Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 04.11.1981, Qupperneq 7

Dagblaðið - 04.11.1981, Qupperneq 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981 {______________Erlent______________Erlent__________Erlent Erlent J Umdeild ákvörðun norska utanríkisráðherrans: Evensen sviptur embættum sínum — afskipti af stjórnmálum samrýmast ekki störfum embættismanna ríkisstjórnarinnar, segir Svenn Stray, utanríkisráðherra Svenn Stray, utánríkisráðherra Noregs, hefur ákveðið að Jens Evensen sendiherra verði sviptur flestum þeim embættum sem hann hefur gegnt fyrir norska utanríkisráðuneytið undanfarin ár. Jens Evensen hefur í tvo áratugi verið helzti sérfræðingur Norðmanna í þjóðarétti, einkum á sviði fiski- og haf- réttarmála og verið deildarstjóri í utan- ríkisráðuneytinu. Hann var formaður nefnda þeirra er sá um samninga Norðmanna við Efnahagsbandalagið um fríverzlunarsamkomulagið árið 1972 og hann hefur einnig verið í for- svari fyrir öllum helztu samningum Norðmanna um hafréttarmál. Hann var viðskiptaráðhecra og ráðherra haf- réttarmála í ríkisstjórn Tryggve Bratt- elliáárunum 1974— 1978. Svenn Stray utanríkisráðherra hefur nú ákveðið að Evensen muni ekki taka þátt í samningaviðræðunum við Sovét- ríkin um markalínuna milli ríkjanna á Barentshafi. Hann mun heldur ekki eiga aðild að samningaumleitunum við Dani um markalínu miíli Grænlands og Jan Mayen né heldur um fiskveiðisam- komulag við Efnahagsbandalagið. Hann mun hins vegar halda starfi sínu sem fulltrúi Norðmanna á alþjóða haf- réttarráðstefnunni. Evensen hefur verið umdeildur í Noregi og hefur á síðasta ári orðið fyrir harðri gagnrýni frá hægriflokkunum fyrir að vera í forsvari fyrir umræðum um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Svenn Stray hefur sagt að það eigiekki við að embættismaður ríkisstjórnarinnar sé að gefa yfirlýs- ingar um pólitísk málefni. Hann hefur þó sagt að starf Evensen að hugmynd- inni um kjarnorkuvopnalaus Norður- lönd sé ekki ástæðan fyrir að hann sé sviptur þessum störfum en aðrir vilja meina að erfitt sé að sjá aðra skynsam- lega skýringu. Á það hefur líka verið bent til samanburðar að meðan hin hat- ramma deila stóð í Noregi um aðild landsins að Efnahagsbandalaginu fyrir rúmum tíu árum hafi embættismenn ríkisins ekki legið á liði sínu til stuðn- ings aðildinni. Evensen hefur sagt að hann vinni nú að því að undirbúa drög að samningi um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd. Aðgerðir Svenn Stray þykja einnig bera vitni um að norska ríkisstjórnin ætli að sýna meiri hörku í þeim fisk- veiði og landhelgissamningum sem teknir hafa verið undan stjórn Even- sen. Ráðstafanir utanríkisráðherrans hafa vakið töluverða andstöðu Verka- mannaflokksins á norska þinginu og þær taldar varasamt fordæmi. Jens Evensen í ræðustóli 1 norska stórþinginu. Hann hefur enn ekki látið i ljós afstöðu sfna til þess að starfsvið hans sé minnkað. Verkfalli hjá Leyland lokið Verkamenn hjá brezku bilaverk- smiðjunum Britis Leyland hafa ákveðið að snúa aftur til vinnu eftir einhverja hörðustu vinnudeilu í sögu þessa ríkisrekna fyrirtækis. Verkamennirnir, um 58 þúsund tals- ins, lögðu niður vinnu um helgina en samþykktu á fundum í gær að taka til- boði verksmiðjustj'órnarinnar sem misstu vinnu sína ef verksmiðjunum yrði lokað eins og forstjóri þeirra hefði hótað. Verkamennirnir sögðu að allt að 750 þúsund manns ættu afkomu sína undir starfsemi verksmiðjanna. Forstjóri British Leyland hafði sagt að ekki væri hægt að greiða hærri grunnkaupshækkun en 3,8% þar sem fyrirtækið væri rekið með stöðugum halla. Síðan hann tók við árið 1977 hefur 60 þúsund manns verið sagt upp og áætlað er að fyrirtækið tapi 500 milljónum punda á árinu. Iaunahækkun. Talsmenn þeirra sögðu þó að tilboðið væri ekki í samræmi við óskir þeirra en þeir gætu ekki átt á hættu að hundruð þúsunda manna Aðgerðirnar gegn virkjuninni í Alta f Norður-Noregi halda enn áfram og andstæðingar virkjunarinnar hafa sagt að þeir muni ekki gefast upp fyrr en f fulla hnefana. Einn af forsprökkum hreyfingarinnar, sem stendur fyrir aðgerðunum, Per Ffatberg, hefur sagt að sektir og hótanir um fangelsi muni ekki hræða þá frá frekari aðgerðum, sem fyrirhugaðar séu. Er blaðamaður norska Dagblaðsins spurði hann hvort ekki væri tilgangslaust að standa f þessum mótmælaaðgerðum, þar sem engar Ifkur væru á að stjórn Wiflochs myndi endurskoða afstöðuna til virkjunarinnar,svaraði Flatbergað hann Uti ekki svo á. Hann sagði að nú væri einungis unnið að vegaframkvæmdum en ekki hefði enn verið byrjað á virkjuninni sjálfri. Virkjunarandstæðingar gera sér vonir um að hæstiréttur muni breyta fyrri ákvörðunum rikisstjórnarinnar er hann tekur málið fyrir síðar f þessum mánuði og þeir munu hitta Wiiloch að máli f þessari viku. Virkjunarandstæðingar hafa kært fögregluna fyrir dómstólum vegna þess að hún hafi beitt óþarfa ofbeldi, er hún fjarlægði þá sem hfekkjað höfðu sig fasta við vinnuvélar í siðustu aðgerð- um hreyfingarinnar. Nýlega fór fram könnun á Ijósaútbúnaði bifreiða f Þýzkalandi og kom þá f Ijós að fáir höfðu séð um að fá Ijósin rétt stillt. 86% allra farartækja sem stöðvuð voru urðu að fara í Ijósastillingu og þar af voru rúmlega 50% úrskurðuð beinlínis hættuleg f umferðinni vegna of hátt stiUtra Ijósa. Samkvæmt skýrslum um umferðarslys eru rang- lega stillt Ijós mikill slysavaldur. Sérstaklega eiga eldri bílstjórar á hættu að blindast af of sterkum Ijósum annarra bilstjóra, þar sem sjónin breytist með aldrinum og þolir þá birtuna verr en áður. Stærðir:80x80 — 90x90 — 70x90 Auðvelt í uppsetningu, aðeins þarfað tengja vatn og frárennsii. PÓSTSENDUM M BgggingavoruvorgliiB bygging^Si Trgggvn Hnnnossonnr SIDUMULA 37 - SlMAR 83290-83360 FRISTANDI STURTUKLEFAR BAHCO með sjáifstillanlegum biöndunartækj um. Hentar alls staðar fyrir heimili og vinnustaði. mjsm

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.