Dagblaðið - 04.11.1981, Síða 18
18
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 1981
( dag verflur bjart og fagurt vaour
um allt land, laegfl auðveatur í hafl,1
- þykknar upp í nótt mefl hœgt vax-
andi auflvestanátt.
( Reykjavik var í morgun hmgviðri,
skýjafl, -1, Gufuskálar norflan 2,
skýjafl, -1, Gaharvitl norflaustan 1,
skýjafl, -2, Akureyri norflvestan 4,
skýjafl, -2, Raufarhflfn norflvestan 6,
snjókoma, -2, Dalatangi noröaustan
4, snjókoma, -1, Höfn norflan 8, lótt-l
skýjafl, -2, Stórhöffll norflan 6, skýj-
afl, 0.
( Þórshflfn var skýjafl og 6,
Kaupmannahflfn súld og 10, Osió
'þokumófla og 4, Stokkhólmur súld
og 3, London skýjafl og 10, Hamborg
skýjafl og 13, Parfs skýjafl og 9,
Madrid þokumóða og 0, Ussabon
heiðskirt og 12, Costa del sol létt
skýjafl og 17, New York, heiflsklrt
J
Andfát
Karl Þorsteinsson lézt 26. október
1981. Hann var fæddur 2. febrúar 1921
á Bakka við Bakkafjörð. Foreldra
hans voru hjónin Steinunn Stefáns
dóttir og Þorsteinn Valdimarsson. Þau
eignuðust fimm drengi en þrír þeirra
dóu strax í fæðingu. Efdrlifandi kona
Karls er Margrét Sigrún Guðbjörns-
dóttir. Þau eignuðust fjórar dætur og
var heimili þeirra að Sörlaskjóli 60. Á
meðan Karl var við nám í Verzlunar-
skóla íslands starfaði hann hjá Andrési
Andréssyni klæðskera, var hann síðar
skrifstofustjóri þess fyrirtækis í fjölda-
mörg ár. Síðustu fimmtán árin starfaði
hann hjá Marinó Péturssyni. Karl
verður jarðsunginn í dag frá Fossvogs-
kirkju.
Ásthildur Briem, fyrrverandi
hjúkrunarkona, Furugerði 1 Reykja-
vík, andaðist i Landakotsspítala 31.
október.
Baldur Hjartarson frá Hellissandi,
Gnoðarvogi 24, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju, fimmtudaginn 5. nóv.
kl. 13.30.
Bogi Stefánsson, Kjalarlandi 23,
verður jarðsunginn frá Fossvogs-
kapellu, fimmtudaginn 5. nóv. kl.
10.30.
Þorvaldur Þórarinsson frá Hjalta-
bakka andaðist að Hrafnistu 2. nóv.
sl.
Verkakvennafólagið
Framsókn
heldur basar
Basar félagsins verður laugardaginn 7. nóvember í
Lindarbæ. Tekið á móti basarmunum á skrifstofu
félagsins, opið frá kl. 9—19, aðeins þessa viku.
Fundir AA-samtakanna ó
íslandi
LAUGARDAGUR: Rcykjavlk,
Tjarnargata 5 (91-12010 ) Græna húsið kl. 14 og
Sporafundir kl. 16. Tjarnargata 3 (91-16373) Rauða
húsið kl. 21 og 23.30. Langholtskirkja kl. 13. öldu-
selsskóli Breiðholti kl. 16.
Landifl:
Akureyri, (96-22373) Geislagata 39 kl. 16. Höfn
Hornafirði, Miðtún 21 kl. 17. Staðarfell Dalasýslu,
(93-4290) Staðarfell kl. 19. *Tálknafjörður, Þing-
hóll kl. 13. Vestmannaeyjar, (98-1140) Heimagata
24 opinn kl. 17. Kenavík (92-1800) Klapparstíg 7 kl.
14.
* og þegar togari er inni.
Aöalfundur
Geðhjálpar
verður haldinn á geðdeild Landspítalans
fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20.30.
Kvenfólag Frfkirkjunnar
í Reykjavík
heldur fund aö Hallveigarstöðum fimmtudaginn 5.
nóvember kl. 20.30. Gestur fundarins verður
Halldór Rafnar lögfræðingur. Á fundinn koma
einnig vísnavinir.
Kvenfólag
Hallgrímskirkju
Fundur verður haldinn í félagsheimili kirkjunnar
fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20.30. Fjölbreytt
dagskrá. Að loknum kaffiveitingum verður vetrar-
hugvekja. Konur eru hvattar til að taka með sér
handavinnu.
M.S.-fólag íslands
heldur fund í Hátúni 12, fimmtudagskvöld 5.
nóvémber kl. 20.15. Sagt verður frá Japansferð.
Kvenfólag Neskirkju
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn
5. nóvember kl. 20.30 í safnaðarheimilinu. Að
loknum aðalfundarstörfum verður rætt um 40 ára
afmæli félagsins. Kaffiveitingar.
FrϚslufundur
Fuglaverndarfólagsins
í kvöld, 4. nóvember, kl. 20.30 verður fyrsti
fræðslufundur Fuglaverndarfélags íslands í Nor-
ræna húsinu. Árni Einarsson líffræöingur, sem
stundað hefur rannsóknir viö Mývatn sl. átta ár,
mun segja frá fuglalífi við Mývatn og sýna litskyggn-
ur.
Eins og allir vita er Mývatn með merkilegustu
fuglastöðvum í heimi hvað snertir fjölda varpfugla-
tegunda auk sérstaks landslags.
Á seinni árum hefur umferð um svæðið mikið
aukizt og er spurning hvort Mývatn þolir slíkt til
frambúðar.
öllum heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Almennur borgarafundur
f Breiðholti
Kvenfélag Breiðholts efnir til almenns fundar í sam-
komusal Breiðholtsskóla í kvöld, 4. nóvember kl.
20.30. Efni fundarins er þróun byggðar í Breiðholti I
(Bakka- og Stekkjahverfi) og mun Guörún Jónsdótt-
ir, forstööumaður Þróunarstofnunar Reykjavíkur-
borgar, skýra frá skipulagi og byggingaframkvæmd-
um í Mjóddinni. Einnig munu eftirtaldir borgarfull-
trúar taka þátt í umræðum og svara fyrirspurnum:
Birgir ísleifur Gunnarsson, Kristján Benediktsson,
Sigurjón Pétursson og Sjöfn Sigurbjömsdóttir.
Allir sem hafa áhuga á skipulagi og þróun byggð-
ar í Breiðholti eru hvattir til að koma á fundinn.
Árshátíðir .
Árshátíö Átthaga-
félags Strandamanna
í Reykjavík verður haldin laugardaginn 7. nóvember
í Ártúni. Aðgöngumiðar verða seldir í. anddyri
Laugarnesskóla fimmtudaginn 5.nóvember frá kl.
17—19.
Tilkynningar
Snyrting '81
Kynnist haust- og vetrarlínunni í snyrtingu á glæsi-
legu fræðslu- og skemmtikvöldi i Súlnasal Hótel
Sögu, fimmtudagskvöld 5. nóvember kl. 20.30.
Húsið opnar kl. 19.30.
Tízkusýning, vörukynning og fleira í léttum dúr.
íslandskynningar í
Osló og Stokkhólmi
í tengslum viö opinbera heimsókn forseta íslands til
Noregs og Svíþjóðar, stóðu Útfiutningsmiðstöð iðn-
aðarins, Ferðamálaráð, Samband búvörudeild og
Flugleiðir fyrir íslandskynningum i Osló og Stokk-
hólmi. Sú fyrri fór fram á Grand Hotel í Osló laug-
ardaginn 24. október, en sú siöari á Grand Hotel i
Stokkhólmi miðvikudagainn 28. október.
Kynningarnar, sem voru i formi móttöku, voru
annars vegar haldnar fyrir viðskiptavini íslenzkra
fyrirtækja, sem verzla meö vörur frá íslandi eða
hafa á boðstólum þjónustu frá íslandi, og hins vegar
fyrir blaðamenn.
Á báðum stöðunum var gestum boöið upp á is-
lenzkan mat og stjórnaði Hilmar Jónsson veitinga-
stjóri, matseld og framreiðslu. Fimm íslenzkar sýn-
ingarstúlkur sýndu og kynntu það nýjasta í ullar-
fatnaði frá íslandi undir stjóm Brynju Nordquist.
Fyrir hönd íslenzku fyrirtækjanna tóku sendiherr-
ar Islands á viökomandi stöðum á móti gestum og
ávörpuðu samkvæmið, en forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, heiöraði kynningarnar með nær-
vem sinni ásamt fylgdarliði og ræddi við ýmsa gesti.
Afmœlishljómplata
UÍA
Nýkomin er á markaðinn hljómplata, sem Ung-
menna- og íþróttasamband Austurlands lét gera í til-
efni 40 ára afmælis síns.
Á plötunni eru tvö lög; Afmælissöngur UÍA og
Baráttusöngur UÍA. Lögin, sem eru löngu þjóð-
m
I
GÆRKVÖLDI
FRANZISCA
HUGINN 0G MUNINN
Venju samkvæmt gæti ég vitanlega
tíundað þá dagskrárliði sem ég kaus
mér og hálfgert bjóst því við að fjalla
um í þessum pistli.
Margt fer þó á annan veg en horfir
í fyrstu. Þegar upp var staðið, í lok
Fréttaspegils sjónvarpsins, varð mér
ljóst að í mínum huga yfirgnæfði
tvennt allt annað - ^iagskrárefni
kvöldsins. Vangaveltur um þessi tvö
atriði komu mér síðan á spor hins
þriðja.
I fyrsta lagi varð mér hugsað tii
kvöldfrétta útvarpsins. Meðal margs
annars var hermt að pólsku verka-
mannasamtökin, Samstaða, hafa nú
á prjónunum að verkamenn taki
stjórn vinnustaða í eigin hendur.
Samstöðu hefur sem sé hugkvæmzt
enn ein leiðin til jsess að ögra Rússum
— og hverjar verða afleiðingarnar af
markvissri sókninni að birninum?
í öðru lagi var í lok Fréttaspegils
sjónvarpsins fjallað um njósnastarf-
semi rússneskra kafbáta við sænska
landsteina þar sem einn þeirra dagaði
uppi nýlega, eins og hvert annað nátt-
tröll er ekki þolir dagsins ljós. Svíar
taka síðan á öllu saman af maka-
lausri linkind, þótt eitthvað hafi þeir
mannazt, siðan svipað atvik átti sér
stað í fyrra. í því sambandi finnst
mér vera meira en lítið bogið við sjó-
her þeirra og landhelgisgæzlu. Þar
hljóta að vera saman komnir
heimsins mestu aulabárðar.
Ég tel að ofangreindu „atriðin”
mín tvö ættu að vera okkur viti til
varnaðar. Annars vegar kúgaða
þjóðin, sem í örvæntingu sinni virðist
vera reiðubúin að tefla í hvaða hættu
sem er, og hins vegar kúgari hennar
við landsteina Svía — og vafalaust
okkar líka. Svo gaspra Rússar hæst
um frið og afvopnun, enda stefna
þeir að afvopnun annarra.
Þetta tvennt var mér efst í huga við
lok dagskrár í gærkvöldi, vegna þess
að atburðir af slíku tagi geta gert
vonir okkar og áhugamál að engu —
á svipstundu. En í útvarpi og sjón-
varpi kemur allt til okkar á færibandi
og öllu ægir saman; mikilvægu efni
og einskis verðu.
í þriðja lagi velti ég því fyrir mér
áhrifum þessara tveggja stóru fjöl-
miðla, að þeim smærri ógleymdum.
Þeir upplýsa, fræða og slæva okkur í
senn; hörmungar verða daglegt
brauð, sem enginn kippir sér upp
við, og kútveltast innan um
afþreyingarefni mánuð eftir mánuð,
ár eftir ár. Og hvað verður um
okkur?
Fjölmiðlarnir skyldu þó aldrei
vera Huginn og Muninn, hrafnarnir
svörtu, sem öfluðu fregna hvaðan-
æva úr heimi og hvísluðu öllu saman
ieyru óðins? Síðan hefur hann
kannski bara setið þarna, greyið,
orðinn sinnulaus af þessu upplýsinga-
flóði, á meðan ásatrúin lognaðist út
af. Svipað gæti hent okkur ef við
erum ekki á varðbergi. -FG.
kunn, eru eftir Inga T. Lárusson (Ég líöa vil um lönd
og geim og íslands Hrafnistumenn).
Textana gerði Sigurður ó. Pálsson á Eiðum.
Það er hljómsveitin Slagbrandur sem leikur en þar
er fremstur í fiokki hinn landskunni hljómlistar-
maður, Árni ísleifsson.
Upptakan var gerð í Studíó Stemmu undir stjórn
og leiðsögn Sigurðar Rúnars Jónssonar.
Hér hafa því a.m.k. fjórir þekktir snillingar lagt
hönd að verki; Ingi T. Lárusson, Sigurður Ó. Páls-
son, Ámi ísleifsson og Sigurður Rúnar Jónsson og
óhætt að segja að útkoman sé þeim öllum til sóma.
Umsjónarmaður með útgáfunni f.h. UÍA var
Gunnar Baldvinsson.
Nóvemberfagnaður MÍR, 8.
nóvember kl. 15.00 í
Þjóðleikhúskjallaranum
Félagið MÍR, Menningartengsl íslands og Ráð-
stjórnarríkjanna, minnist 64 ára afmælis Október-
byltingarinnar í Rússlandi og þjóðhátíðardags
Sovétríkjanna með síðdegissamkomu í Þjóðleikhús-
kjallaranum sunnudaginn 8. nóvember kl. 15,
klukkan 3 siðdegis.
Þar flytja ávörp Mikahíl N. Streltsov, sendiherra
Sovétríkjanna á íslandi, og Lúðvik Jósepsson, fyrr-
verandi ráðherra. Þá verður samleikur á selló og
píanó, Gunnar Kvaran sellóleikari og Gísli Magnús-
son pianóleikari Ieika. Efnt verður til skyndihapp-
drættis og kaffiveitingar verða á boðstólum.
Aðgangur að nóvemberfagnaði MÍR er ókeypis og
öllum heimill meðan húsrúm leyfir.
Oliver Pain
Thierville 27140
Gisors
France.
18 ára gamall franskur piltur óskar eftir penna-
vinum, piltum eöa stúlkum, á hvaöa aldri sem er.
Skrifar ensku.
Gloría Peterson,
66 HUlcrest R.D.,
Warren, New Jersey,
07060, USA.
Óskar eftir pennavini, er að skrifa um ísland i
skólanum. Skrifar ensku.
Systur óska eftir pennavinum:
Jeanne Weener (15 ára) og
Fredríke Weener (18 ára),
Tollenburg 32.NL-6714 EK EDE (gld),
Netherlands.
Minningarkort
Migren-samtakanna
fást á eftirtöldum stöðum: Reykjavikurapóteki,
blómabúðinni Grímsbæ, Bókaverzlun Ingibjargar
Einarsdóttur, Kleppsvegi 150, Félagi einstæðra for-
ddra, Traðarkotssundi 6 og hjá Erlu Gestsdóttur,
síma 52683.
Minningarspjöld
MS fólags íslands
fást á eftirtöldum stöðum: Reykjavikur Apóteki,
Bókabúð Máls og Menningar, Bókabúð Safamýrar
v/Háaleitisbr. 58—60, Ðókabúð Fossvogs Grímsbæ
v/Bústaðaveg og Skrifstofu Sjálfsbjargar Hátúni 12.
R.
Minningarkort Hjartaverndar
fóst ó eftirtöldum stöflum:
Reykjavik: Skrifstofu Hjartaverndar, Lágmúla 9,
3. hæð, simi 83755; Reykjavíkurapóteki, Austur-
stræti 16; Skrifstofu DAS, Hrafnistu; Dvalarheim-
ili aldraöra við Lönguhlið; Garðsapóteki, Sogavegi
108; Bókabúðinni Emblu v/Norðurfell, Brdðholti;i
Árbæjarapóteki, Hraunbæ 102 a; Bókabúð Glæsi-
bæjar, Álfheimum 74 og Vesturbæjarapóteki,
Melhaga 20—22.
Kópavogur: Kópavogsapóteki, Hamraborg 11.
Hafnarfjörflur: Bókabúð Olivers Steins, Strand-
götu 31 og Sparisjóði Hafnarfjarðar, Strandgötu
8—10.
Keflavik: Rammar og gler, Sólvallagötu 11, og
Samvinnubankanum, Hafnargötu 62.
Akranes: Hjá Sveini Guðmundssyni, Jaðarsbraut
3.
ísafjörflur: Hjá Júliusi Hclgasyni rafvirkja-
meistara.
Slglufjörður: Verzluninni ögn.
Akureyrí: Bókabúðinni Huld, Hafnarstræti 97, og
Bókavali, Kaupvangsstræti 4.
80 ára er í dag, 4. nóvember, Viktor
Björnsson, verkstjóri frá Akranesi, til
Áttræður er í dag, 4. nóvember, Bjarni
Brynjólfsson, Skálavík, Stokkseyri, nú
til heimilis að Hrafnistu í Reykjavík.
heimilis að Sæviðarsundi 35,
Reykjavík. Kona hans er Friðmey
Jónsdóttir. Afmælisbarnið tekur á
móti gestum að Gimli v/Álftanesveg,
Garðabæ, laugardaginn 7. nóvember
frákl. 15.00,
70 ára er í dag, 4. nóvember, Pétur
Sigurbjörnsson trésmiður, Barónsstíg
23 Reykjavík. Hann er að heiman í
dag.
iiiiilll
Leikfólag
Ólafsvíkur
sýnir leikrit
Nálargöt er nýtt íslenzkt leikrit sem Leikfélag ólafs-
víkur sýnir fimmtudagskvöld 5. nóvember
Leikritið er eftir Hörð Torfason, sem jafnframt er
leikstjóri. Hörður hefur áður tekið slíkt verkefni
fyrir LÓ, en hann samdi og sviðsetti bamaleikrit
með söngvum árið 1976 sem hann kallaði Barna-
gaman.
Þetta er og þriðja leikrit Harðar sem er sviðsett,
en hann sviðsetti í vor i Kaupmannahöfn verk sitt
Taktu hatt þinn og staf, sem hlaut góðar undirtektir
og vakti athygli sem nýstárlegt verk.
Nálargöt lýsa lifi og samskiptum sex ungmenna
sem búa í kommúnu við unga stúlku sem verður
eiturlyfjum að bráö. Lýsa ungmennin þessari stúlku
og sýnist sitt hverjum. Nálargöt er tveggja tima
sýning með 15. mín. hléi. Leiktjöld gerði Rannveig
Gylfadóttir eftir leiðsögn leikstjóra og sér hún líka
um búninga. Ljós annast Jón Arngrímsson og
Magnús Emanúelsson. Leikhljóð þeir Ævar Guð-
mundsson og Guðmundur Kristófersson. Aðstoðar-
leikstjóri er Emanúel Ragnarsson. Með hlutverk
fara Helgi Kristjánsson, Valdís Hulda Haraldsdótt-
ir, Kolbrún Þóra Björnsdóttir, Olga Kristjánsdóttir,
Lára Kristjánsdóttir, Sóley Halla Þórhallsdóttir og
Eyjólfur Harðarson. Hvíslari er Amdís Þórðardótt-
GENGID
GENGISSKRÁNING NR. 210 F.ra<.m.nn.
4. NÓVEMBER 1981 flj.id.yrir
Eining kl. 12.00 Kaup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 7,617 7,839 8,402
1 Stariingspund 14,289 14,331 16,764
1 Kanadadollar 6,348 8,367 7,003
1 Dflnsk króna 1,0696 1,0728 1,1798
1 Norskkróna 1/3012 1,3049 1,4353
1 Sœnsk króna 1,3886 1,3928 1,5318
1 Rnnsktmark 1,7482 1,7633 1,9288
1 Franskur franki 1,3876 1,3716 1,5086
1 Balg. franki 0,2064 0,2060 0,2266
1 Sviasn. franki 4,2317 4,2439 4,6682
1 Hollenzk florina 3,1185 3,1276 3,4402
1 V.-þýzkt mark 3,4381 3,4480 3,7928
1 ItöJtk IJr. 0,00644 0,00646 0,00710
1 Austurr. Sch. 0,4900 0.4914 0,6405
1 Portug. Escudo 0,1194 0,1197 0,1316
1 Spánskur peseti 0,0804 0,0806 0,0886
1 Japanskt yen 0,03329 0,03339 0,03872
1 Irakt Dund 12,124 12,169 13,374
8DR (.ératök drátUrrétdndi) 01/09 8,8669 8,8914
Sfmsvarí vsgna gaoglsskránlngar 22190.