Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 04.11.1981, Qupperneq 8

Dagblaðið - 04.11.1981, Qupperneq 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981 i a Erlent Erlent Erlent Erlent Kínverja langar líka í lífsgæði: Neyzluiðnaður eykst i Kína —Eftirspumin mest eftir sjónvarpstækjum, þvottavélum, kassettutækjum og ísskápum Fjórða hver fjölskvlda sem býr á svæöi þar sem næst tii sjónvarpsstööva f Kina á sitt eigið sjónvarp. Gömul framleiðslugrein og þó í vexti er reiðhjólaframleiðslan. Kína framleiðir fleiri reiðhjól en nokkurt annað land og þau eru notuð af borg- arbúum, sem fara daglega til og frá vinnustað sínum, svo og bændum, sem flytja framleiðslu sína á þorps- markaðinn. Á síðastliðnum 15 árum hefur framleiðslan aukizt til jafnaðar um 15 prósent. Árið 1980 framleiddi Kína 13 milljónir reiðhjóla til viðbótar og nú á ellefti hver maður (þar með talin börn eldri og yngri) sitt reiðhjól. Framleiðsla á neyzluvörum hef ur forgang Framleiðsla á fötum og fataefnum hefur líka aukizt. Klæðnaður kvenna er fjölbreyttari og litríkari en nokkru sinni fyrr og ber það vott um fram- farir í kínverskum textíliðnaði. Framleiðsla á miðtrefjaefnum og polyester fínþráðadúkum, spunnum úr aukaefnum úr steinolíu, var enn á tilraunastigi 1976. Nú eru þessi efni meðal þess sem mest er keypt í tizkufatnað kvenna. Miðtrefjar, sem framleiddar eru með sérstakri tækni, líta út eins og ullarefni en fínþráða polyester líkist silki eða dádýra- skinnum. Framleiðsla Kína á neyzluvörum var 1980 að heildarverðmæti 234.400 milljónir júan RMB (kringum 140.000 milljónir Bandaríkja- dollara), 18.4 prósentum meira en 1979. Góð uppskera á iðnaðar- jurtum og ný stjórnarstefna, sem eflir neyzluvörugeirann, eru meðal þeirra þátta, sem orsakað hafa þessa aukningu. Landbúnaðarframleiðsla nemur 60 prósentum af því hráefni sem Silkivefnaöur i Kina. notað er til framleiðslu á neyzluvörum í Kína. Þó að framleiðsla á hreinsuðu tóbaki hafi minnkað lítillega 1980 jókst baðmullarframleiðsla um 22.7 prósent, rófnaframleiðsla tvöfald- aðist og framleiðsla á Silkiormspúp- um jókst um 20.3 prósent. Fylkin Sjandong, Jíangsú og Sitsúan framleiddu fimm milljónum fleiri sútuð svínaskinn 1980 en 1979 og stafaði það af stækkun svína- stofnsins. Samkvæmt stefnu kínversku stjórnarinnar hefur framleiðsla neyzluvara algeran forgang á yfir- standandi tímabili efnahagslegrar leiðréttingar. Þetta stafar af því að þessi geiri krefst minni fjárfestingar og orku en þungaiðnaður, en skilar fljótar árangri og veitir fleirum vinnu. Hann skilar ríkinu meiri framleiðslugjöldum og veitir hinni fjölmennu þjóð fleiri atvinnu- tækifæri. Milliliðum fœkkar Reynt hefur verið að bæta stjórnun, bæði á sviði sölu og framleiðslu. Margar hindranir, sem áður voru milli framleiðanda og neytanda, er nú verið að brjóta niður. Til dæmis halda nú margar verksmiðjur sína eigin vörumarkaði og selja vörur beint til verzlana í borgum og sveitum í stað þess að verða að nota ríkisreknar verzlunardeildir sem milliliði eins og áður. Leiðréttingaráætlunin ýtir líka undir samstarf og sameiginlega skipulagningu fyrirtækja sem framleiða hliðstæðar vörur. Ráðuneyti léttaiðnaðar áformar að stofna nokkrar gríðarstórar samsteypur til framleiðslu á nokkrum kunnum reiðhjólategundum með því að steypa saman mörgum minni reiðhjólaverksmiðjum og öðrum verksmiðjum í ýmsum fylkjum og borgum. Einnig er hvatt til þess að nýtízkulegar verksmiðjur aðstoði aðrar, sem eru aftur úr. Reiðhjóla- verksmiðjan í Tíanjín í Norður-Kína hjálpar Xían-reiðhjólaverksmiðjunni í Norðvestur-Kína um tæknikunnáttu, vandsmiðaða hluti og varahluti svo að hin síðarnefnda gat aukið reiðhjólaframleiðslu sína úr 40.000 1979 uppí 165.000 1980. Enn er langt í það að Kina geti að öllu fullnægt eftirspurn eins milljarðs íbúa sinna eftir neyzluvörum. Gamlar konur kvarta undan því að þær fái ekki lághælaskó í stórverzlunum, þar eð háir hælar eru í tízku. Oft er skortur á ullar- efnum og vönduðum textílvörum. Þrengsli eru í verksmiðjubyggingum og tækjabúnaður gamall. Eigi að síður eru starfsmenn í ráðuneyti léttaiðnaðar vongóðir um að framleiðsla á neyzluvörum muni halda áfram að aukast og veita íbú- um bæði borga og sveita aukin þægindi. (Tsén Vei, News from China) Verkamenn í Dongfeng-sjónvarps- verksmiðjunni í Beijing, höfuðborg Kína, hrukku við er þeir heyrðu hávaða frá flutningavagni dregnum af dráttarvél þann 14., janúar. Dráttarvélin nam staðar við fram- hliðið. Tveir bændur stigu af og gengu rakleitt inn í söludeildina. Þeir voru þangað komnir til að sem næst til sjónvarpsstöðva í Kína á sitt tæki að sögn Zhang Júansjan, starfsmanns á aðalskrifstofu útvarps- og sjónvarpsiðnaðarins. Áætlað er að framleiða þrjár milljónir tækja 1981, sagði hann, og jafnframt bæta gæði og framleiða fleiri littæki. Tæki með lit voru aðeins 0.5 prósent af heildarframleiðslunni 1980. kaupa sjónvarpstæki fyrir 40 bænda- fjölskyldur í Tíanzhú-alþýðukomm- únunni fyrir utan Beijing sem voru nýbúnar að taka á móti árstekjum sínum. Þegar bændurnir tveir fóru höfðu þeir með sér 40 12-þumlunga svarthvít tæki. Meira en 18.000 sjónvarpstæki á lager verksmiðjunnar seldust á sama hátt í janúar því að flest sveitaþorpin greiddu þá út laun fyrir síðastliðið ár. Fyrir fimm árum var litið á sjón- varpstæki, jafnvel fyrir borgarbúa, sem munaðarvöru. Nú eru þau að breiðast út um sveitir, einkum í ná- grenni borganna. Sjónvarpsiðnaður hófst í Kína 1958 með nokkurri tilraunafram- leiðslu. En á21 ári, á tímabilinu 1958 til 1978, framleiddi iðnaðurinn aðeins 1.39 milljón tæki. Veruleg gróska hefur aðeins. orðið á tveim síðastliðnum árum. Árið 1979 var framleiðslan 1.31 milljón og 1980 2.22 milljónir. Svarthvítt tæki með 9 til 19 þumlunga skjá og litatæki, 14 til 22 þumlunga, eru nú á markaðn- um. 1981: Þrjár milljónir sjónvarpstækja Afleiðingin af þessari hröðu fran- leiðsluaukningu ásamt innflutningi tækja er sú að ein af hverjum fjórum fjölskyldum sem búa á svæðum þar Ásamt sjónvarpstækjum eru þvottavélar, kassettutæki og ísskáp- ar meðal hinna nýju tegunda neyzlu- vara sem hafa þróazt hröðum skrefum í Kína á síðustu tveim árum. Kína hóf að framleiða þvottavélar 1965 en aðallega til nota í stórum þvottahúsum. Árið 1979 voru fram- leiddar í landinu meira en 18.000 heimilisþvottavélar og árið 1980 245.000. Á fyrstu fimm mánuðum ársins 1981 einum þaut framleiðslan yfir 210.000. Bættur húsakostur Hin mikla eftirspurn eftir þvotta- vélum stendur í nánu sambandi við bættan húsakost. í Beijing t.d. hafa gömlu einnar hæðar húsin með garðinum í kring aðeins utanhússfrá- rennsli til almenningsnota og það er ekki nothæft fyrir þvottavélar. Og margir búa enn í gömlum íbúðar- húsum þar sem tvær fjölskyldur eru um eitt frárennsli. En í nýjum íbúða- byggingum, reistum á síðustu árum, hafa hönnuðirnir hugsað fyrir sér eldhúsi og snyrtiherbergi fyrir hverja fjölskyldu. Námsmenn, sem eru að læra erlend tungumál, geta nú keypt kassettu- tæki, framleidd í Kína, frá því 1979. Það ár voru framleidd 81.000 slík tæki. Breytt var til 1980 og áherzlan lögð á framleiðslu radíófóna. Fram- leiðslan fór þá upp í 426.000. Vinsælasta samgöngutækið: Reiðhjól.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.