Vísbending


Vísbending - 10.09.1984, Blaðsíða 7

Vísbending - 10.09.1984, Blaðsíða 7
VISBENDING 7 samband skattlagningar og skatttekna er flóknara en svo að "haekkun skatta" færi ríkinu jafnan auknar tekjur. í fyrsta lagi eru svokölluð framboðsáhrif á skatttekjur. Ef skattlagning er aukin hlutfallslega gætir þeirrar tilhneigingar að fólk dragi úr vinnu og fjárfesting minnkar vegna þess að eigandi fjármagnsins ber minna úr býtum eftir skatt. Freistandi verður að stunda ýmiss konar "óskráða" starfsemi; heimaiðnað eða aukastörf sem hægt er að skjóta undan skattheimtunni. A sama hátt leitar fjármagn í atvinnustarfsemi sem ekki er gefin upp til skatts þar sem hún er arðbærari. í hve miklum mæli þetta gerist er háð staðkvæmni framleiðsluþátta, þvi hve auðveldlega framleiðsluþættir leita úr skráðri starfsemi við skattahækkun í óskráða og öfugt. En skattstofn getur skroppið saman við skattahækkun af fleiri ástæðum. Skattahækkun kann einnig að leiða til skattsvika jafnvel þótt viðkomandi stundi áfram sömu starfsemi. Þetta kynni að eiga við um innheimtu söluskatts hér á landi; hagurinn af því að gefa ekki rétt upp til skatts verður því meiri sem skatthlutfallið hækkar. í hvaða mæli skattsvik aukast við skattahækkun er háð heiðarleik skattborgarans og viðhorfi hans til stjórnvalda; refsingum fyrir skattsvik og líkunum á því að upp komist, auk skatthlutfallsins sjálfs. í þriðja lagi skiptir máli hvort skattur er stighækkandi eða ekki. Ef skattur er hlutfallslegur (t.d. útsvar hér á landi) leiðir 10% lækkun án efa til 10% minni tekna. Sé tekjuskattur lækkaður um 10% lækka tekjur aðeins um 10% ef engin breyting verður á skattstiganum. Lækkunin kynni að leiða til þess að skattstofninn stækkaði og þá minnka tekjur minna en 10%. Neðanjarðarhagkerfið í grein sinni gera þeir Feige og Mcgee greinarmun á þrenns konar atvinnustarfsemi (sjámynd). Fyrst er að nefna hina eðlilegu, skráðu atvinnustarfsemi; summa framleiðslu allra fyrirtækja og stofnana þar er hrein þjóðarframleiðsla. Að auki eru tveir óskráðir geirar en hvorugur þeirra kemur fram í. skráningu þjóðarframleiðslu. Undir annan fellur óskráð starfsemi þar sem greitt er fyrir vörur og þjónustu með peningum en hinn starfsemi þar sem engin peningaleg viðskipti eiga sér stað. Þar sem engin peningaleg viðskipti eiga sér stað mun ekki vera um raunveruleg skattsvik að ræða þótt að öðru leyti sé þessi starfsemi jafngild hefðbundnum markaðsviðskiptum. Undir þetta falla vinnuskipti og ýmiss konar heimilisframleiðsia án peningalegra viðskipta. Óskráð starfsemi án peningalegra viðskipta Hefðbundin skráð starfsemi (með peningalegum viðskiptum) Óskráð starfsemi með peningalegum viðskiptum Stuðlar Lafferkúrfunnar Til að finna Lafferkúrfuna fyrir Sviþjóð þurftu Feige og Mcgee á ákveðnum stuðlum að halda og verður hér greint stuttlega frá þeim; viðmiðunarárið var 1979. Meðalskatthlutfallið það ár reyndist vera 0,62 (þ.e. 62%), þ.e. hlutfall heildarskatttekna og hreinna þjóðartekna. Heildarskatttekjur náðu til beinna og óbeinna skatta ríkis og sveitarfélaga svo og til tryggingargjaida. Á sama hátt var skatthiutfali á jaðrinum metið 0,83 fyrir Svíþjóð árið 1979. Þá var einnig stuöst við vaxtateygni sparnaðar, en sú teygni var álitin um 0,3-0,A (sparnaður eykst þá um 3-4% ef raunvextir hækka um 10%). Að lokum þurfti að meta umfang óskráða hluta hagkerfisins. Höfðu höfundarnir undir höndum niðurstöður tveggja rannsókna á sænska neðanjarðarhagkerfinu og var það talið innan við 10% í annarri heimildinni en um eða yfir 20% í hinni. í niðurstöðunum miðuðu Feige og Mcgee við þrjú hugsanleg hlutföli, 5%, 10% og 20%. Niðurstöðurnar Taflan sýnir mat Feiges og Mcgees á bví skatthiutfalii sem hámarkað hefði skatttekjur í Svíþjóð árið 1979. Miðað er við þrjá möguieika hvað varðar framboðshliðaráhrifin: litla teygni, sennilega teygni og mikla teygni (hér er átt við í hve mikilum mæli starfsemi flyst yfir í óskráða geirann með hækkandi sköttum). Skatthlutfallið sem hámarkar tekjur hins opinbera er á bilinu 32% til 91% eftir því við hvaða forsendur um stuðla Lafferkúrfunnar er miðað. Samkvæmt þeim forsendum sem höfundarnir telja líklegastar er hámörkunarhlutfallið 0,58 eða 58%. Meöalskatthlutfall í Svíþjóð árið 1979 var 0,62 svo Svíar voru hægra megin við toppinn á Lafferkúrfu sinni það ár. Þannig hefði verið unnt að lækka skatta það ár og hækka skatttekjur, samkvæmt þessu; eða lækka skatta meira og halda samt skatttekjum óbreyttum. Rannsóknir sömu höfunda á Bandaríkjunum, Bretlandi og Hollandi sýndu að þessi Mat á skatthlutfalli í Svíþjóð 1979 sem hámarkar skatttekjur F ramboðshliðaráhrif Lítil teygni Óskráði hluti Sennileg teygni Óskráði hluti Mikil teygni Óskráði hluti Skattkerfi hlutfallslegt 0,91 0,88 0,83 0,80 0,78 0,75 0,50 0,49 0,48 Skattkerfi stighækkandi 0,68 0,66 0,62 0,60 0,58 0,56 0,37 0,37 0,36 Skattkerfi mjög stighækkandi 0,61 0,59 0,55 0,53 0,52 0,50 0,33 0,33 0,32 Heimiid: Feige og Mcgee, Scandinavian Journal of Economics, 1983

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.