Alþýðublaðið - 02.06.1969, Side 9
qftor irrr'rf £ Ifó&IduttftjlA '8
Alþýðublaðið 2. júní 1969 9
Harm velur fæstar af plötun-
utm úr safni útvarpsins, (heldiur
fær iþær að láni hjá vinum sín-
um ýmsum, og sjálfur á hann
SiiJnar, ,,Við erum 10 saman i
hljómplötuklúbbi og hittuimst
Ihálfsmánaðarlega; þar ber
margt á góma og er mikið spil-
að“,
i
Stundum fær bann 'bréf frá
Mustendum, ,,oft alveg stórkost
leg bréf sem mér þykir fjarska-
lega vænt um. Og ég fæ líka að
vita þegar fólki líkar miður.
Smekkurinn er sannarlega mis-
munandi. Einu sinini t’ók ég t. d.
sex prímadonnur og Valdi þær
feem viðurkenndar voru lum all-
an- heim sem kannski þær allra
allra beztu, Callas, Tebaldi.
I
Victoria de los AngeTes, o. s.
frv. Nú, teitir þann unaðslega
Söng fékk ég bréf frá sárhneyksl
uðum hlustanda. Hann kvaðst
alltaf hljusta á þáttinn, en hót-
aði því að hann skyldi skriífa
fyrir og hætta algerlega að
•hlusta á mig ef ég ætlaði að
Teyfa mér að taka upp á ósvinnu
sem þeirri að útvarpa svona
'kerlingaskrækjum yfir lansdlýð
inn!“
SSB
rHljémp8öfusafniðr
hjá Gunnari
Guðmundssyni
1 kvö-ld kl. 22.30 heyrum við
Hljómpiötusafnið hjá Gunnari
C iðmundssyni, þennam ágæta
og vinsæla þátt sem unnendur
kiassískrar tónlístar mega eigin-
lega alls ekki láta framhjá sér
fara. Og séu þeir vant við. látn-
ir á mánudagskvöidum, er ekki
öll von úti, því þátturinn er
endurtekinn kl. 11 á miðviku-
dögum.
Eins og flestum er kurinugt.
er Ounnar framíkvæmdastjóri
iSinfónluhljómsveitarinnar og
iþví gegnsýrðiu af sígildri tónlist
hæði í aðalstarfinu og í sam-
þandi við þáttinn sem heyrir
náttúrlega undir aukastörf.
iHann situr í skrifstofu : sinni
Oi.já Híkisútvarpinu með sólskins
þros á vörum — það hlýtur að
hafa göfgandi áhrif á skapgerð-
ina að gera lundina léttari að
Qifa og hrærast innan um fagra
Itónlist. Að minnsta kosti væri
isynd að segja, að Gunnar væri
súr á svipinn.
FF. JALST OG
FORMÚLULAUST
„Já, hugsaðu þér. það eru kom-
in 13 ár síðan ég byrjaði með
þáttinn á Mozart-árinu, 1956“,
Segir hann. „Tíminn flýgur án
.þess að við verði spomað —
þótt maðurinn geti ýmislegt,
getur hann ekki þetta: ekki ráð
ið við tímans þunga nið“.
En minnugur þess, að það er
.,HLjómplötusafnið“ en ekki nið
ur tímans sem er á dagskrá, fer
hann ekki engra út í þá sálma,
Iþótt hann gæti vafalaust líka
sagt margt prýðilíegt ef hann
tæki þá línuna.
,,t>egar ég ar beðinn um þetta,
sagði ég: ,Eruð þið vitláusir?
Ég að tala í útvarpið. Ekki nema
það þó!‘ “
Hdnn lét þó telja sér hug-
hvarf. og síðan eru liðin 13 ár.
„Ég skal játa, að það er nokk
uð strangt að verá með þáttinn
i hverri viku, en ég reyni að
ihafa hanm alveg form.úlulausan
og í, frjáteu formi, tek ýmist
þetta eða hitt eftir því sem verk
ast vill hverju sinni, og stundum
veitist Iþað létt og stundum mjög
erfiðlega. Annars reyni óg að
vera stuttorður, því að það er
ekki ég sem á að tala þama,
iheldur músíkin. Ég geri svo sem
„ÞaS5 er ekki ég, sem á að tala,
heldur músfkin.“ Gunnar Guðmunds
son, framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, í skrifstofu sinni
hjá Ríkisútvarpinu.
(Mynd: Gunnar Heiðdal)
ekkert — en ég er með alla
mieistarana að baki mér og teíli
þeim fram‘‘.
FORVITNILEGT OG
FRAMANDI
Hann leitast við að koma með
eitthvað sem er ekki alltaf ver-
ið að spila. „Jú, það er kannski
istefna í sjálfu sér, niin! eina
regla. Ég reyni að koma með
nýjar upptökur og rnýjar útgáf-
ur, leggja mig í framkróka við
að finna eitthvað óven.julegt,
forvitnilsgt og framandi. Hljóm
plöutiðnaffiurinn er orðinn svo
gífurlegt fyrirttæki, að úr.valið er
ótrúlegt, og allir keppast við að
ikoma með verk sem sjaldan eru
spiluð. Þannig hafa verið upp-
götvuð á nýjan leik mörg ágæt-
is tónskáld sem hafa horfið í
• igleymsku alls ekki af því að þau
verðskulduðu það, heldur vegna
þess að á þeirra tí-mum skinu
aðrar stjörnur of skært“.
Hannes J. Magnússon flyfur erindi:
LEIÐSÖGN OG
REFSING
Klukkan 20.20 í kvöld flytur Hann-
es j. Magnússon, skólastjóri, síff-
ara útvarpserindi sitt um leiðsögn
og refsingu. Erindi Hannesar um
uppeidis- og kennslumál svo og
skrif hans um þau efni hafa á und
anförnum árum vakið almenna at-
hygli, enda er maðurinn í senn ve!
máli farinn og mælir af reynslu.
Hannes J. Magnússon á að haki
sér rúmlega fjörutíu ára feril við
kennslu og skólastjórn, auk þess
sem hann hefur flutt fjölmörg er-
indi þaraðlútandi og skrifað bækur
um þá reynslu sína, þar sem ekki
fer á milli mála, að hann hefur til
brunns að bera þekkingu og sál-
fræðilegt innsæi gagnvart hinum
ungu nemendum sínum. Þá hefur
Hannes og haslað sér völl sem
barna- og unglingabókahöfundur,
og mun eiga sér allstóran lesenda-
hóp meðal ungu kynslóðarinnar.
—- Um hvað fjallar erindi þitt í
kvöld, Hannes?
— Eins og nafnið gefur til kynna
fjallar það um leiðsögn- og refsingu
barna og er samstofna fyrra erindi
mínu um sama efni.
— Og hvaða niðurstöður berð þú
þar á lx>rð fyrir áheyrendur?
— Ja, ég tel að við eigum að
fara vægt í sakirnar gagnvart ávirð-
ingum barna og yfirsjónum þeirra.
Börn má ekki taka harkalegum tök-
um, þó að þeim verði eitthvað á;
það er miklu skynsamlegra að koma
fram við þau af fyrirgefanidi 6kiln-
ingi: leiðrétta villu þeirra og leiða
þeim fyrir sjónir, að þau hafi ekki
breytt, eins og góðu barni sæmdi.
— En á nú ekki elclri kynslóðin
oft og einatt mesta sök á yfirsjónum
barnanna og unglinganna?
— Jú, áreiðanlega. Fullorðna fólk-
. ið sýnir ekki það góða fordæmi,
sem vera ber, og börnin koma á
efiir. Það er ekki hægt að ætlast til
þess, að börnin séu miklu betri en
foreldrarnir.
— Surnir telja, að æska nútímans
sé spillt af oflæti. Heldur þú, að eitt-
hvað sé hæft í því?
— Já, áreiðanlega. Við íslending-
ar höfum ekki kunnað okkur hóf
upp á síðkastið og börnin draga
dám af því. Þetta er ckki nema eðlL-
lcg þróun.
G. A.
TRYGGIR ■ ■ ■
■ ■ ■ ■ GÆÐIN
KARLMANNAFÖT
með þessu merki fyrir-
liggjandi I fallegu úrvali
á mjög hagstæðu verði.
Útsö.lustaðir:
A N D R É S
Ármúla 5 — Sími 83800
Skóiavörðustig 22B
Sfmi 18250.
FÁTAMIÐSTÖÐIN
Bankastræti 9
Sími 18252.
HERRAMAÐURiNN
Aðaistræti 16
Sími 24795.