Dagblaðið - 04.11.1981, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981
DB á ne vtendamarkaði
ANNA
BJARNASON
Meðaltalið í september:
Bezt útkoman hjá átta manna
fjölskyldu með 524 kr. á mann
Langhæsta meðaltalið hjá þriggja manna f jölskyldunum sem reyndust með 1.149 kr. á mann
Þá höfum við reiknað út
meðaltalið í heimilisbókhaldinu fvrir
septembermánuð. Það var að mörgu
leyti mjög óvenjulegt. Óhagstæðasta
útkoman var hjá þriggja manna
fjölskylduhópnum og reyndist vera
1.149 kr. á mann að meðaltali. Hag-
stæðust var útkoman hjá átta manna
fjölskyldunni, 524 kr. á mann að
meðaltali. Við reiknuðum út eins
konar landsmeðaltai sem reyndist 825
kr. á mann. Er það um 13% hærra
en það var í ágúst, en innsendir seðlar
voru mjög álíka margir og þá.
Einstaklingurinn
Við fengum einn seðil frá
einstaklingi og var hann næstóhag-
stæðastur eða með 969 kr. Við
höfum áður fengið seðil frá þessum
einstaklingi sem búsettur er í bæ á
Norðurlandi.
Tveggja manna
Meðaltalið hjá tveggjamanna
fjölskyldunum reyndist vera 952 kr. á
mann.
Þriggja manna
Þriggja manna fjölskyldurnar
voru nokkuð fjölmennar að þessu
sinni en voru með langsamlega hæsta
meðaltalið eða 1.149 kr. að meðaltali
á mann. Munar þar mestu um sex
seðla sem allir eru með yfir þúsund
Það virðist vera óhagstæðast að halda uppi þriggja manna fjölskyldu.
kr. í meðaltal, einn meira að segja FjÓgurra mann& hafa oft komið mjög vel út. Að
með yfir 1.300 kr.l Fjögurra manna fjölskyldurnar þessu sinni er það fjölmennasti
hópurinn og kemur frekar vel út,
með 790 kr. I meðtal á mann.
Fimm manna
Fimm manna hópurinn var með
718 kr. í meðatal á mann og er það
fjórða lægsta meðaltalið að þessu
sinni.
Sex manna
Sex manna fjölskyldurnar komu
frekarvel út með 708 kr. að meðaltali
á mann, sem er þriðja lægsta
meðaltalið.
Sjö manna
Seðill barst frá einni sjö manna
fjölskyldu og reyndist hann vera með
686 kr. í meðaltal á mann. Er það
næst lægsta meðaltalið.
Átta manna
Einn seðill barst einnig frá átta
manna fjölskyldum og var hann lang-
samlega lægstur eða upp á 524 kr. á
mann að meðaltali.
Tíu manna
Fjölmennasta fjölskyldan okkar
að þessu sinni var tíu manna og barst
aðeins einn seðill í þeim flokki. Hann
var með 936 kr. í meðaltal á mann
eins og áður agði.
Enginn seðill barst frá níu manna
fjölskyldu. -A.Bj.
BORGARBORNUNUM OFTILLA LAUN
UD SVEITASTÖRFIN
Við hér á mölinni þurfum líka að greiða fyrir alla
skapaða hluti, segir í bréfi frá Reykjavíkurhúsmóður
„Loksins læt ég nú verða alvöru
úr því að senda ykkur mánaðar-
uppgjör heimilisins.
Við höfum keypt Dagblaðið frá
upphaft og þegar vel þegin heimilis-
síðan hóf göngu sína sendi ég inn
seðla til ykkar fyrst í stað,” segir
m.a. í bréfi frá Reykjavíkur-
húsmóður sem sendi okkur
upplýsingaseðil fyrir september-
mánuð. Meðaltalið hennar er 777 kr.
á mann en fjölskyldan er sex manna.
Liðurinn „annað” er upp á 13.887
kr., eða 2.315 kr. á mann ef við
deilum því niður á heimilisfólkið.
„Af ýmsum ástæðum hætti ég að
senda inn seðla til ykkar en ég hélt þó
áfram að halda heimilisbókhald,
þökk sé ykkur. Nú er ætlunin að gera
bragarbót og hér kemur fyrsti
seðillinn.
Ég vil nota tækifærið til að þakka
ykkur fyrir fjölbreytt og gott efni á
heimilissíðunni. Ég hef safnað saman
uppskriftum og ráðleggingum, sem
birzt hafa á síðunni, í eina stóra
möppu og hef notað það heilmikið.
Tölurnar sem ég sendi ykkur eru
hrikalegar. Þar koma til hærri skatt-
ar og bygging bílskýlis, ásamt af-
borgun af láni. Ég vinn utan heimilis
hálfan daginn en samt ná endar
engan veginn saman hjá okkur. Og
þaðsem verraer, mér erekki nokkur
leið að spara meira. Börnin eru-öll i
skóla og þar sem þau tvö elztu voru í
sveit í sumar var sumarhýran rýr hjá
þeim, Sveitardvölin — vinnan —
gerði þeim gott svo ekkert er við því
að segja þó kaupið væri lágt.
Það hefur nú samt orðið mér
FSi
umhugsunarefni hvað þeir bændur við hérna á mölinni þurfum líka að
(þeir eru nú vonandi fáir) hugsi borða og borga fyrir alla skapaða
skammt, sem ekki launa börnunum hluti.
eftir þriggja mánaða þrotlausa vinnu. Heimilissíðunni óska ég langra lif-
Allir þurfa umbun fyrir störf sín og daga og kveð að sinni”.
UpplýsingaseðiU
tO samanburöar á heimiiiskostnaði
| Hvað kostar heimilishaldið?
Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttak-
andi í upplýsinganúðlun meðal almennings um hvert sé meðaital heimiliskostnaðar
• fjólskyldu af siimu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von um að fá nytsamt heimilis-
‘1 tæki.
j Nafn áskrifanda________________________________________
| Heimíli______________________________________________
.1
i Sími
\------------------------------------------------------
J
1 Fjöldi heimilisfólks_______
>l
! Kostnaður í októbermánuði 1981
Matur og hreinlætisvörur kr.
Annað kr.
Alls kr.
Borgarbörn sem eru I sveit á sumrin og vinna þar hörðum höndum bera oft litið úr býtum. Það vill þá kannski gleymast að
börnin hafa fengið bæði fæði og húsnæði á bóndabænum um sumarið. Það eru útgjöld, sem ekki þarf að huga beinlfnis að
þegar þau dvelja i heimahúsum. Þessi mynd var tekin af fólki og fé i Lögbergsrétt.
HlilY
l