Dagblaðið - 22.10.1981, Síða 16
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
íþróttir
Iþróttir
I
16
d
Iþróttir
Iþróttir
Stórí lögregluþjónninn
tryggði Víkingum sigur
—Víkingur sigraði FH, 23-21, í 1. deild handknattleiksins í gærkvöld og Ellert
Vigff ússon varði Víkings-markið með glæsibrag—FH-ingar misnotuðu 4 vítaspymur
„Þetta var hörkuleikur og sigurinn
mjög mikllvægur fyrir Vikingsliðið. Ég
held það nil sér fljótt i strik aftur eftir
tapið gegn Val um siðustu helgi. Það
verður spenna i þessu móti. Liðin eru
mun jafnari og mörg betri en iður,”
sagði Guðjón Guðmundsson, liðsstjóri
Vikings, eftir að Vikingur sigraði FH,
23—21, i 1. delld handknattieiks karla
i fjölum Laugardalshallarinnar. Það
var spennandi viðureign en handknatt-
leikur liðanna var ekki alltaf upp i það
bezta. Talsvert um mistök — einkum
var Vfkingsliðið langt fri sinu bezta.
Of mikil taugaspenna og það var fyrst
og fremst stórgóð markvarzla Ellerts
Vigfússonar, stóra lögregluþjónsins
sem kom til Vlkings f sumar úr Óðni,
sem tryggði sigur Islandsmeistaranna.
FH-ingar fóru þó illa að riði sinu. Mis-
notuðu fjögur af fimm vftaköstum sem
þeir fengu i leiknum eða öll vitaköstin
sem liðið fékk eftir að Ellert kom i
markið. Tvfvegis varði hann og það er
dýrt að nýta ekki vftaköstin i jöfnum
leik.
FH náði fjögurra marka forustu um
tíma í fyrri hálfleiknum og Víkingur
komst yfir í fyrsta skipti í byrjun síðari
hálfleiksins. Um tima náði Víkingur
þriggja marka forustu en tæpum þrem-
ur mín. fyrir leikslok tókst FH
að minnka muninn niður í eitt mark,
21—20, og mikill darraðardans á
fjölum hallarinnar. FH-ingar tóku tvo
leikmenn Víkings úr umferð, Pál
Björgvinsson og Þorberg Aðalsteins-
son, lokakaflann. Það heppnaðist ekki.
Þorbergur kom Víking í 22—20 en
Hans Guðmundsson minnkaði muninn
í 22—21 og ein og hálf minúta eftir.
Sigurður Gunnarsson tryggði svo sigur
Víkings 45 sek. fyrir leikslok. FH-ingar
misstu knöttinn og Víkingur fékk víta-
kast. Haraldur Ragnarsson varði frá
Páli.
FH byrjaði betur
Hafnfirzka liðið byrjaði mun betur í
leiknum. Eftir jafnt 1—1 og 2—2
komst FH i 6—2 á 12. mín. Víkings-
liðið var seint í gang. Þorbergur fyrst
tekinn úr umferð — siðan Páll allan
leikinn. FH gat aukið muninn því
Kristján hitti ekki mark úr vítakasti á
niundu mín. Víkingar fóru að minnka
muninn, 7—5 fyrir FH eftir 16. mín. og
þá misnotaði Kristján Arason aftur
víti. Ellert varði frá honum. Liðin
skiptust á að skora lokakafla fyrri hálf-
leiksins. Staðan 10—9 -fyrir FH í hálf-
leik.
Þorbergur jafnaði strax fyrir Víking i
síðari hálfleiknum en Pálmi Jónsson
svaraði með marki fyrir FH, 11—10.
Það var í síðasta skipti sem FH var yfir.
Víkingar skoruðu næstu fjögur mörk
og lögðu þar grunn að sigri sínum.
Komust í 14—11. Tveggja til þriggja
marka munur hélzt lengi fyrir Víking
og tvívegis á sömu minútunni fóru FH-
ingar illa að ráði sinu. Fyrst varði
Ellert víti Sveins Bragasonar og síðan
sendi Kristján Arason knöttinn í þver-
slá Víkingsmarksins úr vítakasti. Þegar
sjö mín. voru eftir virtist Víkingur
stefna í öruggan sigur, 20—17, en slæm
mistök fylgdu og FH minnkaði muninn
í eitt mark eins og áður er lýst.
Þrátt fyrir sigurinn fer ekki milli
mála að talsvert er að hjá íslandsmeist-
urunum um þessar mundir. Liðið
reyndar óþekkjanlegt frá úrslitakeppni
Reykjavikurmótsins. Mikil þreyta, sem
á einhverjar rætur að rekja til þess, að
æft er stift fyrir Evrópuleikina við
Atletico Madrid, en það sem verra er
fyrir liðið. Allt of mikil taugaspenna.
Ellert markvörður var maður liðsins að
þessu sinni. Þá átti Guðmundur Guð-
mundsson ágætan leik. Þorbergur og
Sigurður Gunnarsson atkvæðamestir í
markaskoruninni.
Það voru stórefnilegir ungir strákar í
FH-liðinu og i þessum leik voru Jseir
Pálmi Jónsson og Óttar Þorgils
Mathiesen beztu menn. Kristján Ara-
son náði sér ekki beint á strik enda í
strangri gæzlu Páls Björgvinssonar nær
allan leikinn. Hins vegar var Hans
Guðmundsson mjög atkvæðamikill
lokakafla leiksins. FH-liðið er vissulega
lið framtíðarinnar.
Mörk Víkings skoruðu Þorbergur 7,
Sigurður 5, Guðmundur 4, Ólafur
Jónsson 3, Árni Indriðason 2 og Páll
2/2. Mörk FH skoruðu Pálmi 5, Óttar
Þorgils 4, Hans 4, Kristján 4/1,
Sæmundur 3 og Valgarð Valgarðsson
1.
Dómarar Árni Tómasson og Rögn-
vald Erlings. Það var ekki þeirra dagur
hafa oftast dæmt betur. Víkingur fékk
3 vítaköst. Nýtti 2. FH fékk 5 vítaköst
og nýtti aðeins eitt. Þremur leikmönn-
um Víkings, Ólafi, Árna og Þorbergi
mm\
Ellert Vigfússon, glæsileg markvarzla.
var vísað af leikvelli í 6 min. Þremur
leikmönnum FH var vikið af velli í 8
mín. Sveini Bragasyni tvivegis,
Sæmundi og Hans. -hsím.
Tony Morley, skorafli bæði mörk
Aslon Villa i Berlin.
Viggó Sigurðsson símar f rá Leverkusen:
Eina góða við leik Ben-
fica og Bayem var veðrið
Frá Viggó Sigurðssyni, Leverkusen:
„Það eina gófla við leikinn er hitinn
hér í Lissabon, 26 stig,” sagði þulur sá
sem lýsti leik Benfica og Bayern
Munchen i 2. umferð Evrópukeppni
meistaraliða i gærkvöldi. Hann sagðist
vera i mestu vandræflum, leikurinn
væri svo lélegur afl þafl væri engu að
lýsa. Rætt var um i vestur-þýzkum
blöðum fyrir leikinn að Ásgeir Sigur-
vinsson yrði leynivopn Bayern, og vitn-
A. Villa vann í
Austur-Berlín!
afl var i frammistöðu hans gegn Wales
þar sem hann skoraði tvö mörk. En Ás-
geir sat á bekknum allan timann og
hefði þó getað komið inn á fyrir hvern
sem var. Bayern liðifl virkaði áhuga-
laust og lán þeirra var að Benfica, sem
hefur 24 sinnum orðifl portúgalskur
meistari, er i öldudal um þessar
mundir. Ekkert mark var skorað.
Ýmislegt virðist ganga á hjá Bayern.
Eftir skellinn í Köln á dögunum var
haldinn fundur meðal leikmanna liðs-
ins. Þar risu upp deilur, Paul Breitner
og Karl-Heinz Rummenigge kenndu
vörninni um tapið en varnarmennirnir
sögðu á móti að annaðhvort hefðu þeir
félagar átt að koma og hjálpa til í vörn-
inni eða nýta eitthvað af öllum þeim
færum sem þeir fengu í leiknum.
Hamburger tapaði 2—1 í Bordeaux.
Þýzka liðið lék mun betur í byrjun og
réð gangi leiksins framan af án þess að
eiga hættuleg færi. Gemmerich skoraði
óvænt fyrir Bordeaux á 20. mín. eftir
varnarmistök. Franz Beckenbauer átti
þrumuskot af 40 metra færi á 36. mín.
sem Pattelic, markvörður Bordeaux,
sló í horn. Upp úr því var Manfred
Kaltz brugðið innan teigs og hann skor-
aði sjálfur úr vítaspyrnunni. Bordeaux
náði undirtökunum í síðari hálfleik og
á 79. mín. skoraði Soler sigurmarkið
eftir slæm varnarmistök Kaltz. Ernst
Happel, þjálfari Hamburger, sagði
eftir leikinn að lið hans kæmist örugg-
lega áfram.
Kaiserslautern og Frankfurt flugu
með sömu vél til Sovétríkjanna til að
minnka tafir við tollskoðun. Norbert
Nachtweih hjá Frankfurt, sem flúði frá
Austur-Þýzkalandi 1975, vildi ekki fara
með af ótta við að eiga ekki afturkvænt
en forseti vestur-þýzka knattspyrnu-
sambandsins gekk í málið og tryggði að
allt yrði í lagi.
Frankfurt lék stífan varnarleik í
Rostov en Kóreumaðurinn Cha-Bum
var þó rétt búinn að skora með skalla
fyrir þá á 4. mín. Yashin skoraði eina
mark leiksins á50. mín., fékk þáknött-
inn rétt utan vítateigs og sendi hann
með lausu skoti í netið. Markvörður
Frankfurt sá knöttinn ekki fyrr en of
seint.
Kaiserslautern lék sóknarleik á
ólympíuleikvanginum í Moskvu og
Rússarnir voru heppnir að sigra. Búast
má við að sovézku liðin eigi í erfiðleik-
um í seinni leikjunum.
-Viggó/VS.
Allison-strákamir
Southampton
Ensku liðin Aston Villa og Liverpool
náflu góðum árangri i Evrópukeppn-
inni, keppni meistaraliða i gær. Eng-
Haustmót
íblaki
Haustmót karla i umsjón blakdeild-
ar Þróttar, Neskaupstað, verflur haldifl
i Neskaupstafl laugardaginn 24.
október. Þar munu mæta til leiks
meflal annarra tvö beztu blaklifl
landsins, Þróttur R. og ÍS. Allar
upplýsingar um mótifl og þátttöku i þvi
veita Ólafur s. 97-7285, Grlmur s. 97-
7562 eða skrifstofa BLÍ, sem opin er kl.
15—17 mánudaga til fimmtudaga.
Frestur til afl tilkynna þátttöku rennur
útikvöld.
Haustmót i mfl. kvenna og 3. flokki
pilta fer fram i Reykjavik 31. október
til 1. nóvember. Þátttaka tilkynnist
BLÍ fyrir 26. október.
Nú er útrunninn frestur til að
tilkynna þátttöku í íslandsmótinu í
blaki 1981—82. í I. deild karla leika 5
lið fjórfalda umferð og í 1. deild
kvenna fjögur lið, að öllum líkindum
fjórfalda umferð. Þar leikur nú í fyrsa
skipti lið KA, Akureyri, ásamt Þrótti
R., ÍSog Breiðabliki.
í 2. deild karla hafa 8 lið tilkynnt
þátttöku, en lokafrestur um hana
rennur út 26. október. Keppnin í 1.
deild karla hefst 31. október.
landsmeistarar Villa sigruðu Dynamo i
Berlin og þafl var útherjinn Tony Mor-
ley, sem var roaðurinn bakvið sigurinn.
Skorafli bæði mörldn en Jimmy
Rimmer kom skammt á efthv Hann
varfli vitaspyrnu i leiknum. Hans-Jurg-
en Riediger, sá kunni austur-þýzki
landsliflsmaflur, skorafli elna mark
Dynamo f leiknum.
Liverpool, sem sigrað hefur þrívegis i
Evrópubikarnum, náði tveggja marka
forustu með mörkum Sammy Lee og
David Johnson í Almaark í Hollandi
gegn hollenzka meistaraliðinu AZ’67.
En AZ’67 tókst að jafna i síðari hálf-
leiknum með mörkum hollenzku lands-
liðsmannanna Kees Kist og Pier Tol.
Þá var árangur Anderlecht mjög at-
hyglisverður. Belgiska liðið, sem Pétur
Pétursson leikur með, sigraði ítalska
meistaraliðið Juventus í Brússel 3—1.
Staðan var 1—1 í hálfleik en í þeim
síðari tókst Anderlecht tvívegis að
skora. Willy Geurts skoraði tvö af
mörkum Anderlecht og tengiliðurinn
Frankie Vercauteren eitt. Þá virðist
sovézka meistaraliðið Dynamo Kiev
hafa alla möguleika á að komast í átta-
liða úrslit eftir sigur í Vínarborg 0—1.
Sjúkraþjálfari írska liðsins Glentor-
an, Bobby McGregor, lézt i sjúkrahjúsi
í Sofia í gær meðan á leik CSKA og
Glentoran stóð. Hann fékk hjartaáfall
á vellinum, þegar hann var að aðstoða
meiddan írskan leikmann. Var strax
fluttur í sjúkrahús en var dáinn þegar
þangað kom.
Þafl hefur áreiflanlega hlakkað i
Malcolm Allison, fyrrum stjóra
Manch. City og Crystal Palace, eftir
4—2 sigur strákanna hans frá Sporting
Lissabon i Southampton i gærkvöldi.
Sporting komst i 3—0 fyrir hálfleik og
mörk Kevin Keegan úr vitaspyrnu og
Mike Channon gegn einu marki Portú-
galanna i siðari hálfleik bættu stöflu
„dýrlinganna” fyrir seinni leikinn litið.
Allar líkur á að Sporting leiki i 3. umf-
erfl UEFA-bikarsins en Southampton
falli úr keppninni. Sigur Aberdeen gegn
rúmenska liflinu Arges Piesti var mjög
öruggur. Rúmenamir skiptu um mark-
vörð eftir afl hafa fengifl þrjú mörk á
sig f fyrri hálfleiknum og það gafst vel,
skozka liðið náði ekki að bæta vifl
mörkum. Inter Milano náfli aðeins
jöfnu á heimavelll gegn rúmensku liði
og staða ítalanna og annars stórlifls,
Real Madrid, sem vann 3—2 heima, er
ekki góð fyrir seinni leikina.
Úrslit i UEFA bikarnum f gærkvöldi
urðu sem hér segir:
í Malmö: — Malmö FF, Svíþjófl —
Neuchatel Xamax, Sviss 0—1 (0—1).
Pellegrini. Áhorfendur 6.404.
í Moskvu: — Spartak Moscow,
Sovét. — Kaiserslautern, V-Þýzkal.
2—1 (1—0). Spartak: Rodionov,
Gavrilov. Khiserslautern: Friedhelm
Funkel.
I Saloniki: — Aris Saloniki, Grikk-
landi — Lokeren, Belgiu 1—1 (0—0).
Aris: Kouis. Lokeren: Preben Elkjær-
Larsen. Áhorfendur 10.000.
Í Aberdeen: — Aberdeen, Skotlandi
— Arges Piesti, Rúmeniu 3—0 (3—0).
Gordon Strachan, Peter Weir, John
Hewitt. Áhorfendur 20.000.
í Southampton: — Southampton,
Englandi — Sporting Lisbon, Portúgal
2—4 (0—3). Southampton: Kevin
Keegan, Mike Channon. Sporting:
Jordao, Holmes (sjálfsmark), Fernand-
es 2. Áhorfendur 18.573.
Í Rotterdam: — Feyenoord,
Hollandi — Dynamo Dresden, A-
Þýzkal. 2—1 (0—1). Feyenoord:
Kaczor, Vermeulen. Dynamo: Heidler.
Áhorfendur 18.000.
Í Ziirich: — Grasshoppers, Sviss-
Radnickl Nis, Júgóslavfu 2—0 (1—0).
Jara, Sulser. Áhorfendur 9.200.
Í Wien: Rapid Wien, Austurrfki —
PSV Eindhoven, Hollandi 1—0 (0—0).
Panenka. Áhorfendur 30.000.
í Brussel: — Beveren, Belglu —
Hadjuk Split, Júgóslaviu 2—3 (0—2).
Beveren: Theunis, Van Moer. Split:
Gudelz, Zlacko Vujovic, Sliskovic.
Áhorfendur 30.000.
í Bordeaux: — Bordeaux, Frakk-
landi — Hamburger, V-Þýzkal. 2—1
(1—1). Bordeaux: Albert Gemmerich,
Gerald Soler. Hamburger: Manfred
Kaltz. Áhorfendur 22.000.
Í Madrid: — Real Madr.J, Spáni —
CZ Jena, A-Þýzkal. 3—2 (0—1). Real:
Cortes, Gallego, Diaz. Jena: Bielau,
Kurbjuweit. Áhorfendur 70.000.
Í Milano: Inter Milano, ítaliu —
Dynamo Bucharest, Rúmenfu 1—1
(1—1). Inter: Pasinato. Dynamo:
Custov. Áhorfendur 25.000.
í Valencia: Valencia, Spáni —
Boavista Porto, Portúgal 2—0 (0—0).
Fernandes, Welzl. Áhorfendur 40.000.
-VS.