Frjáls verslun - 01.01.1945, Blaðsíða 10
Frá aðalfundi V H
Aðalfundur V. R. fór fram fimmtudaginn 30. nóv.
s. 1. að heimili félagsins.
Formaður félagsins, Hjörtur Hansson, setti fund-
inn og bauð fundarmenn velkomna.
Konráð Gíslason var kosinn fundarstjóri. Tók
hann við stjórn fundarins og skipaði Baldur Pálma-
son sem fundarritara.
Að svo búnu var gengið til svofelldrar dagskrár;
1. Ritari las fundargerð síðasta fundar.
2. Form. félagsins flutti skýrslu um félagsstörf-
in á liðnu starfsári. Er skýrsla hans birt hér
að aftan.
3. GjaJdkeri húsbyggingarsjóðs, Sigurður Árna-
son, las upp reikninga sjóðsins.
4. Form. veitinganefndar, Egill Guttormsson,
flutti skýrslu um rekstur íélagsheimilisins.
5. Form. skemmtinefndar, Jóhann Möller, flutti
yfirlit um skemmtanahöld félagsins og fjár-
hagsútkomu af þeim.
6. Fyrir hönd bókasafnsnefndar gerði Hjálmar
Blöndal grein fyrir ásigkomulagi safnsins og
bar fram tillögu frá nefndinni um skipulagn-
ingu þess. Nokkrar umræður urðu um bóka-
safnið, og var að lokum samþykkt tillaga um
að bókasafnsnefnd skuli taka rekstur safnsins
til nákvæmrar íhugunar, sem leiði til úrbóta.
7. Gjaldkeri félagsins, Bergþór Þorvaldsson, las
upp heildarreikninga félagsins. Voru þeir sam-
þykktir í einu hljóði.
8. Stjórnin kom fram með tvær minni háttar
lagabreytingar, sem ekki náðu fram að ganga.
9. Áður en hafizt væri handa um stjórnarkosn-
ingu kvaddi formaður félagsins sér hljóðs og
kvaðst ekki mundu gefa kost á sér að nýju,
hvorki í formannssæti né til annarra stjórnar-
starfa, þar eð hann hefði nú óslitið um 25 ára
skeið átt sæti í sjórn og nefndum félagsins.
Þakkaði hann öllum samsarfsmönnum sínum
í stjórn og á öðrum vettvangi innan félagsins
Fundarstjóri þakkaði fráfarandi form. ágætt
starf í félagsins þágu. Síðan risu fundarmenn
úr sætum og hylltu Hjört með ferföldu húrra-
hrópi.
10. Stjórnarkosning. Oddur Helgason stórkaupm.
var kjörinn form. til eins árs, með yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða.
Meðstjórnendur til tveggja ára voru kjörnir:
Konráð Gíslason kaupm., endurkosinn,
Guðjón Einarsson verzlm. og
Pétur Ólafsson forstjóri.
Lárus Bl. Guðmundsson bóksali var endur-
kosinn til eins árs í stað Odds Helgasonar, sem
átti sæti í stjórninni:
Fyrir eru í stjórninni
Ludvig Hjálmtýsson verzlm. og
Baldur Pálmason verzlm.
í varastjórn voru kjörnir:
Gunnar Ásgeirsson stórkaupm.,
Sveinn Ólafsson skrifstofum. og
Gunnar Magnússon verzlm.
11. Kosning nefnda:
í húsnefnd:
Egill Guttormsson stórkaupm.,
Gunnar Jónsson verzlstjóri,
Oddur Helgason stórkaupm.,
Sigurður Árnason kaupm. og
Tómas Pétursson fulltrúi.
í bókasafnsnefnd: (endurkosnir):
Hjálmar Blöndal fulltrúi,
Lárus Bl. Guðmundsson bóksali og
Páll Jóhannsson verzlm.
1 heiðursfélaganefnd (endurkosnir):
Guðm. J. Breiðfjörð blikksm.,
Guðm. Kr. Guðjónsson verzlstj.,
Ilalldór Jónsson kaupm.,
Jón Guðmundsson kaupm. og
Sigurjón Jónsson kaupm.
í fulltrúaráð Verzlunarráðs íslands:
I-Ijörtur Hansson stórkaupm. og
Oddur Helgason stórkaupm.
12. Önnur mál
Meðan á stjórnarkosningu stóð, ílutti fráfarandi
formaður félagsmönnum þau tíðindi, að Thor
Jensen hefði ákveðið að gefa félaginu kr.
30.000,00, sem renna skulu í sjóð þann, sem ber
heitið „Námssjóður Thors Jensen“ og stofnaður var
fyrir 1—2 árum með kr. 50.000,00 framlagi frá
sama gefanda. Sjóður þessi er sem kunnugt er til
styrktar efnilegum mönnum til náms í verzlunar-
fræðum. Er hann nú að upphæð kr. 80 000,00. —
Fundarmenn fögnuðu þessari fregn með dynjandi
lófataki.
I lok fundarins kom fram svohljóðandi tillaga
frá Ágústi Ármanni:
„Aðalfundur í Verzlunarmannafélagi Reykja-
víkur, haldinn 30. nóv. 1944, lýsir megnri óánægju
sinni yfir þeirri ráðstöfun fráfarandi ríkisstjórnar
að heimila Viðskiptaráði að veita fámennum flokki
manna' einkaleyfi á innflutningi vefnaðarvöru til
landsins frá Bandaríkjunum. — Skorar fundurinn
jafnframt á núverandi ríkisstjórn að kippa þessu í
lag aftur hið bráðasta og gefa þessa verzlun al-
gjörlega frjálsa.“
Tillaga þessi var samþykkt að undangengnum
töluverðum umræðum.
Lauk síðan fundi.
10
FRJAJ.tí VEKZLUN