Frjáls verslun - 01.12.1940, Blaðsíða 10
þegar klukkan kallar. leggja allir eyrun við. Hinn
virðulegi klukkari, sern sést á myndinni hér að ofan,
kippir í strenginn þegai tíðindi hafa borizt. jiannig
hefir þetta vcrið allt frá tímum Lloyds kaffihúseig-
anda. þar var hringt klukku ef tilkynna átti nýjar
fréttir.
8
Lloyds
í London
Það var árið 1669 að nokkrir kaupmenn, sem
áhuga höfðu á siglingum, tóku að hittast í
kaffistofu Edwards Lloyds í Tower-götu í
London. Þessir menn fóru inn á þá braut að
takast á hendur ábyrgð á „spekulationum“
kunningja sinna. Meðan kaffið var sopið, var
skrafað um skilmálaná. Brátt jókst þessi starf-
semi. Seinna fluttu þessir hugkvæmu kaupmenn
og þeir sem utan um þá höfðu safnazt, á ann-
an og betri stað og nú er þetta fyrirtæki orðið
eitt hinna voldugustu í heimi og mun vera meðal
frægustu stofnana sem uppi er og langfrægast
af öllum fyrirtækjum er fást við tryggingar.
Tryggingarstarfsemi Lloyds hefir lifað örð-
uga tíma. í aðalsalnum í höll Lloyds er gömul
klukka, sem hringt er einu sinni ef tilkynnt eru
ill tíðindi, en tvisvar ef góðar fréttir berast. Á
tímum Napóleons-styrjaldanna og í heimsstyrj-
öldinni 1914—18 heyrðust oft tvær hringingar
og nú á hinum síðustu og verstu tímum, þegar
hvert skipið af öðru er sent niður á hafsbotn,
af völdum kafbáta, flugvéla eða tundurdufla,
heyrist oft hringt tvisvar og á þá margur
Lloyds-maður um sárt að binda.
Tryggingarstarfsemi Lloyds er öðruvísi fyr-
irkomið en tíðkast nú hjá nýrri vátryggingar-
félögum. Fastheldni Englands við gamlar sið-
venjur er alkunna og enn er tryggingarfyrir-
komulagið í stærstu dráttunum hið sama og
var, er kaupmennirnir gömlu hittust í kaffi-
stofu Edwards Lloyds. Það eru einstakir menn
FRJÁLS VERZLUN