Dagblaðið - 04.11.1981, Page 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981
Menntaskólanemar á Lækjartorgi og fer ekkert á milli mála hverju þeir mótmæla. DB-mynd: Bjarnleifur.
Nemendur mótmæla nýju reglugerðinni:
Mótmælafundur í gær
setuverkfall í dag
— nemendur mæta í skólunum en ekki í tímum
Fjölbrautaskólanemar úr Hamra-
hlíð, af Suðurnesjum, af Akranesi,
úr Flensborg og úr Breiðholti fjöl-
menntu í mikla mótmælagöngu sem
farin var i gær. Gekk mestur hluti
nemendanna frá Hamrahlíðarskólan-
um, eftir'Miklubraut, Sóleyjargötu
og Fríkirkjuvegi á Lækjartorg. Þar
var haldinn mikill mótmælafundur
með músík og mörgum ræðum. f
fundarlok var farið með mótmæla-
skjal til ráðherra.
Á Lækjartorgi voru nemendur
með heljarmikinn borða sem á var
letrað „Reglugerðina burt”. Var sá
borði of stór til að bera hann í stormi
gærdagsins, en borðinn hefur hangið
utan á Hamrahlíðarskólanum að
undanförnu.
Þessi fundur og ganga nemenda
eru framhaldsaðgerðir til að and-
mæla nýrri reglugerð sem sett var um
slíka skóla. Megináherzla er lögð á að
reglugerð skuli sett án samráðs við
skólastjórn, kennaraog nemendur.
Mótmæla nemendur því að ein-
kunnagjöf er breytt og skólinn með
því sniðinn að heilsárskerfi í stað
áfangakerfis. Annað áherzluatriði
eru andmæli við nýju reglugerðina
sem talin er skerða möguleika nem-
enda á að flýta námi sínu, séu þeir
færir um. Fleiri liðum er mótmælt
svo og vinnubrögðum við hana í
heild.
í dag mun meginþorri fjölbrauta-
skólanema fara í setuverkfall. Þeir
mæta í skólunum en mæta ekki í
tímum. Að sögn eins frammámanns í
skólafélagi Hamrahlíðarnema er
setuverkfallið hugsað sem eins dags
aðgerð.
-A.St.
Landssamband iðnaðarmanna
nær hálfrar aldar gamalt
39. Iðnþing íslendinga hófst í morgun:
Iðnþing íslendinga var sett í morgun.
að lokinni ræðu forseta Landssam-
bands iðnaðarmanna, Sigurðar Krist-
inssonar, flutti Hjörleifur Guttorms-
son, iðnaðarráðherra, ávarp. Þetta iðn-
þing, sem haldið er að Hótel Sögu, er
hið 39. í sögu Landssambandsins.
Landssamband iðnaðarmanna var
stofnað árið 1932 og verður því 50 ára á
næsta ári. Tilgangur þess er sá, að efla
íslenzkan iðnað, vera málsvari íslenzkr-
ar iðnaðarstarfsemi og iðnaðarmanna
inn á við. Þá hefur það á hendi félags-
legt samstarf meðal iðnaðarmanna og
iðnfyrirtækja.
Sambandið er fyrst og fremst samtök
atvinnurekenda í iðnaði og vinnur
að framgangi hagsmunamála hinna
ýmsu iðngreina. Lætur það sig varða
öll þau mál, sem iðnrekstur varðar. Þó
tekur það ekki þátt í kjarasamningum
Þá annast aðildarfélögin sjálf.
Innan vébanda Landssambandsins
eru nú yfir 2.500 einstaklingar, sem
flestir hafa með höndum sjálfstæðan
iðnrekstur, auk rúmlega 250 fyrirtækja
á sviði iðnaðar. Þúsundir manna starfa
á sviði byggingar-, framleiðslu- og
þjónustuiðnaðar hjá þessum aðilum.
Meðal aðildarfélaga má nefna Meist-
arasamband byggingarmanna, Sam-
band málm- og skipasmiðja, Rafverk-
taka og útvarpsvirkja, auk annarra iðn-
greinafélaga og iðnaðarmannafélaga.
Venjuleg þingstörf fara að sjálf-
sögðu fram, þar með talin kosning for-
seta, varaforseta og varamanna þeirra í
sambandsstjórn, svo eitthvað sé nefnt.
Þinginu lýkur hinn 6. nóvember.
-BS.
Austfirðir:
Truf lanir f rá erlendri sjónvarpsstöð
Sjónvarpsáhorfendur á Austfjörð-
um, aðallega i Neskaupstað, misstu
meira og minna af þætti Ómars Ragn-
arssonar sl. sunnudagskvöld um aust-
firzku steinana þar sem truflanir voru i
útsendingu. Kom erlend stöð inn á
sjónvarpsskerma. Virtist þeim, sem
fyrir þessu óláni urðu, að franska væri
töluð í hinni erlendu stöð.
Hinir ólánssömu Austfirðingar voru
að vonum óhressir með að missa af
þætti Ómars. Nokkrir þeirra hafa haft
samband við Dagblaðið og viljað koma
á framfæri ósk til sjónvarpsins um
endursýningu. Það er hér með gert.
-KMU.
Tvö togskip smíðuð f Pól-
landi fyrir Eyjamenn
Heldur virðist útgerð í Vestmanna-
eyjum vera að rétta úr kútnum eftir
erfið ár að undanförnu. Nokkur ný
skip hafa bætzt í fiskiskipaflota Eyja-
manna á þessu ári, önnur hafa verið
yfirbyggð og betur útbúin til veiða.
Um helgina var gengið frá samning-
um um smíði tveggja 26 metra langra
togbáta frá Gdansk í Póllandi. Fyrra
skipið á að afhendast í nóvember 1983
en hið síðara í janúar 1984.
Það er útgerðarfyrirtækið Samtog í
Eyjum sem hefur nú aflað allra tilskil-
inna Ieyfa til kaupanna. Samtog gerir
nú út þrjá skuttogara, Breka, Klakk og
Sindra. Útgerðarstjóri er Gísli Jónas-
son.
-KMU/FÓV, Vestmannaeyjum.
s
Snyrting '81
v
Kynnizt haust- og vetrarlínunni í snyrtingu
á glæsilegu frœðslu- og skemmtikvöldi í
Súlnasal Hótel Sögu fimmtudagskvöld 5.
nóvember kl 20.30.
Húsið opnað kl. 19.30.
★
Tízkusýningar
Vörukynningar
Komið og sjáið það nýjasta
fyrir haustið og veturinn.
Félag íslenzkra
snyrtifrœðinga
Sælkera-
kvöld
á Hótel
Loftleiðum
Krístjana & Baltasar
taka á móti gestum í Blómasal
Hjónin Kristjana og Baltasar eru sælkerar okkar
fimmtudagskvöldið, þann 5/11 í
Blómasal.
Þó að þessi ágætu hjón séu landsþekkt fyrir listaverk,
Kristjana fyrir keramikhönnun og Baltasar fyrir
myndlist, er það óopinbert leyndarmál að þau eru
frábærir matargerðarlistamenn, sem sækja matarlist
sína bæði til suðrænna landa og norrænna.
Matseðill þeirra hljóðar svo:
Maturinn verður framreiddur frá kl. 19, stundvíslega. g
Veitingastjóri tekur við borðapöntunum kl. 14-17.
Vinsamlegast pantið tímanlega.
Verið velkomin!
HÓTEL LOFTLEIÐIR