Veðráttan - 02.12.1961, Qupperneq 1
VEÐRÁTTAJÍ 1961
Arsyfiklit samið A veiiurstofunivi
Tíðarfarsyfirlit
Tíöarfariö var fremur óhagstætt nema tvo fyrstu mánuðina.
Loftvægi var 1.9 mb undir meðallagi. Hæst stóð loftvog á Kirkjubæjarklaustri 19.
desember kl. 11, 1036.1 mb, en lægst í Vestmannaeyjum 26. janúar kl. 19, 942.0 mb.
Iíiti var 0.8° yfir meðallagi. Við strendurnar var yfirleitt rösklega 1° hlýrra en í
meðalári nema við suðvesturströndina og norður til Breiðafjarðar, en þar var hitinn
%°—1° yfir meðallagi. (Miðað er við meðaltöl 1901—1930). 1 innsveitum var einnig víð-
ast %°—1° hlýrra en í meðalári, kaldara var þó á Hólsfjöllum, aðeins 0.2°—0.3° hlýrra
en meðallagið 1901—1930.
Árssveifla hitans var 9°—10° í útsveitum á Norður- og Austurlandi og 11°—12° við
vesturströndina. Á Suðurlandi var hún 12°—15°, og í innsveitum í öðrum landshlutum
yfirleitt 13°—15°. Á Hólsfjöllum komst árssveiflan upp í 17°.
Sjávarliiti við strendur landsins var 0.4° yfir meðallagi.
Úrkoma var 6% umfram meðallag. Vestan til á landinu var hún innan við meðallag
nema nyrzt á Vestfjörðum, þar sem hún náði meðallagi. Annars staðar var úrkoma frá
meðallagi að % umfram það. Mest mældist ársúrkoman í Vík í Mýrdal, 2402 mm, en mest
miðað við meðallag var hún á Hallormsstað og í Fagradal. Minnst mældist úrkoma í Búð-
ardal, 382 mm, en minnst eftir hætti á Hellissandi, 25% innan við meðallag. Mesta sólar-
hringsúrkoma á árinu mældist í Laugardælum 14. nóvember, 102.8 mm. Sama dag mæld-
ust 101.6 mm í Kvigindisdal og 100.5 mm á Eyrarbakka, og þ. 21. nóvember mældust 100.4
mm i Vík í Mýrdal. 1 36 skipti var sólarhringsúrkoma milli 50 og 100 mm. Úrkomudagar
voru fleiri en í meðalári nema við Faxaflóa og Breiðafjörð.
Sólskin mældist 1245 klst. í Reykjavík, og eru það 10 klst. umfram meðallag. Á Reyk-
hólum mældust 1072 klst. og á Akureyri 977 mánuðina janúar—nóvember, en það er 11
klst. umfram ársmeðallag. Á Höskuldarnesi mældust 931 klst., á Hallormsstað 969 og á
Hólum í Hornafirði 1204 klst.
Veturinn (desember 1960—marz 1961) var lengst af hagstæður. Hiti var 1.4° yfir
meðallagi. Hlýjast var að tiltölu við austur- og suðausturströndina, eða tæplega 2° hlýrra
en venja er til. Annars staðar á landinu var hiti yfirleitt 1°—1%0 yf ir meðallagi. Hiti var
1°—5° undir meðallagi í 35 daga, frá meðallagi að 4° yfir þvi i 64 daga og 5°—8° yfir
meðallagi í 22 daga. Úrkoma var % meiri en í meðalári á öllu landinu, frá % af meðal-
úrkomu vestan til á Norðurlandi að % umfram meðallag á Norðausturlandi.
Vorið (apríl—maí) var óhagstætt framan af, en hagstæðara er á leið. Hiti var 0.9“
yfir meðallagi. Vik hitans frá meðallagi var allbreytilegt. Hvergi var þó kaldara en í með-
alári, en hitavikið var frá 0.1° upp í 1.4°. Fjóra daga var 5°—8° kaldara en i meðalári, og
13 daga var hitinn 1°—4° undir meðallagi. 1 41 dag var hiti frá meðallagi að 4° yfir því,
og 3 daga var 5°—6° hlýrra en í meðalári. Úrkoma var í tæpu meðallagi á öllu landinu.
Hún var minnst á Suðvestur- og Vesturlandi, allt niður í helming meðalúrkomu, en mest
norðan til á Austfjörðum, eða sem næst tvöföld meðalúrkoma.
Sumarið (júní—september) var fremur óhagstætt. Hiti var 0.4° yfir meðallagi, frá
%° undir meðallagi á Hólsfjöllum að um það bil 1° yfir meðallagi sums staðar við strendur
landsins. I 74 daga var hiti frá meðallagi að 3° undir því, og í 48 daga var 1°—4° hlýrra en
í meðalári. Úrkoma mældist 93% af meðalúrkomu. Hún var meiri en í meðalári frá norð-
anverðum Vestfjörðum yfir Norður- og Austurland til öræfa, en um meginhluta Suður-
og Vesturlands var minni úrkoma en í meðalári. Um norðaustanvert landið voru úrkomu-
dagar óvenju margir í ágúst og september. 1 Reykjavík mældist sól 25 klst. lengur en í
meðalári, og á Akureyri 41 klst. umfram meðallag. Heyfengur varð víðast sæmilegur.
Haustið (október—nóvember) var óhagstætt austan til á landinu, en sæmilega hag-
stætt vestan lands. Hiti var 1.7° yfir meðallagi. í 19 daga var hiti frá meðallagi að 4°
undir þvi, í 33 daga var 1°—4° hlýrra en í meðalári, og í 9 daga var hitinn 5°—7° yfir
meðallagi. Úrkoma var Ví umfram meðallag. Hún var mjög breytileg, frá 60—75% um-
fram meðallag á þrem stöðvum austan til á landinu að 60—90% af meðalúrkomu norðan
til á Snæfellsnesi.
(97)