Dagblaðið - 04.11.1981, Page 17

Dagblaðið - 04.11.1981, Page 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981 d 17 D Menning Menning Menning Menning Sjgurður A. Magnússon: MÖSKVAR MORGUNDAGSINS Uppvaxtarsaga MAI og msnning 1981.3S9 bls. Það er auðvitað mál að Sigurður A. Magnússon færir ekki með Möskvum morgundagsins á ný út landamæri bókmenntanna í líkingu við það sem hann áður gerði með fyrsta hluta uppvaxtarsögu sinnar, Undir kalstjörnu. Enda væri það til býsna mikils mælst! Aftur á móti heldur hann í nýju bók sinni áfram ýtarlegri kortlagningu söguslóða, menningarsvæðis sem þar var hafin og ekki hafði áður verið lýst að neinu marki í bókum, hvorki skáldskap né endurminningum. Það var ansi eftirminnilegt að lesa fyrir tveimur árum, um sömu mundir sem fyrri saga Sigurðar kom út, lýs- ingu hinna sömu sögustöðva og um- hverfis í þriðja bindinu af endur- minningum Tryggva Emilssonar, séðar þar úr allt annarri átt. Tryggva bar á þessar slóðir um það bil áratug eftir að sögu Sigurðar sleppti, eftir að aldaskil voru orðin, heimsstríð og hernám gengið um garð. En það varð deginum ljósara af frásögnum þeirra beggja af mörkum bæjar og sveitar og tvennra tíma með þjóðinni, öreigabyggð kreppuáranna og ný- byggja í ríki hernáms og stríðsgróða, að þar hefur gerst ekki ómerkur þáttur íslenskrar menningarsögu á öldinni. Móðurmissir, bróðurmissir Sigurður A. Magnússon byrjar frá- sögn í nýju bókinni rakleitt þar sem hinni fyrri sleppti, að aflokinni jarðarför móður sinnar. Nei, af- sakið: eftir að Jakob söguhetja hans Jóhannesson hefur misst móður sína. Þá er hann níu ára gamall. Sögunni lýkur fjórum árum síðar og með öðru átakanlegu dauðsfalli: Ragnar, eldri bróðir Jakobs, ferst með pólsku flutningaskipi um vorið 1941. í sög- unni er hvað eftir annað vikið aðdáun Jaköbs á stóra bróður sínum. En samt verður ekki bræðraþel þeirra neitt sérsiaklega ljóst, gildi eldri bróðurins fyrir hinn yngri sem fyrir- myndar og leiðsagnara. Og þótt dauði hans sé sviplegur og sorglegur ber hann fráleitt sömu merkingu í frásögninni og hinn átakanlegi móðurmissir í lok fyrri sögunnar. Þó það hafi kannski í og með verið ætlunin. Aðrir hlutir virðast valda meiru um það að þáttaskil verði hér í ævi Jakobs. Hann lýkur fullnaðarprófi úr barnaskóla, gengur fyrir gafl, ræðst í fyrsta skipti í fulla atvinnu, þótt hann að vísu missi hana jafn- harðan, síðast orða í sögunni. Umfram allt er hernámið komið á og ásýnd bæjarins og þjóðlífsins ger- breytt frá því sem áður var. Það fara nýir tímar, uppgangstimar í hönd þótt Jakob söguhetja sé ekki meira en svo farinn að gera sér grein fyrir því sjálfur. Og það er af öðrum ástæðum Ijóst í frásögninni að breytingar hljóta brátt að verða á högum hans. Þjóö og stóttir Ég ímynda mér að fyrir ýmsa les- endur af minni kynslóð verði upp- vaxtarsaga Sigurðar A. Magnússonar svo heillandi lestur sem raun ber vitni Maður verdur til á meðal annars vegna þess hversu langt og hve skammt i senn er á milli okkar eigin uppvaxtar og þeirrar sögu sem hann segir. Saga hans gerist á útjöðrum Reykjavíkur eins og hún var fyrir og fram yfir stríð. En þótt bókmenntum? Eða eru kannski landsmenn allir, seint og um síðir, orðnir velbirgir borgarar? Möskvar morgundagsins gerist sem sé á fjórum árum uns lýkur bernsku sögumannsins og unglingsárin taka Sigurður A. Magnússon rithöfundur. aðeins sé örskammt á milli í tíma og rúmi er eins og heilt djúp sé staðfest á milli reykvískrar millistéttar, heims öryggis og farsældar á sama og svipuðum tíma, og þess heims sem DB-mynd. við með fermingunni. Og stríðinu. Allan þennan tíma býr fjölskyldan á sama stað, sumarbústað í Laugar- nesi, en flytur í sögulokin í annað og aumara hreysi. í Laugarnesi segist Bók menntir ÓLAFUR JÖNSSON Jakob og hans jafningjar byggja. Ósjálfrátt spyr maður sjálfan sig: hvað er orðið um þessa byggð, hvað hefur komið í stað hennar ef hún er horfin? Hvenær og hvar eignast öreigar okkar daga sér stað og rödd í Jakob hafa átt besta vist í æsku sinni. Þar stundar Jóhannes, faðir drengsins, hestabúskap sinn, drykkjur og drabb, síðast kominn i tæri við herinn, en seinni kona hans, Marta, heldur heimilinu saman. Lýs- ing þeirra beggja er í öllum megin- atriðum fram komin í fyrra bindinu og breytist ekki hér þótt hún verði ýtarlegri, einkum Mörtu. En frásögn- in af Jóhannesi hygg ég raunar að sé allrar eftirtektar verð í heild sinni, uppflosnaðs manns frá ætt og átt- högum sínum og raunar ófær að því er virðist að lifa lífinu upp á eigin ábyrgð. Þarf að sækja til ap.narra það sem til þarf að lifa. Örlög hans ráðast raunar af þeim aldaskilum, tímamótum sem sagan í heild sinni lýsir, innan að, og þar sem sífellt skarast borgin og sveitin, nýir og gamlirtímarílandi. Eins og áður býr fjölskyldan við mikla fátækt, við og handan við mörk örbirgðar. Samt sem áður nýtur Jakob þess lágmarks öryggis, atlætis sem hann þarf til að komast af. Það er að vísu glöggt hve tæpt hann stendur, hve stutt og greið getur orðið leiðin úr samfélagi fátæktarinnar út fyrir endimörk borgaralegs þjóðfélags, laga og reglu. Sumpart af frásögnum hér og í fyrri bókinni af pörum og óknyttum stráka í sögunni, sumpart og ekki síður af hugarástandi Jakobs, æsingum, ófyrirleitni og órunt sem á hann sækja. Jakob er að vísu allvel af guði gerður. Og. hann er heppinn. Góður kennari tekur strák að sér og kemur honum til manns í skólanum. Tossinn verður að skólaljósi, og er að skilja að það hafi ráðið úrslitum um nánustu framtíð hans. Hann laðast að Kristilegu félagi ungra manna, að manni skilst ve ,na hugarbels féíags- skapar og vináttu sem hann nýtur þar, frekar en af neinni eiginlegri ti úarvakningu. Og fleira kemur til. Þegar Marta veikist er heimilið tekið upp og börnin vistuð á barnaheimili. Af látlausri frásögninni í kafla sem nefnist Einkennileg kona er að sjá að for- stöðukona þess hafi dýpri áhrif á Jakob en hann gerir sér allskostar grein fyrir sjálfur. Sögumaður, söguhetja Möskvar morgundagsins er allstór bók, verulega lengri en Undir kalstjörnu, gerist þó á tiltölulega stuttum tíma, og þar verða engin stórtíðindi í líkingu við fyrri bókina. Það er að vísu eðlilegt að frá- sögnin dreifi úr sér þegar Jakob stálpast og vex að viti og þroska, skynjun hans eflist og minnið verður rúmbetra. Og óhjákvæmilega slaknar á frásögninni, þegar efnisatriðum fjölgar, og ekki er lengur til að dreifa dramatískri spennu atburða og rásar og mannlýsinga í fyrri bókinni. Eins og fyrri sagan er Möskvar morgundagsins sögð sem óduldar endurminningar, sönn saga hvað sem liður nafngiftum sögufólksins. Þetta á bæði við efnisatriði í sögunni og frá sagnarháttinn á henni, og vel að merkja finnst mér minna um skáld- sögulegar tilfæringar með efnið, beinar og óbeinar, en var i Undir kalstjörnu. Fullorðinn sögumaður segir frá, rekur endurminningar sínar eins og hann man þær best, reynir að sjá og sýna sjálfan sig í bernskunni. En hann reynir ekki að orða hug drengsins eins og hann var á meðan hann lifir atburðina, hans eigin orðum: sögumaður er í senn samur og söguhetjan og annar maður. Af þessum rithætti leiðir auðvitað margvísleg álitamál í frásögninni. Það má t.d. spyrja hvað kafli eins og Skáld sótt heim komi sögu Jakobs við: þar er sagt frá heimsókn Jóhannesar, föður hans, til Einars Benediktssonar í elli hans í Herdísar- vík og komið að skoðun á útför skáldsins á Þingvöllum. Eða kaflinn um Óttar, bróður Jakobs. Er þar ekki verið að rekja einkahagi sem strangt tekið koma ekki öðrum við? Fullorðinn sögumaður talar fyrir munn drengsins í sögunni eða í orðastað hans og ályktanir af reynslu hans. Víst verður stundum eins og 'oil eða haf á miili sógumanns og söguhetju. Svo sem eins og í frásögn af upphafi stríðsins, þar sem Jakob litli, ellefu ára gamall, hugsar með orðaleppum fullorðins manns um ástand heimsmálanna. Hann fylgist „milli vonar og ótta” með af- drifum Pólverja, verður bandalag Hitlers og Stalíns „ráðgáta og harmsefni” þrátt fyrir útskýringar „átrúnaðargoðsins” Halldórs Laxness á atburðunum, gerist „sár- reiður í Finnagaldrinum”, og eygir loks „þá von eina að breska ljónið haldi hlut sínum fyrir skrælingja- sveitum Hitlers”. Og undarlega verður rekið orðafar í lok kafla um óvæntan sjávarfeng, kolasalla sem öreigar tína í fjörunni í Laugarnesi. Sögumaður kveðst þá þegar hafa rennt óljósan grun í ,,að örbirgð og vanefni geta ekki síður en auður og allsnægir slegið fölskva á þá þætti mannlegra samskipta er hnika lifinu út fyrir mörk frumskógarins”. Er þetta ekki ansi mikil ofdýrð í stíls- hætti? Jakob ærlegur Þannig mætti lengur tína til marg- vísleg álitaefni um málfar og efnisat- riði í frásögninr.i. En misskilningur held ég væri að gera af þeim ágreining við söguna eöa láta þau spilla henni fyrir sér. Ef þetta er lýti liggja þau laus í frásögninni. Efnisval og ritháttur í sögunni helgast af hreinskilni, sannsögli sögumannsins, trausti hans á því sem minningin geymir, eins og það er. Og hin ýtarlega veruleikalíking, sem af þvi stafar er hennar stærsti styrkur — ef reynt er að meta hana sem skáld- skapur væri. Auðvitað er vandi þessarar uppvaxtarsögu um síðir hinn sami og hverrar annarrar þroskasögu, skáld- sögu — samaþótt hvertogeitt efnis- atriði hennar sé dagsatt. Um síðir verður höfundur að sameina í eina heild, eina lýsingu, eina mannsmynd tvo þætti mannlýsingar í sögunni, fullorðna mannsins sem segir frá og drengsins sem lifir söguna, sögumanns og söguhetju. Lausn þess vanda geymist til síðasta bindis uppvaxtarsögunnar. En besta veganestið á þeirri leið er án efa einurð og einlægni sögumannsins gagnvart sjálfum sér og söguefni sínu, sjálfstraust höfundarins í verkinu. Tómas Guömundsson-Rit I-X Ljóð I — Ljóð II — Ljóð III — Léttara hjal — Myndir og minningar Menn og minni — Æviþættir og aldarfar I — Æviþættir og aldarfar II Æviþættir og aldarfar III — Æviþættir og aldarfar IV. Þjóðskáldið góða. Hinn mikii listamaður bundins og óbundins máls. Almenna bókafélagið, Austurstræti 18, sími 25544. — Skemmuvegi 36, Kóp. Sími 73055.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.