Dagblaðið - 22.10.1981, Síða 17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1981
17
Gífurleg upp
stokkuní
verzlunar-
málum
Keflvíkinga:
Tónlistarunnendur ættu ekki að
vera í vandræðum með að kaupa sér
hljómplötur i Keflavikinni. Við sömu
gatnamótin eru þrjár verzlanir, sem
selja slíkan varning og sú fjórða
bætist sennilega við innan tíðar.
Skorti menn tæki og tól til að spila
plöturnar eða snældurnar, er gnótt
gerða á boðstólum, fyrir gott verð
með ennþá betri skilmálum, að því er
hermt er.
Elzta hljómplötuverzlunin, Víkur-
bær, hefur fengið nýja eigendur. Sig-
urður Gunnarsson, bifreiðastjóri
keypti bæði hús og verzlun af
Guðnýju Björnsdóttur og Árna
Samúelssyni. Hinn góðkunni söngv-
ari og hljómlistamaður Einar Júlíus-
son tekur þar við verzlunarstjóra-
störfum, en hann er öllum hnútum
þar kunnugur sem starfsmaður í
fjöldaára.
En það eru meiri hræringar í verzl-
unar- og viðskiptamálum 1 Keflavík,
ekki sízt við Hafnargötuna. Guðný
og Árni eru búin að selja Ómari í
Kosti, vörumarkað Víkurbæjar, eins
og greint var frá í DB fyrir nokkru.
Sjóvá mun vera að kaupa hús
dánarbús Þóreyjar Þorsteinsdóttur.
Tízkuverzlun verður opnuð bráðlega
að Hafnargötu 16. Blómabúð
Guðrúnar Valgeirsdóttur flytur sig
um set, úr gömlu bókabúðinni, í eigið
húsnæði, sem sagt í næsta hús.
Hákon kenndur við Stapafell og
Ragnar Skúlason rakari, hafa byggt
sitt stórhýsið hvort, sem reyndar
tengjast saman — að ofan. Til
Nýjar verzlanir, nýir eig-
endur, nýjar byggingar...
götuna og víðar á Suðumesjum, þá
eru hæg heimatökin.
Rekstrartækni hefur opnað útibú,
einmitt við Hafnargötuna, í húsi
Hákonar og eru þeir reiðubúnir að
veita bæði bókhalds- og rekstrar-
þjónustu i gegnum sína starfskrafta
og tölvur.
Mörg önnur nöfn er hægt að
nefna, Nautið með sínar pizzur, Lísa
með lopann, sængurveraefnið,
barnafötin, sokkana og sitt hvað
fleira. Stapafellið, Traffic, Aþena
(við erum enn í Keflavík) Róm,
Lindina, Hábæ með alla lampana og
rafmagnsvörurnar, Georg Hannah
með skartgripi og klukkur og sá veit
nú hvað klukkan slær. Barnið,
Skóbúðin og Fataval með plötur,
peysur og buxur. Poseidon og rit-
fangaverzlun er í uppsiglingu hjá
skákmanninum og ökumanninum
Helga Jónatanssyni sem einnig hefur
taflmenn og borð á boðstólum.
En það eru fleiri götur í Keflavík
en Hafnargatan. Hringbrautina
prýða margar verzlanir, eins og Spar-
kaup, Sportportið, Ragnarsbakarí,
Kostur og síðast en ekki sízt Nonni
og Bubbi, sem reyndar mun hverfa af
sjónarsviðinu um næstu áramót. Þeir
félagarnir hafa nú selt þessa rótgrónu
verzlun ungum áhugasömum manni
Jónasi Ragnarsyni, sem hyggst
afklæðast lögreglueinkennisbúningn-
um og bregða sér í búðarföt.
-emm.
Séð niður Hafnargötuna i Keflavík. Vörumarkaður Víkurbæjar er i baksýn til hægri. Á litlu innfelldu myndinni er verzlun
Nonna og Bubba. DB-myndir emm.
Hákonar flytja Draumalandið og
Lipurtá, en ekki er enn ráðið hver
leigir hjá Ragnari.
Ofar við Hafnargötuna rekur Sig-
urður Stéindórsson íþróttavöruverzl-
un og Guðgeir Leifsson með Hjól og
vagna er þar i sömu byggingu með
Superia-hjólin sín og keppir þar við
Henning, keflvíska hjólhestasalann,
hinum megin við götuna. Þar er
einnig von á Tomma með sína
hamborgara, en ekki má rugla
honum saman við Tomma video-
king, sem leigir út myndir nokkru
neðar við götuna og kallar sig Video
King.
Við Vatnsnestorgið, eins og þar er
kallað, eru Útvegsbankinn og
Samvinnubankinn. Menn gætu því
byrjað á að skipta ávísunni þar eða
slegið lán. Eytt svo fyrstu aurunum í
Tomma-borgara. Keypt sér síðan
reiðhjól og íþróttaföt hjá Henning,
Guðgeiri og Sigga Steindórs og
hjólað til heilsubótar, — eða til að
forðast að fitna af hamborgurunum.
Síðan ætti mönnum að vera óhætt að
fá sér eina spólu hjá Tomma kóngi
og slappa af fyrir framan videoið.
Lögfræðingarnir hafa einnig
haslað sér völl við Hafnargötuna.
Þeir Jón G. Briem og Garðar
Garðarsson og þann síðarnefnda
greindum við hátt uppi, þ.e.a.s. á
vinnupöllum þar sem hann var í óða
önn að fegra bygginguna með pensli
og málningu ásamt tveimur aðstoðar-
mönnum, þeim Einari Ásbirni knatt-
spyrnumanni og Vigni Daðasyni,
hljómlistarmanni.
Verði menn í einhverjum vandræð-
um með að reka þann urmul fyrir-
tækja sem starfrækt eru við Hafnar-
Bágborín aðstaða öryrkja við Austurgötuna íKeflavík:
Þarf að ferðast yfir
óvarinn háspennukapal
— og eftir bröttum holóttum moldarstíg í hjólastólnum
Frá Magnúsi Gíslasyni, blaöa-
manni Dagblaðsins á Suðurnesjum:
„Við höfum ekki komizt dögum
saman til að ná í meðulin okkar
vegna þess hve erfitt er að komast frá
húsinu,” sagði Erla Stefánsdóttir,
fötluð kona sem býr við Austurgöt-
una í Keflavík,” ég kemst að vísu úr
hjólastólnum út í Trabantinn, en
vegurinn í gegnum húsasundið er svo
grýttur og brattur að næstum ógern-
ingur er að komast á bílnum upp á
Hafnargötuna. Ég hef talað við
ráðamenn bæjarins en fengið
dræmar undirtektir.”
íbúðin sem Erla og sambýlismaður
hennar, Hilmar Ingjaldsson, hafa til
umræðu er á bak við verzlunarhúsa-
samstæðuna við Hafnargötuna,
niður undir sjó. Síðan nýtt hús var
byggt við Hafnargötuna þarna fyrir
ofan, er aðeins um eina leið að fara,
bratta húsasundið, en frá þvi er
holóttur moldarstígur heim að dyrum
Erlu. „Sjáðu,” sagði hún „þarna er
háspennukapallinn út í þennan kassa
og svo er líka, eins og sjá má síma-
kapall, sem liggur ofanjarðar. Ég er
dauðhrædd um að ég merji þá 1
sundur á bílnum eða hjólastólnum
og þá er voðinn vís, sérstaklega hvað
Jtáspennukapalinn varðar.”
Erla sagðist hafa búið þ^rna í
mánuð. íbúðin væri í sjálfu sér ekki
svo slæm, en óöryggið sem stafaði af
því sem að framan er talið hefði slæm
áhrif á sálina. Hilmar bíður eftir
sjúkrahúsplássi vegna skemmdra
mjaðmar.liða svo hún á von á því að
verða ein í íbúðinni og einangruð
ásamt tíkinni Gottu, sem þau geta
ekki skilið við sig. Fluttu úr fjölbýlis-
húsi vegna hennar og þarna niður á
Austurgötuna, þar sem þau fá að
vera í friði með dýrið.
„Aðeins einn maður hefur sýnt
okkur tillitssemi — hann Konráð, æ,
hann Hákon, Konni í Stapafellinu,
sem byggði stóra húsið hér fyrir ofan.
Hann hefur reynt eftir beztu getu að
hafa húsasundið gang- og akfært en
bæjarfélagið hefur ekki gengið frá
þvi sem þvi ber, eins og vatnsleiðsl-
um,” sagði Erla og bætti svo við, og
þaðáárifatlaðra.”
Heilsa Erlu er heldur bágborin.
Hún er ný stigin upp úr lungnabólgu.
Fyrir tæpum tveimur árum fór hún í
hjólastól vegna vaxandi lömunar,
sem stafar af meiðslum í baki sem
hún hlaut í bifreiðaslysi. Núna er hún
jafnframt í spelkum frá hnjám upp
að bringu, en getur þó hreyft fæturna
nóg til að geta ekið bifreið. í Keflavik
hefur hún búið 1 12 ár, en er Skag-
firðingur að ætt, 9 barna móðir, en
sex eru á lífi.
Hús öryrkjanna, sem um ræðir i greininni. Eins og sjá má er ekki hlaupið að því að komast að þvi, fýrir fólk f hjólastól.
DB-mynd emm.
Árni Þór Þormarsson er hér i hinum nýju húsakynnum Rekstrartækni i Keflavík.
Á myndinni má sjá einn stjórnskermanna svo og útskriftartæki. DB-mynd emm.
Rekstrartækn i opnar í Kef lavík:
Aukin hagkvæmni
að hafa þjónustu
á heimaslóðum
Frá Magnúsi Gislasyni, blaða-
manni DB á Suðurnesjum:
„Með opnun þessarar skrifstofu,
hér að Hafnargötu 37 í Keflavík, er
brotið blað í 10 ára sögu Rekstrar-
tækni sf.,” sagði Kristján Sigurgeirs-
son, einn af eigendum fyrirtækisins,
þegar þeir buðu fréttamönnum að
skoða hin vistlegu húskynni sem þeir
voru að taka í notkun,” við erum nú
að flytja til heimabyggðar megnið af
þeirri vinnu sem unnin er fyrir fyrir-
tækið á Suðurnesjum, auk þess að
opna fleiri fyrirtækjum möguleika á
að nýta sér þjónustu Rekstrartækni
sf. Telja verður verulegt hagræði
fyrir viðskiptavinina að geta snúið sér
beint til skrifstofu á svæðinu, frekar
en að sækja hana til Reykjavikur. Á
þetta sérstaklega við rekstrarráðgjöf
og tækniþjónustu,” bætti Kristj^án
við.
Á undanförnum árum hefur starf-
semi Rekstrartækni sf. á Suðurnesj-
um einkum beinzt að fyrirtækjum
tengdum sjávarútvegi. Má þar nefna
að fyrirtækið hefur gegnt þýðingar
miklu hlutverki við hönnun, viðhald
og þróun afkastahvetjandi launa-
kerfa í frystiiðnaðinum. Auk þess
hefur Rekstrartækni sf. beitt sér fyrir
ákveðnu samstarfi þeirra frystihúsa
sem njóta þjónustu fyrirtækisins í
formi mánaðarlegra funda, þar sem
stjórnendur frystihúsanna bera
saman bækur sínar og skiptast á
samanburðarhæfum upplýsingum. Á
sama tíma hafa nokkur iðnaðar- og
verzlunarfyrirtæki á svæðinu notið
þjónustu fyrirtækisins, m.a. hefur
eitt fyrirtæki verið tengt tölvubúnaði
Rekstrartækni í Reykjavík, að Síðu-
múla 37.
Undanfarin 10 ár hefur Rekstrar-
tækni veitt þjónustu á sviði rekstrar-
ráðgjafar og skýrslugerðar og rekur
nú stærstu reiknistofu landsins í
einkaeign. Hjá fyrirtækinu starfa 40
manns, þar af 16 sérfræðingar á sviði
rekstrarviðskipta, verk- og kerfis-
fræði. Um 170 fyrirtæki fá tölvu-
þjónustu hjá Rekstrartækni, þar af
eru 7 í fjarvinnslu.
„Jú, margir eru að íhuga að fá hjá
okkur þjónustu,” sagði Már Svein-
björnssort, sem veitir skriftofunni í
Keflavík forstöðu, svo starfsemin á
eftir að aukast. Annars hefur áhug-
inn verið mismunandi frá einum stað
til annars. T.d. voru Keflvíkingar í
mikilli þjónustu varðandi skreiðina,
en Grindvíkingar litið.”
Rekstrartækni rekur nú þrjár
tölvur af gerðinni IBM S/34 en í
næsta mánuði mun ný vél leysa þær
af hólmi, IBM S/38.