Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 04.11.1981, Qupperneq 6

Dagblaðið - 04.11.1981, Qupperneq 6
Lokað í dag, miðvikudag, vegna eigendaskipta. Vestursfóð Hagame/67 VIDEOl Video — Tœki — Fiimur Leiga — Safa — Skipti Kvikmyndamarkaðurinn — Simi 15480. Skólavöröustíg 19 (Klapparstigsmegin). KVIKMYNDIR RITARI Sjávarútvegsráðuneytið óskar að ráða ritara til starfa í 4 mánuði. Vélritunarkunnátta nauðsyn- leg svo og reynsla í almennum skrifstofustörfum. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist ráðuneytinu að Lindargötu 9, 101 Reykjavík, fyrir 20. nóvember nk. as FREEPORTKLÚBBURINN Opinn félagsfundur Freeportsklúbbsins Ný áfengismálastefna? Nú liggur fyrir Alþingi að móta nýja áfengis- málastefnu. Freeportklúbburinn hefur fengið til að hafa framsögu á fundinum alþingismennina# Árna Gunnarsson, Halldór Ásgrímsson, Helga Seljan og Friðrik Sófusson. Á eftir framsöguræðum verða almennar um- ræður og fyrirspurnir. Fundurinn er öllum opinn, meðan húsrúm leyfir og hefst kl. 20.30 í Víkingasal Hótel Loftleiða fimmtudaginn 5. nóv. n.k. Stjórnin 1X2 1X2 1X2 10. leikvika — leikir 31. okt. 1981 Vinningsröð: 12X-X21-122-X1X 1. vinningur: 12 réttir — kr. 29.755.00 30748(4111)+ 33429(4111) 40526(4/11)+ 65058(6/11) 66980(6/11) 2. vinningur: 11 réttir — kr. 625.00 29 11447+ 25785+ 34456 41422 67748+ 71212 2362 12914 26546 34736 65052 67772+ 71409 3042 14024 30334 35046+ 65055 67836+ 25711(2/11) 3470 15485 31475+ 35292 65199 68594 26576(2/11) 5379 16429 31566 36787+ 65793 68843 32916(2/11) 5655 20848 31679 37412 65945 69030 33361(2/11) 5733 21449 31760+ 38744 66195 69235 3805712/11) 5794 22701 32821 39377 66386 70533 41288(2/11) 5994 23499 33624 40527+ 66627 70809+ 67236(2/11) 6215 25314 34086 40529+ 66656 70939+ 69150(2/11) Kærufrestur er til 23. nóvember kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöð fást hjá umboðs- mönnum og á skrifstofu Getrauna í Reykjavík. Vinnings- upphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvisa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok kærufrests. GETRAUNIR - íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK. DAGBLAÐIÐ. M1ÐV1KUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981 Erlent Erlent Samningaviðræðurnar um sovézka kafbátinn í sjálf heldu: Skipstjórinn fær ekki að yfirgefa kafbátinn aftur — samkvæmtfyrirmælum sovézkra stjórnvalda Samningaviðræður um að láta lausan sovézka kafbátinn sem strand- aði í sænska skerjagarðinum fyrir níu dögum eru nú komnar í sjálfheldu eftir að sovézk stjórnvöld fyrir- skipuðu að skipstjóri kafbátsins ætti að dveljast um borð og fara ekki þaðan til frekari yfirheyrslna. Skipstjóri kafbátsins Potr Gushin var yfirheyrður í sex tíma um borð í sænsku herskipi í fyrradag, en Svíar voru ekki ánægðir með svör hans. Sænskir hernaðarsérfræðingar höfðu gert ráð fyrir að yfirheyrslurnar héldu áfram þar sem grunur leikur á að kafbáturinn hafi verið að njósnum þegar hann strandaði á hernaðar- bannsvæðinu fyrir utan fiotastöðina i Karlskrona. En skipstjórinn hefur nú fengið fyrirmæli um að yfirgefa ekki kafbátinn nema með sérstöku leyfi yfirboðara sinna í Sovétríkjunum, að því er talsmaður sænsku stjórnar- innar hefur sagt. Sovézk yfirvöld hafa sagt að engar frekari yfirheyrslur muni eiga sér stað nema um borð í kafbátnum. Svíar gera hins vegar kröfur til að yfir- heyrslurnar fari fram um borð í sænsku skipi eða á sænsku landi. Sænsk yfirvöld hafa látið í ljós von- brigði með árangur yfirheyrslunnar og telja að henni verði haldið áfram þótt óvíst sé hvenær það verði. Tals- maður varnarmálaráðuneytisins sænska hefur þó látið hafa eftir sér að taka muni langan tíma að ná sam- komulagi um að láta kafbátinn lausan. Sænskir hernaðarsérfræðingar fóru um borð í kafbátinn í fyrradag og skoðuðu sjókort hans, siglingabók og annan útbúnað en ekki hefur enn verið sagt opinberlega til hvers rann- sóknin hafi leitt. Kafbáturinn hefur nú verið dreg- inn af strandstað en þannig frá honum gengið að hann mun ekki geta siglt á brott. Sovézld kafbálurinn á sfrandstað i sænska skerjagarðinum. Við hliö hans liggur sænskur dráttarbátur og forvitnir áhorfendur fylgjast með. Kafbáturinn hefur nú verið dreginn af strandstaðnum. Sjúkrahúsrúm á sama verði og lúxussvíta Á vissum deildum innan sjúkrahús- anna í Malmö í Svíþjóð er kostnaður- inn við hvert sjúkrarúm á dag fyllilega sambærilegur við kostnað þess að leigja sér svítu á lúxushóteli. Tölurnar eru teknar úr rekstrarskýrslu sjúkra- húsanna fyrir árið 1980. Dýrastá deildin í Málmey er heyrnar- deildin en þar kostar sólarhringurinn 2219 sænskar krónur. Á skurðdeild kostar sami tími 1828 s.kr. og á deild- inni fyrir þvagfærasjúkdóma 1715 • s.kr. Barnadeildin kemur næst með 1692 s. kr. á sólarhring og smitsjúk- dómadeildin með 1509 s.kr. Ódýrast er að liggja á geðdeildinni við Östra sjukhuset, þar kostar sólarhringurinn 571 s.kr. Sovézki sendiherrann i Stokkhólmi hafði siður en svo ástæðu til að vera i góðu skapi á sýningu þeirri á tveimur einþáttungum eftir Strindberg, sem sýndir voru á Dramaten til heiðurs Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands. Erfiðleikar hans þennan dag hófust kl. 13.15 en þá var hann kallaður á fund Ola Ullstens, utanríkisráðherra Svíþjóðar, til aðútskýra strand sovézks kafbáts i sænskri landhelgi. — Ég veit ekkert um þennan kafbát, var svar sendiherrans, Mikhails Jakolevs. Kl. 15:45 var hann aftur mættur i utanríkisráðuneytið og tók þar á móti þeim harðorðustu mótmælum sem Svíar hafa nokkurn tima beint gegn Sovétríkjunum. Honum var jafnframt tilkynnt að Sovétmenn fengju ekki leyfi til að bjarga hinum strandaða kafbáti. Kl. 18 kom hann enn á ný I utanríkisráðuncytið og bað um að þrjú rússnesk skip fengju leyfi til að draga kafbátinn af strandstað. Svarið var þvert nei. Kl. 19.45 var hann hinsvegar mættur i sparifötunum i leikhúsið. Á myndinni eru italin frá vinstri í fremstu röð: Thorbjörn Fálldin, forsætisráðherra, Silvia drottning, Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, Karl Gustaf, konungur, Ingemund Bentsson, forseti sænska þingsins, Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra íslands og Mikhail Jakolev ásamt túlki sínum.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.