Veðráttan - 02.12.1956, Síða 16
Ársyfirlit
Veðráttan
1956
vinnslu á veðurathugunum, sem gerðar verða á jarðeðlisfræðiárinu. Samþykkt var, að
starfsemi þessi skyldi fara fram í Oslo.
Dagana 23.—28. maí sat Páll Bergþórsson ráðstefnu í Frankfurt, þar sem fjallað var
um vélreiknaðar veðurspár.
1 september var haldin ráðstefna í Genf á vegum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar í
þeim tilgangi að endurskoða samning, sem gerður var 1948, um flugþjónustu á Islandi,
Færeyjum og Grænlandi. Engin breyting varð á meginatriðum fyrra samkomulags um
greiðslur erlendra aðila vegna flugveðurþjónustunnar. Veðurstofan fær endurgreiddan
allan kostnað af starfsemi islenzku veðurstofunnar á Keflavíkurflugvelli, en ekki er
heimilt að fjölga starfsmönnum þar nema með samþykki Alþjóðaflugmálastofnunarinnar.
Samkvæmt hinum nýja samningi starfa þar sjö veðurfræðingar, sjö háloftaathugunar-
menn og níu aðstoðarmenn. Ennfremur eru samkvæmt samningi þessum greidd 60% af
kostnaði við loftskeytadeild Veðurstofunnar, laun eins aðstoðarmanns í Reykjavík og
88% af kostnaði við sjö veðurstöðvar víðs vegar á landinu, þar sem gerðar eru átta athug-
anir á sólarhring. Einnig fær Veðurstofan greiddan ýmsan umsjónarkostnað.
Veðurstofustjóri og Hlynur Sigtryggsson, deildarstjóri, voru fulltrúar Veðurstofunn-
ar á þessari ráðstefnu, en Flugmálastjórn og Póst- og símamálastjórn sendu að sjálf-
sögðu einnig fulltrúa þangað.
Viðauki.
Skaðar í janúar. Þ. 2. urðu viða nokkrar skemmdir á húsum. Þak tók af íbúðarhúsi á
Veisu i Fnjóskadal, og þar grófust 20 kindur undir fjárhúsvegg, sem hrundi. Fjórar
þeirra drápust. Mjólkurbill fauk um koll á Árskógsströnd. Tvo báta rak á land, annan
við Neskaupstað, en hinn í Vík. Skemmdir urðu litlar. Þ. 3. féll maður á hálku í Reykja-
vík og beið bana af. Dagana 3.—5. urðu víða minni háttar skemmdir á mannvirkjum um
norðanvert landið. Þ. 9. fékk bv. Jón forseti á sig brotsjó og laskaðist nokkuð. Sama
dag hrakti 220 kindur frá Skefilsstöðum á Skaga til heiða, og drápust um 60 þeirra, og
þ. 12. fórst fé í fönn á Snæfellsnesi. Þ. 9.—10. urðu víða símabilanir. Þ. 14. strandaði ms.
Hvassafell í Borgarfirði í þungum straumi og ísreki, en náðist út aftur óskemmt. Þ. 25.
var drengur nærri kafnaður í snjóhengju á Suðureyri. Þ. 29. ruddi krapaflóð um fjár-
húsi og hlöðu á Borgareyri í Mjóafirði, 14 kindur, hestur og kálfur fórust. Ennfremur
sópaði flóðið bifreið niður í fjöru, og stórskemmdist hún. Þ. 29. rak vélskipið Odd á land
við Þórshöfn, en skemmdir urðu engar. Sama dag olli mikið flóð og jakaburður i Hvítá
í Borgarfirði víða skemmdum á símalínum. Þ. 31. fauk þak af nýju verzlunarhúsi á Hofs-
ósi, og sama dag löskuðust tveir bátar frá Akranesi.
Jarðskjálftar í maí. Þ. 2. kl. 2147 fannst greinilegur jarðskjálftakippur í efstu byggð-
um Borgarfjarðar. Upptök hans mældust í 84 km fjarlægð frá Reykjavík.
Leiðréttingar.
Bls. 45. Næst síðasta lína þriðju málsgreinar. Eftir orðinu rigning komi: eða snjókoma.
Síðasta lína sömu málsgreinar. I stað rigndi víðast nokkuð komi: Var víðast úrkoma.
1 ársyfirliti 1955, bls. 55, í fyrstu línu stendur: gildi hitastuðlanna c og Cj en á að
vera cx og c2.
I ársyfirliti 1952, bls. 52, er mesta sólarhringsúrkoma á Suðureyri skráð 39.8, en é að
vera 139.8.
(64)