Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1940, Blaðsíða 17

Frjáls verslun - 01.12.1940, Blaðsíða 17
vinna mikið af hans verki, en átti þó aðallega að vera í búðinni. Eggers fór þó bráðlega utan aftur. I búðinni var staðið frá kl. 7 á morgnana, þar til kl. 9—10 á kvöldin, oftast var lokað kl. 8 en svo þurfti að taka til í búðinni, hreinsa og sópa. Aldrei var ofn í búðinni og sátu búð- arþjónarnir við skriftir sínar og reikninga með vetlinga á höndum frammi í búðinni, þegar kalt var. Oft og einatt var unnið einnig lengi eða skemmri tíma á sunnudögum. Nokkrir kaupmenn, helzt danskir, gáfu starfsfólkinu viku eða hálfsmánaðarleyfi. Var oft farið í út- reiðartúra um helgar og þá glatt á hjalla, eink- um á heimleiðinni. Valdimar Fischer, eða gamli Fischer, dó 1888 en sonur hans, Friðrik, tók við verzlun- inni. Gamli Fischer hafði þá undanfarið lítið dvalizt hér á Islandi, en fyrrum var hann van- ur að dvelja hér langdvölum. Hann var mjög brjóstgóður maður prúðmenni og stofnaði sjóð til styrktar ekkjum drukknaðra sjómanna. — Lagði hann til sjóðsins 20 þúsund krónur, sem var stórfé í þá daga, og kona hans arfleiddi síðar sjóðinn að öðrum 20 þúsund krónum. — Þessi Styrktarsjóður W. Fischers, sem svo er nefndur, hefir orðið mörgum að liði. Nicolai var í stjórn sjóðsins í um 80 ár. Nú er hann undir stjórn þess opinbera. Stundum var farið í hina svonfendu „spekú- lantstúra“. Fischer átti skip, sem hét To Söstre, og svo hafði hann einnig leiguskip. Var sett- ur allskonar varningur í skip og því siglt upp í Borgarnes. Var slegið upp búð í lestinni. Skip- ið lá úti á Brákarpolli en ferjumaður var hafð- ur til að ferja viðskiptavinina milli lands og skips. I Borgarnesi var þá Thor Jensen og verzlaði hann þar fyrir erlendan mann að nafni Lange. Þegar Fischer var heima á sumrum og var við „púltið“, kallaði hann oft til Nicolai, þegar einhver kom og vildi fá krít, hvort óhætt væri að lána þessum. Fischer var ókunnur almenn- ingi, því að hann var hér ekki nema stuttan tíma í einu. Árið 1888 skrifaði Bartels, sem stjórnaði verzlun Fischers í Keflavík til hans, að sig langaði til að fara utan til að hitta skyldfólk sitt. Fischer skrifaði Finnbogasen, og sagði, að ef hann gæti sent einn af sínum þjónum til Keflavíkur, til þess að annast verzlunina í fjar- veru Bartels, þá mætti hann sigla. Það varð úr, að Nicolai fór til Keflavíkur og var þar meðan Bartels var ytra. Árið 1893 kvæntist N. B. konu sinni, Önnu FRJÁLS VERZLUN Thorsteinsson, og árið eftir varð hann faktor [ Keflavík, er Bartels lét af því starfi. Árið 1902 bauð Fischer Nicolai til utanfarar og fóru þeir saman um England og Þýzkaland. Fischer var vellauðugur maður og ósinkur á fé. I Hamborg hittu þeir m. a. Ludvig David, þiann sem kaffibætirinn er kenndur við, og bauð hann þeim til matar. Nicolai man eftir að Ludvig David sagði við Fischer: Þú þarft ekki vera hræddur, Fischer, meðan þú hefir hann Nicolai hjá þér!“ Fischer var hræddur um, að Nicolai kynni að villast frá sér og fór ofan í vasa sinn, þeg- ar þeir komu til London eða Hamborgar og fékk Nicolai nokkra gullpeninga, og sagði að hann skyldi hafa þetta til þess að geta bjargað sér, ef svo kynni að fara að þeir misstu sjónar hvor af öðrum, en til þess kom aldrei. Keflavík var á þessum tíma í eigu Duus-verzl- unar en það var stærsta verzlunin þar. Fyrir utan Fischer og Duus var þar einnig Knudsens- verzlun, en hún var minnst. Jón Gunnarsson, síðar Samábyrgðarstjóri, var þá faktor hjá Duus, en Ólafur Norðfjörð, faðir Valdemars kaupm. Norðfjörð, var fyrir Knudsens-verzlun. Fischers-verzlun átti all-stórt verzlunarhús í Keflavík og var mikið skipt við verzlunina, en í henni fjkkst allt mögulegt, sem nöfnum tjáir að nefna, frá koltjöru til silkivara. Sjósókn var þá mikil frá Reykjanesi, eins og nú er, en þessi ár, sem N.B. var í Keflavík, fyrir aldamót- in, var fiskileysi og þar af leiðandi þröngur efnahagur hjá alþýðu mannna. Ibúar í Kefla- vik munu hafa verið 2—300. Róið var eingöngu á opnum bátum og voru þeir flestir í Garðinum, en einnig margir í Keflavík og öðrum verstöðv- um. Verzlun var hvergi nema í Keflavík, og þurftu sjómenn þá að sækja allt, sem þeir þurftu til Keflavíkur. Oft komu þeir gangandi til að fá sér hitt og annað. Reikningsviðskipti voru algengust. Sjómenn höfðu ekki peninga fyrr en að vertíð lokinni. Margir fóru til Austfjarða á vorin og reru þar yfir sumarið. Peningar þekt- ust varla. Sjómenn voru vanir að kaupa í Reykjavík fyrir peninga þá, sem þeir fengu á- vísun á eftir Austf jarðatúrinn. Fluttu þeir vör- urnar með sér suður með sjó. N. B. benti þeim á að þetta væri þeim til óhagræðis og það varð úr, að sjómenn fóru að koma með ávísanir sín- ar til Keflavíkur og keyptu þar. Þótti Fischer það undur og stórmerki, að hægt væri að verzla fyrir peninga í Keflavík. Hann hafði aldrei dreymt um að sjá peninga í Keflavíkurverzlun. Á vorin komu skip frá Danmörku með vörur handa verzluninni. Átti Fischer þrjú skip, sem nefndust Valdemar, Nancy og Hermóður. Auk 15

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.