Alþýðublaðið - 11.06.1969, Page 14

Alþýðublaðið - 11.06.1969, Page 14
14 Alþýðiiblaðið 11. júní 1969 Juliet Armstrong Töf rahringurinn 1S. I Smáauglýsingar Toní þaut aS glugganum og greip um rimlana. — Þú ert vond kona! veirraöi hún. — Þú vilt ekki leyfa mér að fara í skólann. Ég tala aldrei viö þig aftur. — Við verðum að leiða þetta mál til lykta, Toní, sagði Helen biðjandi. Hvernig getum við verið vinir, þegar þú hatar mig svo mjög? Hvers vegna reyn- iröu ekki að taka tillit til mín? Þú ert ekki aðeins órétt- lát gagnvart mér. Þú ert ósanngjörn vð látna móður þína. — Pabbi mundi gleyma þér fljótlega, ef þú færir, og þá liði okkur vel afur, sagði litla telpan og bætti svo við: — Okkur leið svo vel hérna áður fyrr. Þá gátum við látið eins og mamma væri hérna, en það getum við ekki lengur. Og meðan þær horfðu báðar út um gluggann, kom hið óvænta fyrir. Morris-inn hvarf sýnum, en það birt- ist annar bíll — Vauxhallin, sem Dermot hafði farið í. — Hvað ætlarðu að segja honum um mig? spurðí Toní. — Ef þú ferð niður og skilar lyklinum, sagði Hel- en, skal ég ekki minnast á þetta einu orði. En ég verð að segja honum, að þú viljir ekki hafa mig hérna, eða að ég noti eitthvað af því, sem mamma þín átti. Barnið hikaði um stund, en sagði svo: —■ Ég ætla að láta hann fá lykilinn og segja honum hvers vegna ég tók hann. Það er ekki mér að kenna, ef hann reið- ist. Helen gekk niðurbrotin inn í svefnherbergi sitt og leit í spegilinn. En hvað ég lít illa út hugsaði hún í örvæntingu sinni. Svo púðraði hún sig lauslega. Eg er svo þreytu- leg, og um leið velti hún því fyrir sér, hvort hún hefði ráðizt í meira en hún gæti annað með því að ganga að eiga Dermot. Svo heyrði hún Dermot stökkva upp stigann og hróp hans: — Hvar ertu, Helen? Og þá vissi hún, að hún hefði gengið að eiga hann vegna þess að hún gat ekkert annað gert. Að hann var allt hennar líf. Er það ekki dásamlegt, elskan? Ég verð aðeins heima tvo til þrjá klukkutíma, en ég vildi endilega fá að sjá þig. Hann henti frá sér töskunni og faðmaði hana að sér. — Hefurðu saknað mín? Elskarðu mig enn? Iðrar þig þess, að þú skyldir ganga að eiga mig? Spurningum hans var svarað með kossum og hún hló og grét í senn. — Elskan mín! Ég finn saltbragð af vörum þínum! Hefurðu verið að gráta? Hann sleppti henni og horfði rannsakandi á hana. — Ertu ekki hrifin yfir að sjá mig? — En su spurning! Hún beit sér á vör, svo að hann sæi ekki, að varir hennar skulfu. — Ég elska þig. Ég vildi óska þess, að þú þyrftir ekki að fara svona fljótf aftur héðarí. — Ég vildi einnig óska þess. Ef ég er heppinn, fæ ég tveggja daga frí á morgun. Ég á að syngja á morg- un, en það er klukkan sex, og ég syng aðeins í fyrri hlutanum. Ég kem heim klukkan átta og vonast eftir veizlu. — Finnst þér leitt, ef ég býð Tom Merryl með? — Alls ekki. Hann reyndi að virðast hrifinn. — Hann er nánasti ættingi þinn hérna. Við verðum að vera gestrisin við hann. — Ætli það sé ekki betra að bíða með að bjóða honum heim? sagði Helen, sem fann, að hann óskaði alls ekki eftir að fá Tom í heimsókn. — Þá getum við fengið að vera ein heima. Dermot Ijómaði. — Það lízt mér vel á, sagði hann. — Ef ég get ekki komið heim á morgun, skaltu bjóða Merryl hingað. Ég verð kominn heim, áður en hann fer. . — Gott, en það var eitt enn ... Hún ætlaði einmitt að fara að segja honum frá því, að hún hefði hitt hann um morguninn og heimsótt hann, en þá var barið að dyrum, og Toní kallaði taugaóstyrk: — Ertu inni, pabbi? Má ég tala við þig andartak? — Komdu bara inn fyrir, sagði hann glaðlega, en þegar telpan opnaði dyrnar og stóð þar og starði á hann stórum, brúnum augunum, spurði hann höst- uglega: — Hvað er eiginlega að þér? Hvers vegna fórstu ekki í skólanrt í dag? Hún kom inn fyrir og lokaði. — Helen bannaði mér að fara. Ég læsti flyglinum og faldi lykilinn, og hún gat ekki spilað og... — Ég held, að ég skilji þig ekki! Dermot gekk til ■ dóttur sinnar og horfði alvarlegur á hana. — Hún á ekki flygilinn, heldur mamma og vio I Sandra eigum að erfa hanrr, sagði Toní óeðlilega | hárri rödd. | — Er það rétt? Hann kinkaði kolli, alvarlegur á i svipinn. — Svo að þú hefur verið að hugsa um þetta, fl meðan ég var að heiman? Hann rétti fram höndina 1 og snart höku hennar: — Þú ert að tala um það, ■ sem þú berð ekkert skynbragð á! Ég á húsið og það, | sem í því er — ekki þú eða Sandra. Mamma ykkar I — blessuð sé minnig hennar — eftirlét ykkur pen- inga, sem þið fáið vexti af eftir tuttugu og eins árs I aldur. Húri gaf þér líka skartgripi sína, sem verða | geymdir í bankahólfi þangað til þú getur borið þá _ sjálf. Þeta er svar við vissum hluta orða þinna, hitt I er svo annað, að... — Á ég ekki að fara, Dermot? greip Helen fram - í. — Það verður auðveldara fyrir ykkur Toní, að ég I sé ekki hérna. — Kannski. Hvað finnst þér, Toní? ■ Telpan kinkaði kolli og rétti föður sínum lykilinn. I — Sé það rétt, að ég geti ekki bannað henni að I nota flygilinn, skaltu láta hana fá lykilinn, sagði hún ■ og rödd hennar skalf. — Ég... ég geri það aldrei. I Dermot roðnaði af reiði, en svo yppti tiann öxlum I og leit þreytulega á Helen: Ég fer með harra heimsku ■ dóttur mína út í garðinn, sagði hann. — Þú mátt I finna handa mér hvíta skyrtu og hreina sokka á með- ■ an. Þaö skaöar ekki, þótt þú látir Táeina vasaklúta | tresmiðaþjonusta Látið fagmann annast viðgerðir og viðhald á tréverki húseigna yðar, ásamt breyitingum á nýjiu og eldra húsnæði. — Sími 41055. V OLKS WAGENEIGENDUR! Höfum fyrirliggja'ndl: Bretti — Hurðir — Vélarlok .ueki meo . . orvara fyrh á kveðið verð. — Reynið viðskáptin1. Bílasprautun Garðars Sigmundssonar, Skipholti 25, Símar 19099 og 20988. GLUGGAHREINSUN og rennuhreinsun. Vönduð og góð vinna. Pantið í tíma í síma 15787. BIFREIÐASTJÓRAR Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein: hemlaviðgeðir, hemlavarahlutir. Hemlastilling h.f., Súðavogi 14, Sími 30135. Getum útvegað tvöfalt einangrunargler með mjög sbuttum fyrirvara, önnumst máltöku og ísetningu á einföldu og tvöföldu gleri. Einnig alis konar við- hald utanhúss, svo sem rennu- og þalkviðgerðir. Gerið svo vel og leitið tilboða í símum 52620 og 50311. BÓLSTRUN — SÍMI 83513. Hef fluitt að Sfcaftahlíð 28, fclæði og geri við bódstruð húsgögn. Bólstmn Jóns Ámasonar, Skaftahlí® 28, sími 83513. BIRKIPLÖNTUR til sölu, af ýmsum stærðum, við Lynghvamm 4, — sími 50572. JÓN MAGNÚSSON, Skuld, Hafnarfirði. PÍPULAGNIR Tek að mér viðgerðir, uppsetningu á hréin- lætistækjum, frárennslis-og vatnslagnir Guðmundur Sigurðsson Sími 18717 Jarðýtur - Traktorsgröfur Höfum til leigu litlar og stórar jarðýtur traktorsgröf- ur og bílkrana, til allra framkvæmda, innan og utan borgarinnar. Jarðvinnslan Síðumúla 15 — Símar 32480 — 31080. Heimasímar 83882 — 33982. / SÓFASETT með 3ja og 4ra sæta sófum, ennþá á gamla verðinu. BÓLSTRARINN, Hverfisgötu 74, sími 15102. Auglýsingasíminn er 14906.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.