Vísbending - 15.02.1984, Page 7
VÍSBENDING
7
Mynd 7
Aðrar skýringar
Einnig verður að taka tillit til fleiri
skýringa, t.d. rangrar fjárfestingar,
alltof stórs fiskiskipaflota og ein-
hæfrar útflutningsframleiðslu, og nú
síðast aflabrests bæði á þorskveið-
um og loðnuveiðum. Þessi áhrif
ásamt mörgum fleirum eru skýringin
á þvf að framleiðslan verður þessum
11% (eða þar um bil) undir mögu-
legri framleiðslu á árinu 1984. Sú tala
gæti jafnvel orðið enn lægri, ef
þorskafli á árinu verður ekki nema
220 þúsund tonn eins og nú er gert
ráð fyrir. Á mynd 7 eru sýnd síðustu
kreppuskeiðin þrjú, ef svo mætti að
orði komast, árin 1966 til 1969, árin
1974 til 1976 og 1981 til 1984. Eins
og fram kemur að hluta á myndinni,
er sumt líkt með þessum samdráttar-
skeiðum, en annað ólíkt. Á myndinni
eru dregnar fram útflutningstekjur
sérstaklega, þar sem samdráttur
þeirraog síðan mjög kröftugur vöxtur
hefur haft úrslitaáhrif á fyrri tímabil-
unum tveimur, þ.e. 1967 til 1969 og
1974 til 1976. Það sem gerir árið
1983 óvenjulegt og frábrugðið
árunum 1968 og 1975, sem líkavoru
botn í hagsveiflu, er að í ár er ekki í
vændum sú kröftuga aukning í
útflutningstekjum sem varð á
árunum 1969 og 1976. Aukningin í
útflutningstekjum á þessum árum
stafaði bæði af auknum afla og af
mikilli hækkun útflutningsverðlags,
sem átti rætur sínar að rekja til meiri
hagvaxtar og almennrar eftirspurnar
í viðskiptalöndunum.
Samanburöur viö fyrri
„kreppulok"
Árin 1968/69 og 1976/77 voru ein-
mitt uppsveifluár í Bandaríkjunum
eftir lægðir f framleiðslu 1967 og
1975. Slík uppsveifla hófst í Banda-
ríkjunum enn á ný fyrir um það bil
14-15 mánuðum. Hagvöxtur í
Bandaríkjunum var afar mikill í fyrra,
jafnvel þótt miðaö sé við fyrstu ár í
uppsveiflu. Búist er við, að verðlag á
matvörum, ekki síst á kjöti, fari al-
mennt hækkandi þar í ár, bæði vegna
verðhækkana á fóðurvörum sakir
þurrka og uppskerubrests, og vegna
hærri tekna og meiri eftirspurnar.
Það er einmitt við þessar aðstæður,
sem við höfum notið mestra hækk-
ana á fiskverði okkar á Bandaríkja-
markaði. En í ár er engan veginn unnt
að stóla á slíka kjarabót vegna harðn-
andi samkeppni á þessum markaði í
Bandaríkjunum, einkum frá Kanada-
mönnum. Það er þó ekki loku fyrir
það skotið, að með sérstakri vöru-
vöndun og sérhæfni á markaðinum
takist að hækkað verði eitthvað við
þessar aðstæður.
Samfara miklum útflutningshækk-
unum á árunum 1969 og 1976 jókst
fiskafli líka verulega. Sem dæmi má
nefna, að þorskafli var um 90 þúsund
lestum meiri á árinu 1969 heldur en
á árinu 1967 (hér er átt við þorskafla
íslendinga), og að þorskafli var einn-
ig 65 þúsund lestum meiri á árinu
1977 helduren áárinu 1975. Áárinu
1984 gæti þorskafli minnkað um
nálægt 50 þúsund lestir frá árinu
1983 og ef til vill orðið hartnær helm-
ingi minni en á árinu 1981. Árið 1984
er því óvenjulegt hvað varðar ytri
aðstæður, sé það borið saman við
sambærileg ár í fyrri hagsveiflum. Á
mynd 7 er sýnd lauslega hugsanleg
þróun næstu árin (eiginlega „chartist
view“). Þar gætir ef til vill nokkurrar
bjartsýni en meginniðurstaðan er sú
að við þau áföll sem lýst var hér að
framan hafi hagvaxtarferillinn lækkað
nokkuð án þess að hallinn (sem
mælir hagvöxt) hafi breyst.
Mynd 8
1965-1969
Útflutningstekjur
Breytingar í % frá fyrra ári
1973-1977
1981-1985
--------------20
------------- 15
10
1981 82 83 84 85