Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1940, Blaðsíða 15

Frjáls verslun - 01.12.1940, Blaðsíða 15
Vestmannaeyjar á æskudögum Nicolai Bjarnasonar. var setzt að snæðingi og var veizlan oftast hald- in í fiskgeymsluhúsi, sem tjaldað var innan með fánum og öðru og reynt að gera það vist- legt. Voru þar höfðingjar, þ. e. embættismenn og „betri“ borgarar við háborð og var þeim oftast veitt kraftsúpa og steik og lag- kaka til eftirmatar. Við lágborðið sat allur al- menningur og fékk hann hrísgrjónagraut og steik og ef afgangur var af lagkökunni af há- borðinu, var hún líka borin fram við lágborðið. Púns var drukkið á eftir og síðast var dansað eftir harmonikuspili. Sjómenn höfðu enn þann sið að lesa sjóferðabæn. Þegar farið var í fyrsta róður á vertíðinni var sérstök athöfn. Las þá formaður upphátt sjóferðabæn og var hún öllu lengri en venjulega. Annars lásu menn bænina í hljóði, en tóku ofan á meðan. Þegar bræður Nicolai eltust, tóku þeir einn- ig til starfa við verzlun Thomsens, og var nú ekki nóg að starfa fyrir þá alla. Varð það úr, að Nicolai fór til Kaupmannahafnair til að læra FRJÁLS VERZLUN verzlunarfræði og var þar 1879—1880. Var hann þar í húsi H. Thomsen kaupmanns. Thomsen var ekki vel við að Nicolai sækti mik- ið félagsskap íslendinga í Höfn. Þeir þóttu svallsamir. Neðan N. B. var í Höfn, andaðist Jón Sigurðsson, og var Nicolai í kirkju, er hladin var kveðjuathöfn yfir líki Jóns. Fjöldi íslendinga var þar viðstaddur. Það varð úr fyrir tilstilli yngri Thomsen í Vestmannaeyjum, að N. B. réðist að verzlun Fischers í Reykjavík, þá 22 ára að aldrei. — Fischer vantaði hann í stað Guðm. Olsen, sem ætlaði í verzlunarfélagsskap við Jón Steffen- sen. Guðbrandur Finnbogason, sem var faktor Fischers vildi að Nicolai tæki við aðal- bókhaldi verzlunarinnar, en hann treysti sér ekki, sökum óvana til að takast svo mikið starf á hendur sem bókhaldið var við svo stóra verzl- un, og varð það úr að danskur maður, Egg- ers, tók við því starfi, en hann var lítið gef- ínn fyrir skrifstofusefur og varð N. B. að 13

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.