Dagblaðið - 04.11.1981, Side 5
DAGBLADIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981
5
"N
Atvinnuleysi blasir við í
fiskvinnslu á Sauðárkróki
- ríkisstjórnin taki af skarið um steinullarverksmiðju strax
Mjög kvíövænlegá horfir nú í at-
vinnumálum á Sauðárkróki. Meðal
annars vegna þess samdráttar, sem
þegar er orðinn og fer vaxandi f fisk-
vinnslu þar, að sögn Jóns Karlssonar,
formanns Verkamannafélagsins
Fram.
í ályktun, sem samþykkt var á
fundi verkamannafélagsins, er skor-
að á ráðamenn útgerðar og fisk-
vinnslu á staðnum, sem og bæjaryfir-
völd.þingmennog aðra þá, er málið
varðar, að gera ráðstafanir til úrbóta.
Vegna þess, að skipin hafa siglt
með afla, hefur ekki verið nægur
fiskur til vinnslu í landi á Sauðár-
króki síðan í fyrstu viku október. Nú
eru tveir togarar á veiðum og munu
þeir selja afla sinn erlendis. Bátar á
Sauðárkróki hafa dregið upp veiðar-
færi sín.
Ljóst er því, að öllu óbreyttu, að
fiskvinnu lýkur næstu daga. Frysti-
húsin verða þá að loka og við blasir
atvinnuleysi.
Fundur Verkamannafélagsins vek-
ur athygli á forystu Sauðkræklinga i
áhuga um byggingu steinullarverk-
smiðjuáíslandi.
Atelur fundurinn þann drátt, sem
sifellt er á því að tekin sé ákvörðun
um staðsetningu verksmiðjunnar.
Skorar fundur Verkamannafélagsins
Fram á iðnaðarráðherra og ríkis-
stjórnina að ákveða nú þegar hlut-
deild ríkisins að steinullarverksmiðju
á Sauðárkróki. -BS.
Vilja afnema
einokun á sölu
grænmetis
— og verðákvarðanir Sexmannanefndar marki
hámarksverð en ekki algilt vöruverð
Sex þingmenn Alþýðuflokksins,
með Vilmund Gylfason í broddi fylk-
ingar, hafa lagt fram frumvarp til
laga sem upphefur einokunarákvæði
um sölu á matjurta- og gróðurhúsa-
framleiðslu. Sölueinokun á þessum
vörum er samkvæmt lögum nr. 101
frá 1966 í höndum Framleiðsluráðs
landbúnaðarins.
Flutningsmenn gera ráð fyrir því,
að eftir sem áður fari framleiðslu-
ráðið með yfirstjórn sölumála mat-
jurta- og gróðurhúsaafurða. Ekki er
íögð til önnur breyting á Grænmetis-
verzlun landbúnaðarins en sú, að
fieiri aðilar fái leyfi til að verzla með
þessar vörutegundir, uppfylli þeir
viss skilyrði.
Þá er einnig gerð sú breyting á
gömlu lögunum að Sexmannanefnd-
in ákveði ekki verð á þessum mat-
vælum, heldur hámarksverð.
í breytingartillögum er gert ráð
fyrir að leyfi til sölu grænmetis- og
gróðurhúsaafurða skuli þeir fá, sem
uppfylli kröfur um heilbrigði og holl-
ustuhætti um meðferð og geymslu
grænmetis og annarra afurða. Skuli
söluleyfið gilda í tvö ár.
Gert er ráð fyrir að innflutningur
kartaflna og á nýju grænmeti sé
háður sérstöku leyfi ráðuneytis. Skuli
ekki veita slík innfiutningsleyfi nema
innlend framleiðsla fullnægi ekki
eftirspurn og innflytjandi uppfylli
kröfur um heilbrigði og hollustu-
hætti.
-A.St.
Selbúðirnar jaf naðar við jörðu
Smám saman — en ailt of hægt að
margra mati — er verið að jafna við
jörðu versta íbúðarhúsnæðið i Reykja-
vik. Þannig er það til dæmis með Sel-
búðirnar vestast á Vesturgötunni, sem
fyrst voru notaðar fyrir verbúðir en
síðan sem leiguibúðir á vegum borgar-
innar. Hafi verið til grimmt og heilsu-
spillandi húsnæði í Reykjavík, þá var
það þarna vestast i Vesturbænum.
DB-mynd: S.
MÁLVERKA OG MYNDAINNRÖMMUN
Mikið úrval af
speglum í römmum,
MYNDA-OG
MÁLVERKASALA
INNRDMMUN SIGURJÓNS
■N ÁRMOLA 22 — SlMI 31788
Einstakt tækifæri
Þoaai eftiraótti bfll, Chevrolet Malibu Claaaic '79 fasat jafnvel allur
á 3ja ára akuldabrófi, aem er mjög hagsteatt (dag. 8 cyl 306 cub
sjálfskiptur með vökvastýri, splittuðu drifi, o.fl. Skipti llka mögu-
leg á seljanlegum, ódýrari bfl.
BJLAKALIP
■inilmi!ÍTiii~i;iii:::íTi!i[TiniMilinITi.l:iá'imiui
SKEIFAN 5 — SlMAR 86010 og 86030
Fyrir
unga
sem
aldna
Opið í öllum
deildum:
mánud.- yQ
miðvikud. I
9-18,
fimmtud. 9—20,
föstud. 9—22
og laugard. 9—12,
/srm~l r
C □ C D d U Cl'J' l.FjWÍÍS.
lulzcu uuua.jjJji?
í_í i_, _ Q ui juij-n jv;
Jón Loftsson hf. rm?TF1 if'Í'l'fl'í
Hringbraut 121 Sími 10600
Húsgagnadeild Sími 28601