Veðráttan - 02.12.1961, Side 33
1961
VEÐRÁTTAN
Ársyfirlit
ÁRSSKÝRSLA
Dr. Þorkell Þorkelsson, fyrrverandi veðurstofustjóri, andaðist 7. maí. Hann var for-
stjóri Veðurstofunnar frá stofnun hennar 1920, og þar til hann lét af embætti fyrir aldurs
sakir 1946. Hann vann mikið brautryðjandastarf í islenzkri veðurþjónustu og jarð-
skjálftarannsóknum og samdi margar ritgerðir um veðurfræði og önnur náttúrufræðileg
og stærðfræðileg efni.
Breytingar á starfsliði.
Reykjavíkurflugvöllur: Björn L. Jónsson, veðurfræðingur og læknir, fékk lausn úr
stöðu sinni i ágústlok og réðist til læknisstarfa. Björn hafði verið fastur starfsmaður
Veðurstofunnar allt frá 1930 og aðallega unnið við veðurspár. Knútur Knudsen, veður-
fræðingur, sem áður hafði unnið á Keflavíkurflugvelli, tók við stöðu Björns í nóvember.
Kristmundur Jakobsson, aðstoðarmaður, hætti í júlíbyrjun, og var Svala Jónsdóttir ráðin
í hans stað. Öskar Guðlaugsson, aðstoðarmaður, hætti i september. Katrín Karlsdóttir
vann um tveggja mánaða tíma vegna sumarleyfa aðstoðarmanna. 1 loftskeytadeild var
starfsmönnum fækkað um tvo vegna breyttrar tilhögunar við móttöku veðurskeyta, og
hættu tveir yngstu starfsmennirnir, þeir Halldór Jóhannsson og Kormákur Kjartans-
son, í janúarlok.
Keflavíkurflugvöllur: Hilmar Sigurðsson tók við starfi í háloftastöðinni í febrúar.
1 stað hans var Gylfi Snær Gunnarsson ráðinn aðstoðarmaður, en hann hætti í september.
I nóvember voru ráðnir þrír aðstoðarmenn, þeir Hörður Karlsson, Ragnar Kjartansson
og Örn Forberg. Alþjóðaflugmálastofnunin hafði þá heimilað að bæta við einum starfs-
manni, og Jón Ferdinandsson hafði sagt starfi sinu lausu. Markús Einarsson, veðurfræði-
nemi, vann um tíma vegna sumarleyfa aðstoðarmanna.
Áhaldadeild: Eyjólfur Þorbjörnsson, veðurfræðinemi, vann við eftirlit með veður-
stöðvum sumarlangt vegna veikindaforfalla Þóris Sigurðssonar.
Jaröeölisfræöideild: Eysteinn Tryggvason tók aftur við störfum 1. nóvember, og hætti
þá Guðmundur Pálmason, verkfræðingur, að vinna fyrir deildina.
Bóka- og skjalasafn: Vegna fjarveru Eysteins Tryggvasonar var Svanlaug Baldurs-
dóttir ráðin til starfa tímabilið júní—september, og ennfremur vann hún nokkra tíma í
viku þrjá síðustu mánuði ársins. Deildarstjóri áhaldadeildar hafði yfirumsjón með bóka-
safninu og deildarstjóri veðurfarsdeildar með skjalasafninu.
Engar breytingar urðu á starfsliði veöurfarsdeildar.
Veöurfræöinemar: Egill Sigurðsson, Eiríkur Sigurðsson og Þór Jakobsson unnu í
leyfum sinum við úrvinnslu ozon- og sólgeislunarmælinga og ennfremur við skjalasafnið.
Eyjólfur Þorbjörnsson hóf aftur starf í desember, að afloknum fyrrihluta embættisprófs,
og vann þá að úrvinnslu ozonmælinga.
Skrifstofa: Edda Eyfeld, ritari, sem hafði haft ólaunað frí frá því seint á árinu 1960,
sagði lausu starfi sínu í mai. Hulda Baldursdóttir vann í hennar stað fram í marzmánuð
og Karlotta Aðalsteinsdóttir frá júní til september, en þá var Ingibjörg Guðmundsdóttir
ráðin ritari, og Karlotta tók að kynna sér aðstoðarstörf á Reykjavikurflugvelli, en hætti
störfum hjá Veðurstofunni snemma á árinu 1962.
Veðurstöðvar.
Athugunarmenn: Gísli Guðmundsson, stöðvarstjóri, hætti störfum fyrir aldurs sakir
snemma á árinu, og lögðust þá niður athuganir á Djúpavogi, en þar hafði Gísli athug-
að í 18 ár.
Kristín Ölafsdóttir á Hlaðhamri hætti athugunum í maí, en við tók Kjartan Ölafs-
son, sem áður hafði athugað þar. Kristín var áhugasamur og traustur athugunarmaður
þau ár, sem hún gegndi starfinu.
Ásgeir Guðmundsson flutti frá Æðey ásamt systkinum sínum í lok maí, og höfðu
(129)