Vísbending


Vísbending - 10.09.1984, Qupperneq 1

Vísbending - 10.09.1984, Qupperneq 1
VISBENDING VIKURIT UM ERLEND VIÐSKIPTI OG EFNAHAGSMÁL 40.2 10. OKTÓBER 1984 Gjaldeyrismarkaður Gengi Bandaríkjadollara og hagvöxtur í Evrópu Gengi þýska marksins Nokkrar sveiflur hafa verið á gengi helstu gjaldmidla síðustu vikurnar án þess þó að til umtalsverðrar hækkunar eða lækkunar hafi komið að meðaltali síðan gengi dollarans hækkaði verulega í byrjun septembermánaðar. í bráð virðist því verö á dollara vera komið yfir 3 þýsk mörk. Þetta kann að virðast afar hátt verð, einkum ef litið er til gengis helstu gjaldmiðla á síðustu árum. Eins og innfellda myndin neðst á síöunni sýnir þarf þó ekki að leita mjög langt aftur til að finna sambærilegar tölur. Meðalgengi dollarans gagnvart þýsku marki gæti orðið um DM 2,90 I ár. Arið 1983 var meðalgengi dollarans gagnvart marki DM 2,55. Arið 1972 var dollaragengið DM 3,19. flilt frá árinu 1953 til 1968 lék gengi dollarans gagnvart marki á bilinu DM 3,99-4,20 enda ríkti á þeim tima samkomulag það í gjaldeyrismálum sem kennt hefur verið við Bretton-Woods og fól í sér fast gengi helstu mynta. Arið 1969 féll dollarinn í DM 3,93, og árið 1970 í DM 3,65, en eftir það var gengisþróun eins og innfellda myndin sýnir. Fram kom í erindi dr. Herberts Giersch, sem sagt var frá í Vísbendingu 26. september sl., að miðað við það gengi dollarans sem nú rikir, DM 3,00 og yfir, er raungengi dollarans svipað gagnvart marki og á sjötta áratugnum. Engum þarf þvi að bregða þótt gengi dollarans haldi áfram að hækka. Trygging í gjaldeyrisviðskiptum Sá lærdómur sem draga má af reynslunni á gjaldeyrismarkaði síðustu misserin er einkum sá að nauðsynlegt er að vera undir allt búinn í gjaldeyrismálum. Æskilegt væri að völ væri á fleiri leiðum til að tryggja erlend viðskipti hér á landi fyrir óvæntum og ófyrirsjáanlegum gengisbreytingum. Hér er átt við tryggingu í gengismálum með framvirkum samningum, með framvirkum kaupum á gjaldeyri (currency futures) eða með kaupum á rétti til gjaldeyrisviðskipta á föstu gengi án þess að viðkomandi sé skuldbundinn til viðskiptanna (currency options). Enn sem komið er hafa Islensk fyrirtæki aðeins takmarkaðan aðgang Efni: Gjaldeyrismarkaður .... . .1 Erlendar lántökur . .3 Lafferkúrfan í Svíþjóð . .6 Töflur: Eurovextir ...8 Gengi helstu gjaldmiðla .8 Gengi íslensku krónunnar .8 Vegna verkfalls bókagerðar manna birtist Vísbending nú á breyttu formi. Eru lesenciur beðnir velvirðingar vegna óþægindanna. Gengi dollara gagnvart þýsku marki

x

Vísbending

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.