Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1940, Qupperneq 4

Frjáls verslun - 01.12.1940, Qupperneq 4
Kringum áramótin Lengst af stríðstímanum hafa engar opin- berar skýrslur verið gefnar út um verzlunar- og greiðslujöfnuð okkar gagnvart útlöndum. Er þessi leynd alveg þýðingarlaus og mun ekki hægt að færa fram neinar gildar ástæður fyrir henni. Hér við er einnig að athuga að þótt hið mánaðarlega yfirlit Hagstofunnar komi ekki lengur út, þá eru þó reikningar bankanna ennþá birtir, en af þeim má raunverulega sjá að verulegu leyti, hvernig hagurinn er. Skv. upplýsingum, sem fyrir liggja nam inn- flutningurinn til 1. nóv. s. 1. 56 milj. kr. en var 50 milj. á sama tíma í fyrra. Inneignir bank- anna erlendis voru einnig pr. 1. nóv. 1,463,636 sterlp., en á samaj tíma í fyrra voru skuldir bankanna erlendis 425,453 sterlp. Af tölum bankanna má leiða, að jöfnuður sé nú hag- stæður um 50 milj. kr. Þetta eru hinar einu opinberu tölur, sem við er að styðjast, en þær gefa einnig nokkuð glögga mynd. # Mikið af útflutningsverðmætum liggur nú ó- selt í lamdinu. Ekkert er enn selt af ull og gær- um og lýsi og síldarmjöl er enn að nokkru leyti óselt. Mun ekki óvarlegt að telja verðmæti þess sem til er af síldar- og landbúnaðarafurðum, ca. 20—25 milj. króna. Útflutningur pr. 1. nóv. mun hafa verið orðinn ca. 100 milj. kr. og ætti útflutningur alls því að geta orðið a. m. k. um 120 milj. kr. Bretar hafa keypt af okkur síldarafurðir fyr- ir ca. 20 milj. króna. Ameríkumenn hafa keypt lýsi og nemur útfl. til þeirra ca. 10 milj. kr. pr. 1. nóv. s. 1. Nokkuð hefir verið sent af salt- fiski til Spánar og Portúgal og fengist fyrir hann gott verð. Þess er ekki að dyljast, að erfiðleikar eru á að fá gott verð fyrir landbúnaðarafurð- irnar, og það sem eftir er af saltsíld. Hefir undanfarið verið um það rætt, að koma þessum vörum til Svíþjóðar um Gautaborg gegn greiðslu í dollurum. Bretar eru þess fýsandi að 2 slík sala geti tekizt en hún mun vera mörgum erfiðleikum bundin og óvíst hvað úr verður. Erfiðleikar á sölum til Ameríku eru miklir. Ameríkumenn hafa lítið með vörur okkar að gera og tollur á síldarlýsi er þar afar hár. Ekki hafa verið gerðar neinar tilraunir til að fá hag- stæðari aðstöðu gagnvart AmeríkumÖnnum með því að gera við þá verzlunarsamninga, enda er vafasamt um árangurinn. En í Ameríku eigum við nú ötulan erindreka, þar sem er Thor Thors aðalkonsúll, og má mikils vænta af störfum hans á viðskiptasviðinu. Ekkert hefir opinberlega verið látið uppi um viðskiptasamninga okkar við Breta. Eftir öllu að dæma, ganga þeir hægt og er ekki annað sýnna en að samninganefndin verði „perma- nent“-stofnun, enda má vel vera að slíkt sé óhjákvæmilegt. — Þótt samningar væru, koma alltaf ný og ný tilfelli, sem ræða þarf um. Viðhorfið breytist einnig eftir gangi styrjaldarinnar o s. frv. Skv. yfirlýsingum Breta er ekki ástæðat til annars en að telja að við munum geta fengið hagstæða samninga við þá þannig, að tryggt verði að hægt sé að selja allar afurðir og kaupa allar nauðsynjar og er þá mikið fengið. Hitt er vitað, að Bretar vilja hafa fulla íhlutun um hvað er keypt og hve mik- ið á hverjum tíma, og er því fyrirsjáanlegt, að víðtækar hömlur og höft verða á viðskiptum í nánari framtíð. Þótt útflutningur til Ameríku sé töluverður, er hann þó hvergi nærri nógur til að fullnægja þörf okkar fyrir dollara. Það sem á vantar, verðum við að fá með yfirfærslu punda frá Englandi til Ameríku og er það að sjálfsögðu mikilsvert atriði. Þótt þörf Englend- inga sjálfra fyrir dollara sé mikil og knýjandi, er ekki ástæða til annars en að við getum feng- ið það sem við þörfnumst, því að þörf okkar er auðvitað smáatriði eitt og hefir enga þýð- ingu í sambandi við viðskipti Breta við Banda- ríkin. Okkur munar það miklu, að geta fengið dollara til kaupa á nauðsynjum, en Breta mun- FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.