Frjáls verslun - 01.01.1945, Blaðsíða 21
leit að nýjum ritstjóra. Tókst henni að lokum, eftir
að hafa þreifað nokkuð fyrir sér, að fá Bárð Jak-
obsson, lögfræðing, til að taka að sér ritstjórnina.
Hafði hann svo starf þetta með höndum þar til
síðla júlímánaðar, er hann sagði starfinu lausu,
vegna brottflutnings úr bænum. Hafði hann þá ann-
azt ritstjórn á 1.—6. tbl. Var þá aftur reynt að
koma auga á nýjan ritstjóra, en án árangurs. En
þar eð mál þetta var mjög aðkallandi, varð það að
samkomulagi innan ritnefndarinnar, að formaður
hennar, Einar Ásmundsson, lögfr., er áður hafði
verið ritstjóri blaðsins, annaðist útkomu þeirra 6
tölublaða, sem eftir voru að koma út á árinu 1944,
með aðstoð ritnefndar. — Nú hefur það atvikazt
þannig, bæði vegna sumarleyfa í prentsmiðjum
allan ágústmánuð og fram í september, og prentara-
verkfallsins, er hófst 1. október og stóð yfir allan
þann mánuð, — að útkoma blaðsins hefur tafizt úr
hófi fram, svo að vafi er á að hægt verði að koma
út á þessu ári meiru en þeim 4 tölublöðum, nr. 7
—10, sem eru að verða tilbúin til prentunar og
koma út í einu lagi. — Hér er því um þau atvik að
ræða, scm ekki verða umflúin og við verðum að
sætta okkur við.
Viðvíkjandi þeirri hlið félagsstarfseminnar, sem
snýr að viðhaldi, verklegum framkvæmdum og
öðrum kostnaði varðandi húseignina, félagsheimilið
og starfsemi félagsins í heild, munu hinar starfandi
nefndir gefa skýrslur um afkomu hverrar greinar
fyrir sig og gjaldkeri lesa upp heildaryfirlit yfir
fjárhag félagsins.
Frh. af bls. 9.
Louis Zöllner tók viö forsæti skáksambands
Norðymbralands af hertoganmn af Norðymbra-
landi. Zöllner hefir gefið hinn afburða fagra
verðlaunagrip, sem hér fylgir mynd ?.f. Er betta.
farandgripur og taflkongur Norðymbralands
hverju sinni handliafi hans. Þegar við förum að
athuga skákirnpr, sem hann hefir teflt, þá verð-
ur þar fyrir okkur víkingsandi og ævintýralund.
Skyldu skákirnar, sem tefldar eru í dag, koma,
mönnum eftir fimmtíu ár fyrir sjónir með jafn
dýrðlegri dirfsku, slíkum leik að ótrúlegustu
flækjum. Ilugsi hver sitt! Tlér birtist skákin.
milli Zöllners og Aljekine. f næsta blaði verða
birt eitt eða tvö sltákdæmi til viðbótar“.
EVANS-BRAGÐ
Hvítt: Aljelcine. Svart: L. Zöllner.
1. e2—e4, e7—e5; 2. Rgl—f3, Rb8—c6; 3. B—
c4, B—c5; 4. b2—b4, BXp; 5. 0—0, d7—d6;
6. d2—d4, pXp; 7. RXp, R—f6; 8. B—b2, 0—
FRJÁLS VERZLUN
0; 9. R—f5, BXR; 10. pXB, H—e8; 11. R—c3,
R—e4; 12. B—b4, B—c5; 13. h2—h3, h7—h5;
14. K—hl, D—d7; 15. f2—f4, R—f6; 16. g2-g4,
H—e3 ; 17. K—g2, h5—h4; 18. R—a5, D—e7;
19. RXB, pXR; 20. H—f2, H—g3+ ; 21. K—
h2, D—e3; 22. D—fl, I4Xp+; 23. DXH,
DXH+; 24. K—hl, R—e4; 25. D—g2, DXf4;
26. H—el, R—g6+ ; 27. K—gl, H—d8; 28. f5
—f6, H—d7 og vinnur.
Rakarar voru í svo miklum metum hjá Forn-
Rómverjum, að þeir reistu glæsilegan minnisvarða
til heiðurs þeim manni, sem fyrstur lagði stund á
rakstur sem atvinnugrein. En rakaraiðnin á sér
lengri forsögu. Sagt er, að Filipus Makedoníu-kon-
ungur hafi tekið það mjög nærri sér, að sjá her-
menn sína keyrða niður á skegginu, enda auðveld-
aði það f jandmönnunum allar hernaðaraðgerðir. Af
þessum ástæðum skipaði hann fasta menn til
að sjá um að allur herinn væri skegglaus. Rakara-
iðnin var, sem sagt, í upphafi innleidd af „hernað-
arlega mikilvægum" ástæðum.
„FRJÁLS VERZLUN”
Utgefandi: Verzlunarinaimafélag Reykjav íkur.
Formaffur: Oddur Helgason.
Ritstjóri: Jónas Árnason.
Ritnefnd: Einar Ásmundsson, Pctur Ólalsson,
Baldur Pálmason, Ivar Guðinundsson, Lúðvíg
Hjúlmtýsson.
Skrifstofa: Vonarstræti 4, 2. hæð, Reykjavík,
Sínii 5293.
fsaloldaritrenlsmiSja h/f.
21