misheppnaðist
en læknarnir hafa nú í samvinnu við
barnaverndarnefnd ráðið lögfræðing
handa telpunni og biðja dómstólana að
hraða úrskurði sínum um það hvort
móðurinni eigi að leyfast að fórna
dóttur sinni eða hvort eyða megi
fóstrinu án levfis hennar.
óvænta hátt að hann skaut yfirmann
sinn, hinn 37 ára gamla sölustjóra
fyrirtækisins.
Þetta vildi til með þeim hætti að
hann bauð sölustjóranum og yfirmanni
markaðsdeildar upp á „fordrykk” af
viskíflösku sem hann hafði komið með
í tilefni kveðjuhófsins síðasta daginn.
Einnig bað hann um að fá að mynda
þessa tvo fyrrverandi yfirmenn sína.
Hann gekk að stólum þar sem hann
hafði skilið eftir tösku sína og frakka,
en þegar hann sneri sér við aftur hafði
hann ekki myndavél í hendinni heldur
byssu.
Sölustjórinn lézt af skotsári en yfir-
maður markaðsdeildar slapp með á-
verka á höfði eftir að hinn bitri
sölumaður hafði rotað hann með
viskíflöskunni.
Við yfirheyrslur lögreglunnar
fullyrðir sölumaðurinn þó að hann hafi
alls ekki ætlað sér að skjóta
sölustjórann heldur hafi áætlunin
verið að fremja sjálfsmorð í viðurvist
yfirmannanna til að mótmæla
uppsögninni.
Það getur verið hœttulegt að segja upp fólki:
Óvœnt endalok á kveðjuhófi
Honum hafði verið sagt upp vegna I sölumaður hjá lyfjafyrirtækinu Astra i
samdráttar í fyrirtækinu og ákvað að Kaupmannahöfn og var orðinn 49 ára
halda smákveðjuhóf. Hann hafði verið I gamall, Kveðjuhófið endaði á þann
Viö þekkjum það Jrá tslendingasögunum að landið hefitr fœtt af sér marga
merkilega menn. Einn af þeim nútlma lslendingum, sem heldur merkinu á lofii er
Erro, segir I grein t blaðinu Politiken, sem birtist í tilefni af þvl að þessi þekkti list-
málari heldur nú sýningu I Kaupmannahöfit. Erro býr að mestu I Paris, en deilir tima
sínum einnig milli italíu og New York. Listasöfn vlða um heim sœkjast nú mjög eftir
myndum hans, t.d. á Randers listasafhið I Danmörku rúmlega 50 myndir. Myndin
sýnir listamanninn við opnun sýningar sinnar I Kaupmannahöfn, en hún hefur hlotið
afargóða dóma.
Jack Lemmon, 56 ára, hélt nýlega upp á 30 ára árangursrikan starfsferil sinn I
Beverly Wilshire hótelinu I Hollywood. Söfhuðust að honum 1000 gestir og borgaði
hver þeirra 125 dalifyrir að hylla kvikmyndastjörnuna. Ágóðanum, eða um 60.000
dölum, ákvað Lemmon að verja til styrktar Harvard háskólanum, en þaðan út-
skrifaðist hann árið. J947 og er hann einn qffáum frœgum Hollywoodstjörnum með
háskólamenntun að bftki sér. Á myndinni sjáum við Lemmon skémmta t hófinu áamt
góðum vini slnum, kvikmyndaleikaranum Walter Matthau, en þeir léku einmitt
saman í gamanmyndinni Odd Couple, eða Eurðulegt par, sem á sínum tíma naut
mikillarhylli kvikmyndahússgesta viða um heim.