Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 04.11.1981, Qupperneq 13

Dagblaðið - 04.11.1981, Qupperneq 13
Kjallarinn GAMAN OG ALVARA í STÚDENTAPÓLITÍK DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981 píeiuþvötturí ktúdentaráðii Vinstrí menn hafa nú sýnt o% I sannað að þeir eru ótvirstt 1 forystuad innan Hiskóla fslands. I Kroftugur sigur þeirra i I. des. I kosningunum nú staðfestir þetta svo I ekki verður um villst. Þó svo að 1 kosningasigur þessi veröi að ein- I hverju leyti útskýrður með tUvisun I I Friöarhreyfínguna og almenna and- I stóðu gegn vigbúnaði, er rétt að I impra aðeins á óðrum þáttum. Til aö byrja með er rétt að undir- I slríka þá staöreynd að vinstri menn [ hafa ávallt veríð í fararbroddi varöandi umræöu um utanríkismál innan Háskóla Islands. Umræða þeirra og skilningur hefur ávallt j mótast af gagnrýni og vlösýni. I'anmg hefur hátiöardagskrá þeirra A fullveldisdaginn, sem og umræða þeirra á siðum Stúdentablaðsins um þjóöfrelsis- og lýöræöisbaráttu I 1 hinum ýmsu þjóðlóndum, ávallt veriö stúdentum og Háskólanum tU | hins mcsta sóma. Vmislegt fleira kemur þó tU. Þá I ckki sist ástand mála i stúdenta- pólitikinni. Annars vegar skulum við skoöa framboð og frambosðleysi andstæöinganna og hins vegar samlyndi þeirra i meirihlutastarfinu. Ætla ég að hvort tveggja varpi Ijósi á I sigur vinstri manna. I Eldmóður Vöku gegn | friðarhreyflngunni Að þessu sinni bauð Vaka fram I efni er laut aö atvinnuhorfum I stúdenta. Sem endranær reyndbt I efnið þeim ofviöa þegar i upphafi. ] Hvernig sem rcynt var aö skýra I samhengi þess út frá hugmynda- ] fræöi frjálshyggjunnar endaði öll I roksemdafærsla i mótsagnakenndu I rugli um aðlögun og skipulag. 1 Vokumenn tóku þvi upp sama gamla I valkostinn og sneru kosningabaráttu Isinni upp i áróöur gegn umræðuefni ■vinstri manna. Eftir það réð I ..Hannesarmeinlokan” ferðinni og | skæruliöar, hryðjuvcrkamenn og I K.G.B. njósnarar leyndust í hverju | skúmaskoti. Eflir þessi klassísku viðskil við | eigin efni losnaöi janframt nokkuö um málbein þeirra VOkumanna. Á kosningafundinum komu þeir hver á fætur öðrum og frussuðu út úr sér 1 fúkyröum í garö Fríðarhreyfíng- BnarPáRSvavarsson arinnar. Ýmist toldu þeir hana mestu ógnun hfámsfríöar slðan i seinni heimstyrjöldinni eða aö hún væri fjármOgnuð af Sovétrikjunum, nema hvort tveggja væri. Var ddmööur þeirra slikur að ung stúlka, sem var I Krutilegu framboði sté i pontu og áttiekkieitt einasta aukatekiö orö! Annars er furðulegt aö Vaka skyldi koma saman framboði þvi auðvitaö deilist sú hreyfing f jafnmarga arma og Sjálfstæöis- flokkurinn. Þar tala menn digur- barkalega um aö vera Gunnarsmenn eöa Geirsmenn. Það er þvi Ijósl að sú hreyfing veröur ckki heilsteypt fyrr en „leitinni að Scarlett O’Hara" Sjálfstæöisflokksinser lokið. Umbar í gerzku œvintýri „Fyrsti des. á betra skilið en að Umbótasinnar bjóði fram," sagöi á auglýsingaspjoldum þcirrar hrcyfing- ar. Þótti múrgum virðing þeirra viö fullveldisdaginn afar skiljanleg. Hitt þótti aftur á móti mörgum furðulegt, j aö I Stúdentablaðinu skömmu áður lýstu þcir.yfir þeirrí skoðun aö þeir hyggöust m.a. ná markmiöum sinum með framboði til I. des. Þar sem framboð þeirra fyrirfannst ekki drógu menn cðUlega þá ályktun að I þeir hcfðu fórnað markmiðunum. Enda vart tími til þess að stússa i framboði þar sem foringjar þeirra og máttarstólpar, Finnur Ingólfsson for- maöur stúdentaráös og Stefán , Matthiasson, dvelja nú i Moskvu i I boði Brésneffs. Skyldu þeir kannski j lcggja blómsveig á leiöi Lenins að | hætti hérlenskra stjórnmálamanna? Með ofangreindum athuga- semdum tókst vinstrí mönnum að fá formann Umbanna til aö stiga i pontu. Hugðist hann „leiðrétta" athugasemdir þcssar. I þcirrí stuttu ræöu tókst honum að afhjúpa þekkingarleysi sitt á Ollum helstu | formlcgu og óformlegu atriöum er ! snerta framboð til I. des. Þegar fund- argestir ætluöu að koma honum til aöstoðar vafðist honum aöeins tunga um hOfuð. Eftir þaö þjOppuöust allar setningar hans saman i smáorðið — Nú? Var ekki laust við að mOnnum þætti harín renna styrkum stoðum undir þá fullyrðingu Voku aö Umbótasinnar væru „reynslulaust ungviði”. Samlyndi slBcra hreyfinga? Þegar litið er á innviði þessara hreyfinga, stefnuleysi, og yfírlýsingar er manni hlátur efst í huga. Þó tckur nú út yfír allan þjófabálk þegar litið er á samskipti þessara svokólluðu samstarfsaðila. Frá þvi er skólinn lók lil starfa á ný i haust hefur ekki linnt oröscndingum milli þeirra. Umfram £ „Annars er furðulegt að Vaka skyldi koma saman framboði því að auðvitað deilist sú hreyfing i jafnmarga arma og Sjálf- stæðisflokkurinn. Þar tala menn digur- barkalega um að vera Gunnarsmenn eða- Geirsmenn.” þaö scm aö ofan cr sagt kailar Vaka | Umbótasinna ýmsum nOfnum. T.d. S.I.S. deildina, dulbúna framsóknar- þátttaka Vöku í kosningunum skilaöi hörmulegum árangri. Ef maður gefur sér aðferðir vinstri manna til ályktana, rétt stutta stund, þá getur maður sagt sem svo að frjáls- hyggjukrakkarnir hafi beðið skipbrot. Þeir eru rúnir fylgi sínu. Lítilmannlegar árásir þeirra á samstarfsaðila sína, umbótasinna, falla ekki í kramið hjá stúdentum. Umbótasinnar hljóta að taka til alvarlegrar athugunar samstarf sitt við slíka menn. Þörfnumst ekki kosninga Af orðum Einars Páls má ráða að það sé hetdur en ekki fábjánalegt að nýjasta hreyfingin i stúdenta- pólitíkinni, stofnuð í marsmánuði þessa árs, skuli breyta um stefnu eftir almennar umræður félagsmanna. Það að tveir fulltrúar Umbóta- sinna í Stúdentaráði séu staddir í Sovétríkjunum, á vegum Stúdenta- ráðs. og samtaka íslensks æskulýðs, finnst Einari Páli fullgóð skýring á því að Umbótasinnar bjóði ekki fram til 1. des. kosninga. Þarna opinberar Einar miðstýringar- og klikuveldis- hugarfar sitt. Þótt vissulega séu fulltrúar Umbótasinna í Stúdentaráði „máttarstólpar”, eins og Einar réttilega kallar þá, þá hefur hinni ungu hreyfingu Umbótasinna í Há- skólanum tekist að renna fleiri stoðum en tveimur undir starf sitt, þótt vafalaust mættu þær vera enn fleiri. Og ef það er rétt hjá Einari Páli að formaður Umbótasinna segði ,,Nú” á framboðsfundinum fyrir 1. des. kosningarnar þá verður það að segjast eins og er að margur hefur lagt ómerkara orð í belg í háttvirtum stofnunum stúdenta. „Við þörfnumst ekki kosninga til að sannfæra okkur sjálf um að við höfum eitthvað til málanna að leggja.” Umbótasinnar halda ekki dauðahaldi í bókstafinn. Ef við sjáum ástæðu til að færa stefnu okkar til betri vegar þá gerumviðþað. Það er rétt að Umbótasinnar hugðust ná markmiðum sinum m.a. með því að bjóða fram lista til 1. des. kosninga. Svo rík er hefðin í hugum manna. En umræða i hópi Umbóta- sinna fæddi af sér nýja stefnu: Við munum minnast 1. desember á veg- legan hátt. Við þörfnumst ekki kosninga til að sannfæra okkur sjálf um að við höfum eitthvað til málanna að leggja. Þótt menn eins og Einar Páll kunni ekki að skipta um skoðun og gangi sinn veg, hultir í trúarsannfæringu sinni, gegnir öðru máli um okkur „miðjumoðsmenn- ina”: í okkar hugmyndaheimi eru hlutirnir ekki aðeins svartir og hvítir heldur marglitir og margræðir. Ritsóðar Nú á haustdö’gum hafa vinstri menn velt sér uppúr ómerkilegu skítkasti Vökumanna í samstarfs- aðila sinn. Að sumu leyti fer vel á þessu.Báðarsveitirnar hafaá að skipa fullfærum ritsóðum, sem hentar á- gætlega að seðja hvorir aðra. Það fer illa á því að vinstri menn kalli aðra „ábyrgðarlausa” og þá er einnig of snemmt fyrir Einar Pál að tala um að „traustur og ábyrgur meirihluti vinstri manna tekur við í vor”. Umbótasinnar hafa ekki enn sagt sitt síðasta orð. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður hefur margt unnist. En meira á eftir að vinnast ef stúdent- ar hrista af sér félagsdoðann og fylkja sér um umbótastefnu Félags umbótasinnaðra stúdenta. Óðinn Jónsson. manna í umræðunni innan Há- skólans. Undirrituðum finnst stórt uppí sig tekið að segja um mál- flutning kommanna að „Umræða þeirra og skilningur hefur ávallt mótast af gagnrýni og víðsýni”, eins og Einar orðar lýsingu sína á þætti kommasafnaðarins í utanríkismála- umræðu innan skólans. Þó verða lík- lega einhverjir hneykslaðri en undir- ritaðurá þessari fullyrðingu. Eins mun eflaust einhverjum þykja fyndið þegar Einar segir hátíðardag- skrá vinstri manna 1. des. og mál- flutning þeirra í Stúdentablaðinu hafa „ávallt verið stúdentum og Há- skólanum til hins mesta sóma”. Svona skens með dómgreind og sómatilfmningar stúdenta er náttúr- lega ekki sæmandi nokkrum þeim sem telur ástæðu til að vera tekinn alvarlega. Það er deginum ljósara, eins og að hefur verið vikið, að tilgangur frjáls- hyggjukrakkanna og kommanna með því að standa í kosningum er sá að gera skoðanakönnun meðal stúdenta á fylgi sínu í stúdenta- pólitíkinni almennt. Annar og göfugri tilgangur bærist aðeins í brjóstum örfárra sakleysingja sem dúkkaðir eru uppá lista þessa hreyfinga. En ef maður leyfir sér slíkt kæruleysi að setja sig um stund í þetta spákonugervi öfgahópanna þá getur maður dregið nokkrar ályktanir. Þá fyrst sú staðreynd að Kosið I Háskóla tslands. DB-mynd. Einn forvígismanna Félags vinstri manna fór á kostum hér í blaðinu mánudaginn 26. október. Þarna var Einar Páll Svavarsson á ferðinni og lét pilturinn sá margt fara frá sér sem gaman er að skoða örlítið nánar. Svo fór sem vænta mátti að vinstri mönnum þótti leiðinlegt hversu litla umfjöllun úrslit 1. desember kosning- anna hafa fengið og hve litlu stúd- entar létu þessar þrekæfingar sig skipta. Þess vegna skrifar Einar þessa grein. Það hefur nefnilega sannast að 1. des. kosningar eru úreltur þáttur í félagslífi stúdenta þar sem fáir taka þátt í þeim og kröftum manna er kastað í vinnu sem lítið gefur. Þarna erum við komin að kjarna málsins. Vinstri menn þurftu 1. des. kosningarnar til að geta „sýnt og sannað að þeir séu ótvírætt forystu- afl innan Háskóla íslands”, svo notuð séu orð Einars Páls. Hann telur sigur vinstri manna „kröftug- an” og óvefengjanlega staðfestingu á yfirburðum þeirra. Þessi málflutn- ingur er kátbroslegur í öllu tilliti. Þarna segir forvígismaður vinstri manna það berum orðum að 1. des. kosningarnar snúist ekki fyrst og fremst um það að leggja grunninn að vakningu á meðal stúdenta fyrir mikilvægi fullveldisdags þjóðarinnar heldur þjóni kosningaúrslitin aðeins „strategíu” þess sem sífellt þarfnast ytri staðfestingar, hversu aumleg og skrumskæld hún annars er, á tilveru- rétti sínum. Þarna yfirsást Einari blessuðum að skjóta inní til fróðleiks að kosningaþátttaka var aðeins rúm 20% og því hæpið að tala um óyggj- andi stuðning stúdenta við stefnu og starf vinstri manna i málefnum stúd- enta. Þetta heitir að gera hlut sinn stærri en raun beri vitni um. „Til hins mesta sóma" Það er enn nokkuð sem orkar tví- mælis í lýsingu Einars á hlut vinstri Óðinn Jónsson

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.