Veðráttan - 02.12.1956, Síða 15
1956 Veðráttan Ársyfirlit
fyrr en 1953 er Adda Bára Sigfúsdóttir var ráðin til starfa i veðurfarsdeild og 1956, þegar
Flosi Hrafn Sigurðsson varð deildarstjóri áhaldadeildar.
Varla þarf að taka það fram, að mörg verkefni bíða úrlausnar i þessum deildum af
framangreindum ástæðum, svo og vegna þess, að loftslagsfræði hefur þróazt mjög ört
síðasta áratug, og kröfur, sem gerðar eru á alþjóðavettvangi, um nákvæmni veðurathug-
unaráhalda og samræmi á aðferðum við athuganir hafa orðið strangari.
Til þess að flýta sem mest fyrir þróun veðurfarsdeildar og áhaldadeildar lagði Veður-
stofan til við Samgöngumálaráðuneytið, að sótt yrði um tækniaðstoð, sem veitt er á veg-
um Sameinuðu þjóðanna, en Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur milligöngu um útvegun
tækniaðstoðar vegna veðurþjónustu. Var sótt um tækniaðstoð til handa Veðurstofu Is-
lands árið 1955, og var fé veitt á árinu 1956 til þess að standa straum af kostnaði við dvöl
sérfræðings hér á landi. Skyldi hann sérstaklega athuga starfsemi veðurfarsdeildar og
áhaldadeildar og gera tillögur um aðgerðir til að bæta starfsskilyrði þeirra.
Sem sérfræðingur var ráðinn dr. A. Ángström, fyrrverandi forstjóri sænsku veður-
stofunnar, en hann hafði nýlega látið af embætti fyrir aldurs sakir. Kom hann til Islands
30. júli og dvaldist til 7. september.
Tillögur dr. Angströms eru í stuttu máli þessar:
1. Tækniaðstoðarstofnun Sameinuðu Þjóðanna veiti fé til kaupa á áhöld-
um í tilraunastofu og smíðavinnustofu, að því tilskyldu, að íslenzk stjórnarvöld
veiti fé til að greiða húsnæði og laun áhaldasmiðs,
2. S. Þ. láti í té tæki til geislamælinga.
3. Tveir sérfræðingar verði sendir til Islands á vegum S. Þ. til að leiðbeina
um störf í veðurfarsdeild og áhaldadeild. Hæfilegur dvalartími hvors um sig
mun að áliti dr. Angströms verða um þrir mánuðir.
4. S. Þ. veiti þeim veðurfræðingum, sem starfa í veðurfarsdeild og áhalda-
deild, styrk til að kynna sér störf í sérgreinum sínum við erlendar stofnanir,
þegar aðstæður á Veðurstofunni leyfa.
5. Auk sérmenntaðs áhaldasmiðs verði ráðinn veðurfræðingur til að starfa
með deildarstjórum veðurfars-, áhalda- og jarðeðlisfræðideildar og og 1—2 nýir
aðstoðarmenn í veðurfarsdeild. Annar aðstoðarmaðurinn ætti jafnframt að að-
stoða við bókavörzlu.
6. Bætt verði við 6 nýjum veðurstöðvum. Starfrækt verði ennfremur a. m.
k. hluta úr árinu, ein stöð í óbyggðum og verði henni valinn staður, sem í senn
sé mikilvægur frá sjónarmiði veðurfræðinnar og komi að sem beztum notum
við rannsóknir vegna rafvirkjana.
Samkvæmt ósk dr. Angström var haldinn fundur á Veðurstofunni með fulltrúum ým-
issa opinberra stofnana, og var þar rætt um nánara samstarf milli þessara stofnana og
Veðurstofunnar.
Alþjóðasamstarf.
önnur ráðstefna Evrópudeildar Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar var haldin í Du-
brovnik (Júgóslavíu) 12.—24. marz. Á ráðstefnunni mætti 71 fulltrúi frá 30 meðlima-
löndum og auk þeirra áheyrnarfulltrúar frá nokkrum löndum utan Evrópusvæðisins svo
og frá S. Þ. og öðrum alþjóðastofnunum. Á ráðstefnunni voru gerðar 40 samþykktir og 9
tillögur. M. a. voru gerðar skrár yfir allar veðurstöðvar á svæðinu, þar sem gerðar eru
athuganir við yfirborð jarðar og i háloftum til notkunar á alþjóðavettvangi. Ennfremur
voru gerðar tillögur um fjölgun veðurstöðva, einkum háloftaathugunarstöðva. Mjög
mikið starf var unnið við áætlun um skipulagningu veðurskeyta- og veðurkortasendinga.
Varð ljóst á þessum fundi, að miklar breytingar eru í vændum á þessu sviði næstu árin,
þannig að veðurfregnir verða í æ ríkara mæli sendar með fjarritvélum, radíófjarritvél-
um og myndsenditækjum, en „morse“-sendingar munu minnka eða jafnvel hverfa.
Veðurstofustjóri sat þessa ráðstefnu fyrir hönd Islands.
Hlynur Sigtryggsson var áheyrnarfulltrúi Rannsóknaráðs ríkisins á fundi, sem hald-
inn var i Stokkhólmi í maí, til að undirbúa samvinnu Norðurlanda við ýmis störf á jarð-
eðlisfræðiárinu. Samþykkt var tillaga um að Norðurlöndin önnuðust í sameiningu spár
fyrir leiðangra, sem gerðir verða út á þann hluta Ishafs-svæðisins, sem Norðmenn einir
hafa hingað til gert spár fyrir. Einnig var ákveðið að koma á sameiginlegri daglegri úr-
(63)