Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1940, Síða 33

Frjáls verslun - 01.12.1940, Síða 33
Tilgangurinn er að hjálpa hver öðrum. Ánægju- legast er að geta sem lengstan tíma æfi sinnar lagt í sjóð þenna, án þess að þurfa að leita til hans um hjálp handa sjálfum sér, og með því móti lagt fram nokkra hjálp til starfsbræðra sinna, þeirra er verða fyrir því að veikjast og máske falla frá, annaðhvort þeim sjálfum til styrktar eða ekkjum þeirra og börnum. Ekki er það heldur óhugsanlegt að þeir, er á yngri árum eru velmegandi og frekar veitandi en þiggj- andi, verði fyrir einhverju því óhappi eða slysi í lífi sínu, er orsaki það að þetta snúist við og sér þá enginn eftir að hafa styrkt sjóðinn og í staðinn geta fengið styrk úr lionum. Enginn veit sína æfina fyr en öll er. Til þess að þetta megi framkvæma og þá helzt svo að um muni, verður sjóðurinn að eflast enn meir og það gerir liann með þátttöku sem flestra verzlunarmanna. Með því að vekja athygli á sjóðnum og tilgangi hans, vill stjórn hans hvetja kaupmenn og verzl- unarmenn hér í Reykjavík, sem ennþá eru ekki fé- lagar sjóðsins, að ganga í hann sem fyrst. þar ættu þcir allir að vera. í nóvember 1942 verður minnst 75 ára afmælis hans. Sjóðstjórnin vill því sérstaklega leiða athygli starfsfólks þess, er hér um ræðir, á sjóðnum og þess um tímamótum hans. Fundur er aðeins haldinn einn á ári og er það i janúarmánuði. í 2. gr. laga sjóðsins stendur auk annars: Félagar eru þeir verzlunarmenn í Reykjavík sem í félagið eru teknir á aðalfundi með 2/3 — tveim þriðju — hluta atkvæða þeirra félagsmanna, er fund sækja. Skyldir eru innsækjendur að senda beiðnir sínai' um inngöngu í félagið, til formanns þess, eigi síðar en 3 dögum fyrir aðalfund, svo að stjórn félagsins geti kynnt sér hagi innsækjanda. Formaður sjóðsins er nú Ilelgi I-Iclgason. Dr. Jón Helgason: Reykjavíkurkaupmenn. Framk a( bls. 6. „heldri menn“ á loftinu uppi yfir búðinni. Hitt- ust þar einatt á kveldin bæði embætismenn og verzlunarforstjórar og aðrir „betri“ borgarar og ræddu þar „yfir glösum“ bæði bæjarmál og landsins gagn og nauðsynjar. „Uppi hjá Möll- er“ þótti allt rólegra en á hinum aðalgildaskála höfuðstaðarins, sem rekinn var af Niels Jörg- ensen og seinna Halberg gestgjafa, þar sem nú er „Hótel ísland“ eða réttara vesturálma „Vöruhússins". Það var í þann tíð trú manna, að ekki væri til neins að fást við verzlunarrekstur annars staðar en í Hafnarstræti. Þó voru þrjár verzl- anir reknar annars staðar, tvær í Austurstræti og ein í Aðalstræti. Austurstrætisverzlanirn- FRJÁLS VERZLUN „FRJÁLS VERZLUN“ Útgefandi: Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. — Formaður: Friðþjófur O. Johnson. Ritstjóri: Einar Ásmundsson. Ritnefnd: Adolf Björnsson, Björn Ólafsson, Pétur Ólafsson, Pétur 0. Johnson, Vilhjálmur Þ. Gíslason. — Skrifstofa: Vonarstræti 4, 2. hæð. — Áskriftargjald: 5 krónur á ári, 12 hefti. — Lausasala: 0,50 aura heftið. — Prentsmiðja: ísafoldarprentsmiðja h.f. ar voru annars vegar „Veltan“, hins vegar verzlun Eyþórs Felixsonar, báðar í smáum stíl. Veltan var eins konar kaupfélagsverzlun, sem Jón ritstj. Guðmundsson hafði komið á fót; faktor þar var síðastur Jón Pálsson bróðir sr. Jens í Görðum). En Eyþór verzlaði, þar sem nú er bókabúð Péturs sál. Halldórssonar, unz hann keypti Veltuna, reif hana og byggði hús það, sem enn stendur þar á lóðinni og flutti verzlun sína þangað. I Aðalstræti settu þeir frændur Jón Vídalín og Páll Eg&erz verzlun á fót í Hákonsenshúsi um 1879, en fluttu síð- an yfir götuna og verzluðu fáein ár í húsi, sem þeir reistu þar og síðar eignaðist Br. H. Bjarnason. En fyrir „ofan læk“ veit ég ekki til að nokk- ur áræddi að byrja verzlun fyr en Jón Þóröar- son hóf verzlun sína á horni Þingholtsstrætis og Bankastrætis, nálægt 1890, sem enn er rekin þar. Þótt alls ekki sé lengur um neitt kaupmanns- vald að ræða hér í bæ, þegar hingað er komið sögunni, þá verður því ekki neitað, að fram- þróun bæjarins er í þakkarskuld við þá kaup- mannastétt, sem hér starfaði á þessu tímabili. Það má sem sé ekki gleymast hver bjargvættur stéttin einatt reynist efnalausum almenningi, bæði með atvinnu á sumrin og vörulánum á vetrum, þegar að þrengdi, vegna þess að ekki gaf á sjó. Einnig megum vér minnast þess, að það voru kaupmenn, sem hjálpuðu til að koma á fót bæði barnaskóla fyrir bæinn og sjúkra- húsi, með því að gefa bænum hús til hvors- tveggja, og að sumir þeirra hafa stofnað hér styrktarsjóði, sem komið hafa í góðar þarfir. Loks er skylt að minnast þess, hversu verzlan ■ ir kaupmanna þessara urðu á þeim tímum, er enginn var verzlunarskólinn hér í bæ, hinn bezti undirbúningsskóli fyrir fjölda ungra manna, sem seinna urðu hinir nýtutsu menn manna, sem seinna urðu hinir nýtustu menn þjóðfélaginu sem verzlunarstjórar og sjálfstæð- ir kaupsýslumenn, bæði hér í bæ og í kaupstöð- um út um land. 31

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.