Veðráttan - 02.12.1956, Síða 1
VEÐRÁTTAN 1956
ÁRSYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFUNNI
Tí ðar f ar sy f irlit.
TíÖarfar var mjög breytilegt, en í heild má þó telja árið sæmilega hagstætt.
LoftvægiÖ var 1.2 mb yfir meðallagi, frá 0.5 mb á Galtarvita að 1.8 mb á Hólum. Lægsta
loftvægi ársins mældist á Keflavíkurflugvelli 8. nóvember kl. 11-12, 949.9 mb, en hæsta á
á Kirkjubæjarklaustri 11. febrúar kl. 1,1042.5 mb.
MeÖalhiti ársins var 1.0° yfir meðallagi. Á öllum stöðvum, sem meðaltöl eru til fyrir, var
hlýrra en í meðalári. 1 innsveitum var árssveifla hitans yfirleitt 14°-16°. Við aust-
ur- og norðurströndina var hún 9°-12°, en annars staðar með ströndum fram 11°-13°.
Sjávarhiti við strendur landsins var í meðallagi, frá 0.5° undir meðallagi við Grímsey að
0.4° yfir því við Fagradal og Grindavík. Sjávarhiti við Gróttu mældist 6.1° og við Grinda-
vík 8.0°.
Úrkoman á öllu landinu mældist 7% umfram meðallag. Mest mældist hún að tiltölu í
Kvígindisdal, tæplega 50% umfram meðaliag, en minnst á Dalatanga, % af meðalúrkomu.
Mesta sólarhringsúrkoma mældist á Dalatanga 21. sept., 87.4 mm, og 26 sinnum mældust
50 mm eða meira á ýmsum stöðvum. Úrkomudagar voru fleiri en í meðalári á öllum stöðv-
um, sem meðaltöl hafa. Úrkoman á Eyrarbakka mældist 1459 mm.
Stormar voru víðast fleiri en venja er til, nema á Austurlandi.
Sólskin mældist 1150 klst. í Reykjavik, og er það 85 stundum skemur en í meðalári. Á
Akureyri mældust 699 sólskinsstundir eða 185 færri en venja er til. Á Hallormsstað voru
sólskinsstundir 908.
Veturinn 1955-’56 (des.-marz) var óhagstæður framan af, en hagstæður tvo síðari mán-
uðina. Hitinn var 0.7° yfir meðallagi. Hvergi var kaldara en í meðalári. Á Norðurlandi og
um miðbik Vesturlands var rösklega 1° hlýrra en venja er til, en annars staðar var vik hit-
ans frá meðallagi innan við 1°. Hitinn var í meðallagi 11 daga, 34 daga var l°-4° kaldara en
i meðalári, og 14 daga var hitinn 5°-9° undir meðallagi. 1 36 daga var hitinn l°-4° yfir
meðallagi og 27 daga var 5°-9° hlýrra en í meðalári. Úrkoman var tæplega minni en
venja er til. Á Norðurlandi var meiri úrkoma en í meðalári, en i öðrum landshlutum var
hún innan við meðallag. Snjór var meiri en í meðalári og hagar lélegir tvo fyrri mánuðina,
en í febrúar og marz var minni snjór og betri hagar en venja er til.
Vorlð (apríl-maí). Tíðarfar var víðast talið fremur hagstætt framan af, en óhagstæðara
er á leið. Hiti var 0.9° yfir meðallagi. Víðast var um það bil 1° hlýrra en venjulega, en á
Norðaustur- og Suðvesturlandi var þó heldur kaldara. Hiti var í meðallagi 14 daga. 1 15
daga var hiti undir meðallagi, l°-4°, og 32 daga var l°-6° hlýrra en venja er til. Úrkoman
var %0 umfram meðallag, hún var meiri en í meðalári nema á Suðausturlandi og á norðan-
verðu Snæfellsnesi.
Sumarið (júni-sept.) var yfirleitt fremur hagstætt. Hiti var 0.3° undir meðallagi. Á
Austfjörðum og Suðausturlandi var víðast lítið eitt hlýrra en i meðalári, en í öðrum lands-
hlutum var yfirleitt heldur kaldara en venja er til. (Þess ber að gæta, að tölurnar um meðal-
lagshita, eru lítið eitt of háar að sumri til, smb. ársyfirlit 1955). Hiti var í meðallagi 38 daga.
1 57 daga var l°-4° kaldara en venja er til, og 27 daga var l°-5° hlýrra en í meðalári. Úr-
koman var tæplega % af meðalúrkomu. Hún var innan við meðallag á allflestum stöðvum,
sem meðaltöl hafa, og minnst að tiltölu á Suðvesturlandi. Sólskin mældist 71.8 klst. lengur
en í meðalári í Reykjavík, en 38.6 klst. skemur en venja er til á Akureyri. Heyfengur varð í
meðallagi, en uppskera úr görðum rýr.
Haustið (okt.-nóv.) var stormasamt og því óhagstætt, nema um austanvert landið. Hiti
var 2.4° yfir meðallagi. Hlýjast var að tiltölu á Norður- og Norðausturlandi, þar var viða
um það bil 3° hlýrra en venja er til. 1 öðrum landshlutum var hiti yfirleitt l%°-2%° yfir
meðallagi. Hitinn var í meðallagi 11 daga, og 12 daga var l°-5° kaldara en venja er til. 1 24
daga var hitinn l°-4° yfir meðallagi, og 14 daga var 5°-8° hlýrra en í meðalári. Úrkoman
var tæplega 50% umfram meðallag. Um norðaustanvert landið var minni úrkoma en í meðal-
ári, en í öðrum landshlutum var hún meiri en venja er til. Sums staðar á Vesturlandi
mældist meira en tvöföld meðalúrkoma.
(49)